Fótbolti

Missir af stór­leik kvöldsins og verður í faðmi fjöl­skyldunnar

Andri Broddason skrifar
Joshua Kimmich verður í faðmi fjölskyldunnar í kvöld þegar Bayern München tekur á móti Arsenal í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Joshua Kimmich verður í faðmi fjölskyldunnar í kvöld þegar Bayern München tekur á móti Arsenal í Meistaradeild Evrópu í kvöld. F. Noever/Getty Images

FC Bayern München tekur á móti Arsenal í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Heimamenn þurfa þó að spila án fyrirliða liðsins Joshua Kimmich sem verður ekki með liðinu í kvöld.

Náinn fjölskyldumeðlimur Kimmich var að látast og er hann nú staddur við hlið fjölskyldu sinnar. Félagið biðlar til stuðningsmanna að gefa honum frið til þess að syrgja en ekki er tekið fram hver tengsl Kimmich var við fjölskyldumeðliminn.

Þetta er áfall fyrir liðið þar sem Kimmich hefur verið einn af lykilmönnum liðsins síðan hann fór þangað árið 2015. Hann hefur spilað yfir 500 leiki fyrir liðið og skorað í þeim 47 mörk.

Liðin mættust í deildakeppninni á síðasta ári og endaði leikurinn með 3-1 sigri Arsenal. Sá leikur var spilaður á Emirates Stadium, heimavelli Arsenal, og getur því Bayern München hefnt sín á þeim leik í kvöld.

Arsenal er í betri stöðu fyrir leikinn með fullt hús stiga þar sem liðið er búið að vinna bæði Napoli og Lille. Bayern München hefur spilað gegn báðum norsku liðunum í Meistaradeildinni en það gekk ekki eins og liðið hefði vonað.

Bayern vann Bodø/Glimt á heimavelli í fyrstu umferðinni en í annarri umferðinni fór liðið til Stavangurs þar sem liðið spilaði gegn Viking. Þar endaði Michael Olise á því að fá tvö gul spjöld og þar með rautt spjald í leiknum og verður því í leikbanni í dag. Það eru því stórir leikmenn sem eru ekki klárir hjá þýsku meisturunum gegn sterku liði Arsenal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×