Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 21. október 2026 14:02 María Hjálmtýsdóttir, formaður Félags kynjafræðikennara, segir nauðsynlegt að efla kynfræðslu og taka á ofbeldi í kynlífi. Mun algengara er að yngri konur en eldri séu beittar kyrkingartaki í kynlífi án samþykkis og kennari segir sláandi hversu útbreidd sú skoðun sé orðin að ofbeldi sé eðlilegur fylgifiskur kynlífs. Nauðsynlegt sé að bregðast við með fræðslu.
Þúsundir krefjast þess að óháð útekt verði gerð á meðferð kynferðisofbeldismála eftir umdeildan dóm Landsréttar þar sem karlmaður var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. Í rökstuðningi dómsins er vísað til samskipta fólksins á Instagram og talið að af þeim mætti ráða að konan hafi gert sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Í ákæru er því meðal annars lýst að maðurinn hafi tekið konuna hálstaki, slegið hana og þrýst hné sínu á bringu hennar. Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, áverka á höfði, tognun í hálsi og öxl og heyrnartap. Edda Björk Þórðardóttir, dósent í faraldsfræði og annar af aðalhöfundum rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna, ræddi málið í Bítinu og fór meðal annars yfir það hversu algengt sé orðið að þrengt sé að öndunarvegi kvenna í kynlífi án samþykkis. „Í okkar rannsókn er þetta þrefalt algengara meðal yngri kvenna en eldri kvenna þannig það er að verða einhver breyting þegar kemur að birtingarmyndum kynferðisofbeldis,“ sagði Edda. Allir séu að gera þetta María Hjálmtýsdóttir, formaður Félags kynjafræðikennara og kennari við Menntaskólann í Kópavogi, segir dóm Landsréttar óskiljanlegan og sláandi hversu algengt sé orðið að kyrkingartaki sé beitt meðal ungmenna. „Þau segja að allir séu að gera þetta og manni bregður bara. Sextán til sautján ára krakkar eru að segja að þetta sé eitthvað sem fólk er að gera þegar það er að sofa saman í fyrsta skipti. Ég talaði líka við konur um tvítugt þar sem heilu vinahóparnir þekktu þetta.“ Verið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi. „Þau sem vinna með þolendum kynferðisofbeldis á öllum aldri sjá áhrif klámsins svo skýrt og við vitum það alveg að þarna er eitthvað búið að breytast. Krakkarnir okkar sem eru að byrja í samböndum og að byrja að stunda kynlíf og unga fólkið sem er að kynnast einhverjum nýjum og að fara að sofa hjá, þau eru í bara ákveðinni hættu. Leggja af stað út í lífið sem kynverur með hugmyndir um ofbeldi sem einhvern náttúrulegan fylgifisk kynlífs.“ María er meðal þeirra sem kom að vitungarvakningu sem lögregla og ýmis samtök stóðu fyrir í sumar um hættuna sem fylgir kyrkingartaki. Hún segir átak duga skammt, nauðsynlegt sé að bregðast við þróuninni af festu. „Það þarf að setja þetta inn í skólakerfið markvisst. Það þarf að fræða krakka um þetta í kynfræðslu sem öll ættu að fá. Því fyrr, því betra myndi ég segja.“
Kynferðisofbeldi Dómsmál Tengdar fréttir Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af nauðgun í Landsrétti. Hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun. 16. október 2026 08:45 Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Réttargæslumaður konu sem slasaðist alvarlega eftir að hafa farið á fund við karlmann til að stunda kynlíf er verulega hissa á viðsnúningi í málinu fyrir íslenskum dómsmálum. Hún segir mikilvægt að ríkissaksóknari sæki um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. 17. október 2026 16:49 Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Verkefnastjóri við Háskóla Íslands segir dómarana tvo sem sýknuðu manninn í mótsögn við eigin rökstuðning og hafi varpað ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konuna. 19. október 2026 14:03 BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli BDSM á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum og fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar í nýbirtum sýknudómi þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi. 19. október 2026 12:32 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Sjá meira
Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af nauðgun í Landsrétti. Hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun. 16. október 2026 08:45
Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Réttargæslumaður konu sem slasaðist alvarlega eftir að hafa farið á fund við karlmann til að stunda kynlíf er verulega hissa á viðsnúningi í málinu fyrir íslenskum dómsmálum. Hún segir mikilvægt að ríkissaksóknari sæki um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. 17. október 2026 16:49
Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Verkefnastjóri við Háskóla Íslands segir dómarana tvo sem sýknuðu manninn í mótsögn við eigin rökstuðning og hafi varpað ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konuna. 19. október 2026 14:03
BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli BDSM á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum og fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar í nýbirtum sýknudómi þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi. 19. október 2026 12:32