Körfubolti

Missir af öðru tíma­bilinu í röð vegna meiðsla

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ben Simmons hefur átt í töluverðum vandræðum með skrokkinn síðustu ár.
Ben Simmons hefur átt í töluverðum vandræðum með skrokkinn síðustu ár. Adam Hunger/Getty Images

Ben Simmons, leikmaður Sacramento Kings í NBA-deildinni, sleit hásin á æfingu með liðinu um helgina. Hann hafði nýlega samið við liðið eftir að hafa misst af allri síðustu leiktíð sökum meiðsla.

Simmons hefur glímt töluvert við meiðsli á ferli sínum en hann missti af allri fyrstu leiktíðinni í NBA þar sem hann ökklabrotnaði haustið 2016 eftir að hafa verið valinn fyrstu í nýliðavalinu það sumarið af Philadelphia 76ers.

Hann var valinn nýliði ársins tímabilið eftir en hefur átt í meiðslavandræðum nánast allar götur síðan. Hann átti þrjú meiðslahrjáð tímabil hjá Brooklyn Nets árin 2022 til 2025 og skipti svo til LA Clippers þar sem hann byrjaði ekki einn leik og spilaði aðeins 22 leiki alls.

Clippers losuðu hann undan samningi fyrir rúmu ári síðan og hann var utan vallar alla síðustu leiktíð sökum meiðsla.

Sacramento Kings tóku séns á Simmons og gerðu við hann samning í byrjun september. Simmons sleit hins vegar hásin á æfingu á sunnudaginn var og mun ekki spila einn einasta leik í vetur, og missir því af öðru heila tímabilinu í röð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×