Lífið

Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti

Árni Sæberg skrifar
Kristófer leitar að nýjum eiganda íbúðarinnar í Urriðaholti.
Kristófer leitar að nýjum eiganda íbúðarinnar í Urriðaholti.

Körfuboltagoðsögnin Kristófer Acox hefur sett íbúð sína í Urriðaholti í Garðabæ á sölu. Íbúðin er á fyrstu hæð og henni fylgir heitur pottur og pallur.

„Nú er komið að því að finna nýja eigendur að þessari glæsilegu íbúð í Urriðaholti!“ skrifar Kristófer á Facebook en hann eignaðist fyrr á árinu son með unnustu sinni Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur. Hann tekur fram að íbúðin sé 103,2 fermetrar að stærð og með þremur svefnherbergjum og deilir hlekk af fasteignavef Vísis. 

„Með aukinni lofthæð, rúmgóðri verönd, heitum potti og stæði í lokaðri bílageymslu. Endilega kíkið á eignina og deilið áfram ef þið þekkið einhvern sem gæti verið að leita sér að nýju heimili,“ skrifar Kristófer sem er með þekktustu körfuboltaköppum landsins. Uppsett verð fyrir íbúðina eru 93,5 milljónir króna.

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Lind fasteignasala

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.