Skoðun

Að­eins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg

Sveinn Ólafsson skrifar

Áform meirihlutans í Reykjavík að fara yfir rekstur Borgarbókasafns með það fyrir augum að skoða hvort fækka megi útibúum eða sameina þau skólabókasöfnum eru ekki vinsæl, miðað við umræðuna sem hefur orðið. Ástæðan er augljós. Þrátt fyrir að fulltrúar segi að tilgangurinn sé ekki að minnka þjónustu, þá trúir því ekki nokkur sála. Allir gera ráð fyrir að tilgangurinn sé að minnka kostnað, einnig kjósendur þessara flokka.

Miðað við fréttir af þessum fyrirætlunum á aðeins að skoða kostnaðarhliðina. Þannig er ekki hægt að mæla nokkurn rekstur og alls ekki almannaþjónustu. Með þeirri aðferð erum við ekki með neina almannaþjónustu, ekki lögreglu, ekki heilsugæslu, ekki kennslu og ekki neitt annað. Það þarf alltaf að meta ávinning samfélagsins af þjónustunni, og sérstaklega ávinninginn af því að hafa þjónustuna sameiginlega. Þó að teknar séu saman tölur af útlánum í bókasöfnum, þá segir það ekki til um starfsemi í bókasafni á borð við Borgarbókasafnið, sem undanfarna áratugi hefur stöðugt bætt við þjónustu umfram bókaútlán. Það er vitað að bókaútlánum fækkar, þannig að ef það verður notað sem grundvöllur, þá er niðurstaðan gefin fyrirfram.

Það er ekkert sem útilokar að reka saman skólabókasafn og almenningsbókasafn, en þetta eru tvær mismunandi tegundir þjónustu. Almenningsbókasöfn bjóða upp á margs kyns viðburði, hópavinnu og aðrar samkomur, eru oft með útlán á alls kyns hlutum og gegna mörgum hlutverkum í samfélaginu. Skólabókasöfn miðast við starfsemi grunnskólanna og þjóna því námi. Í bókasafnalögum er gert ráð fyrir að hægt sé að reka þau saman með sérstökum samningi (lög nr. 150/2012, 1. mgr. 10. gr.). Ég hef litið í tvö bókasöfn sem sameina þetta tvennt. Annað er á Vopnafirði og var sett upp í byggingu sem var hönnuð með þetta fyrir augum, með inngang úr skólanum og annan utan frá fyrir almenning, og hægt að loka inn í skólann þegar skóladegi var lokið. Ég gerði ráð fyrir að tilgangurinn þar væri að fá geta ráðið starfsfólk í að minnsta kosti eitt fullt starf í stað tveggja eða fleiri hlutastarfa. Annað dæmi um svona safn er í Úlfarsárdal, aftur sett inn í byggingu sem er hönnuð með þetta fyrir augum, með grunnskóla og sundlaug. Þar er tilgangurinn að búa til hjarta í hverfi sem er í uppbyggingu. Það er ekkert sem útilokar þetta, sé það vel gert, en það kostar yfirleitt.

Fólk veit almennt af mikilvægi lestrar til að þroskast og nýta möguleika í nútíma samfélagi, þar sem næstum helmingur vinnandi fólks er nú með háskólamenntun. Lestrarkunnátta verður ekki til af sjálfu sér og byrjar ekki daginn sem fólk byrjar í háskóla. Fyrst þarf að hafa lært að lesa, ekki bara sér til gagns, heldur einnig til ánægju.

Ef bókasöfnin væru almennt að sliga starfsemi sveitarfélaga eða skiluðu litlu til samfélagsins, þá væri þeim sjálfhætt. Íslendingar álíta það ekki. Ávinningur af af starfsemi almenningsbókasafns er með langan hala og getur varað út ævina, meðan kostnaður er reiknaður frá ári til árs. Hver er nákvæm tala um fleira fólk sem útskrifast með iðnnám eða háskólanám vegna þess að þau notuðu bókasafnið þegar þau voru yngri? Hvert er framlag bókasafnanna til að efla fólk til vinnu eða til að gera almenning betur í stakk búinn að nýta sér heilbrigðisþjónustu, eða jafnvel að komast hjá því með betra heilbrigði? Hvað með allt félagslega starfið sem safn eins og Borgarbókasafn ýtir undir með samkomum, hópavinnu og almenningsfræðslu? Hvað með tækifæri til að fá lánuð verkfæri, komast í upptökustúdíó, geta unnið með hljómborð, þrívíddarprentara, tölvubúnað eða hugbúnað sem er ekki á hvers manns færi að kaupa, eða of dýrt fyrir unglinginn til að prófa, ef ekki væri fyrir þennan aðgang? Með því að stytta afgreiðslutíma eða fækka útibúum er einfaldlega minni aðgangur. Þó að ég myndi vitna í rannsóknir sem sýna ROI, eða afrakstur af fjárfestingu til almenningsbókasafna sem sýna að allt að 6 krónur renni til baka fyrir hverja krónu sem fjárfest er í þeim, þá breytir það litlu um álit fólks. Við getum þó séð hvað myndi gerast. Það er ekki þannig að bókabúðir myndu spretta upp ef við myndum minnka þjónustu bókasafna núna. Fólk myndi einfaldlega lesa minna. Borgarstjóri hefur vísað í tölur um meiri notkun bókasafna á Norðurlöndunum, sem ég dreg ekki í efa. Meðan ég geng upp slitinn stigann á 2. hæð bókasafnsins í Spönginni, sem virðist aldrei hafa verið pússaður, hugsa ég um allt aðra og betri aðstöðu í Kaupmannahöfn, Helsinki, Osló og nærri alls staðar á Norðurlöndum, söfn sem eru sniðin til að vera vinnu- og afþreyingarstaður fyrir alla.

Höfundur er upplýsingafræðingur og stjórnsýslufræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×