„Þetta er ákall“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. október 2026 23:00 Anna segir myndina geta vakið fólk til umhugsunar um samfélagsmiðla. Mæður og sérfræðingar í stafrænni velferð segja sig hafa verið knúnar til þess að kalla eftir því að bandaríska kvikmyndin Social Reckoning verði sýnd hér á landi. Hætt hefur verið við sýningar myndarinnar og segja þær það sæta furðu, þörf sé á vitundarvakningu um samfélagsmiðla sem séu hannaðir til þess að vera ávanabindandi og séu skaðlegir ungmennum. „
Okkur fannst við knúnar til þess að vera með ákall og vekja þá að minnsta kosti athygli á myndinni,“ segir Anna Laufey Stefánsdóttir í samtali við Vísi. Hún birti grein á Vísi í dag ásamt Kristínu Ólöfu Grétarsdóttir undir fyrirsögninni: „Myndin sem þú mátt ekki sjá.“ Þar eiga þær við kvikmyndina The Social Reckoning í leikstjórn Aaron Sorkin sem er framhald Social Network frá 2010. Jeremy Strong kemur inn af varamannabekknum fyrir Jesse Eisenberg og fer með hlutverk Mark Zuckerberg stofnanda Facebook. Myndin fjallar um uppljóstrarann Francis Haugen sem greindi frá árið 2021 að stjórnendur Facebook, eða Meta, hefðu vitað um skaðleg áhrif samfélagsmiðla þeirra á ungmenni án þess að bregðast við og gert lítið úr því út á við. Sýna átti myndina hér þann 8. október. Samkvæmt svörum Smárabíó til Vísis í síðustu viku hætti erlendi dreifingaraðilinn Sony Pictures við að sýna hana hér vegna dræmrar aðsóknar á forsýningar. „Við Kristín höfum lengi barist fyrir aldurstakmörkunum á samfélagsmiðlum og símafríi og biðum spenntar eftir þessari mynd. Ég hef lesið bókina eftir Francis Haugen þar sem hún segir frá þessu ferli þegar hún lak þessum skjölum frá Facebook og ég held að kvikmyndin sé góð vitundarvakning um það sem raunverulega fer fram á bakvið tjöldin hjá þessum fyrirtækjum.“ Anna Laufey segir Smárabíó ekki hafa verið neitt nema samvinnufúst í málinu en ákvörðunin sé ekki í þeirra höndum. Hún vonast til þess að mögulega verði hægt að halda eins og eina sérsýningu á myndinni með því að vekja athygli á málinu. „Þetta er ákall. Við viljum fá að sjá myndina og vonum að ákallið verði til þess að hægt verði að sýna myndina, mögulega með sérsýningu.“ Sumir gætu spurt hvort það skipti einhverju máli hvort myndin sé sýnd, því þessar upplýsingar liggja allar fyrir nú þegar? „Það skiptir rosalega miklu máli því þó að allar upplýsingar liggi fyrir þá ná þær ekki athygli almennings og kvikmyndir eru góð leið til að segja sögu, svo að almenningur skilji hvað fer þarna fram á bakvið tjöldin og finni tilfinnanlega fyrir hugrekkinu sem þurfti hjá Francis Haugen til að sækja þessar upplýsingar. Það eru fleiri sem eru líklegir til að horfa á bíómyndina frekar en að leggjast yfir gögnin sem eru á netinu, það er hægt að lesa þau öll á Metainternalresearch.org.“
Bíó og sjónvarp Samfélagsmiðlar Meta Facebook Símanotkun barna Tengdar fréttir Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Bandaríska samfélagsmiðlarisanum Meta hefur verið gert að greiða sekt að andvirði 25 milljarða Bandaríkjadollara eða um þrjú þúsund milljarða króna vegna þess hvernig fyrirtækið laug um meðferð þess á gögnum notenda samfélagsmiðilsins Facebook. Um er að ræða stærstu sekt sem fyrirtækið hefur fengið. 21. október 2026 21:32 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Sjá meira
Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Bandaríska samfélagsmiðlarisanum Meta hefur verið gert að greiða sekt að andvirði 25 milljarða Bandaríkjadollara eða um þrjú þúsund milljarða króna vegna þess hvernig fyrirtækið laug um meðferð þess á gögnum notenda samfélagsmiðilsins Facebook. Um er að ræða stærstu sekt sem fyrirtækið hefur fengið. 21. október 2026 21:32