Erlent

Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju

Samúel Karl Ólason skrifar
Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un í kynningarferð nærri hlutlausa svæðinu milli Norður- og Suður-Kóreu í gær.
Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un í kynningarferð nærri hlutlausa svæðinu milli Norður- og Suður-Kóreu í gær. AP/KCNA

Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa beðið nágranna sína í norðri um að taka ekki skref sem aukið geta líkurnar á átökum ríkjanna á milli. Norður-Kóreumenn ætla sér að hefja á nýjan leik útsendingar áróðurs yfir landamærin og að auka viðbúnað við hlutlausa svæðið og hafa hótað alvarlegum afleiðingum ef afskiptum af innanríkismálum einræðisríkisins verði ekki hætt.

Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsökunar eftir að hermenn frá Suður-Kóreu særðust vegna jarðsprengju í síðasta mánuði.

Þrír hermenn særðust þegar þeir voru inni á hlutlausa svæðinu (DMZ) en Suður-Kóreumegin innan þess í síðasta mánuði. Einn þeirra virðist hafa gengið á jarðsprengju en tveir eru alvarlega særðir.

Samkvæmt Yonhap-fréttaveitu Suður-Kóreu mun standa í bréfinu að jarðsprengjunni og fleirum hafi verið komið fyrir af hermönnum frá Norður-Kóreu. Kallað verður eftir því að ráðamenn þar axli ábyrgð og opni á samskiptaleiðir til að koma í veg fyrir frekari stigmögnun.

Ráðamenn í Norður-Kóreu hafa brugðist reiðir við þessum ásökunum.

Eftir að Suður-Kóreumenn sökuðu Norður-Kóreu um að bera ábyrgð á jarðsprengjunum, sem er brot gegn vopnahléssamkomulagi ríkjanna, sendi Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un, út yfirlýsingu þar sem hún sparaði ekki stóru orðin.

Meðal annars kallaði hún ráðamenn í Suður-Kóreu glæpamenn og kvartaði yfir því að hermenn Suður-Kóreu hefðu ítrekað skotið aðvörunarskotum nærri hermönnum Norður-Kóreu. Þá sagði hún að verið væri að skoða að auka viðbúnað á landamærunum og bæta árásagetu þar. Auk þess yrði mögulega byrjað að básúna aftur áróður yfir landamærin með stórum hátölurum.

Í kjölfarið sendu Suður-Kóreumenn þau skilaboð norður að þar á bæ yrðu viðbrögðin við auknum viðbúnaði mikil.

Enn frekar voru Norður-Kóreumenn hvattir til að hætta grunnlausum kröfum sínum, hætta að senda hermenn inn á hlutlausa svæðið milli ríkjanna og að opna aftur á uppbyggileg samskipti ríkjanna á milli.

Samskipti Norður- og Suður-Kóreu þykja ekki góð um þessar mundir, þrátt fyrir yfirlýst markmið Lee Jae Myung, forseta Suður-Kóreu, um að bæta þau samskipti.

Norður-Kóreumenn hafa komið fyrir fleiri jarðsprengjum, gaddavír og skriðdrekatálmum sín megin við landamærin að undanförnu en þeir hafa þá yfirlýstu stefnu að rjúfa alfarið tengslin við Suður-Kóreu, sem Kim Jong Un einræðisherra hefur kallað „eilífðaróvin“ Norður-Kóreu.

Þá hefur spennan milli ríkjanna aukist töluvert eftir að áðurnefndir hermenn frá Suður-Kóreu særðust vegna jarðsprengju sem Suður-Kóreumenn segja að hermenn frá Norður-Kóreu hafi komið fyrir á hlutlausa svæðinu, sem er í trássi við vopnahléssamkomulag ríkjanna frá 1953.

Árið 2015 særðust tveir hermenn frá Suður-Kóreu alvarlega vegna jarðsprengju sem hermenn frá Norður-Kóreu voru sakaðir um að koma fyrir Suður-Kóreumegin á hlutlausa svæðinu, nærri varðstöð.

Þá jókst spennan milli ríkjanna verulega og var það þá þegar Suður-Kóreumenn hófu aftur að básúna áróður yfir landamæri ríkjanna með stærðarinnar hátölurum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×