Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar 26. október 2026 08:30 Mér finnst eins og allir sem ég þekki séu í bókaklúbbi. Í síðasta mánuði fór af stað Bókaklúbbur Þjóðarinnar með slagorðinu „Bókaðu stund fyrir bók,” með það að markmiði að auka lestur. Þetta er frábært framtak, en ef Menningarráð lokar eða sameinar bókasafnsútibúum, gæti orðið talsvert erfiðara að verða sér úti um þessar vel völdu bækur sem klúbburinn velur. Að sjálfsögðu snúast bókasöfn ekki eingöngu um bækur, þau eru einn af hornsteinum lýðræðisins — staðir þar sem fólk kemur saman, lærir, kynnist og uppgötvar án þess að þurfa að punga út peningum. En lýðræði krefst þátttöku og því lagði ég mitt af mörkum um helgina og kom við á bókasafninu þar sem ég fékk lánaðar nokkrar bækur sem ég mæli heilshugar með að borgarstjórnin lesi. Listinn var upphaflega lengri, en í anda hagræðingar hef ég nú skorið hann niður í eftirfarandi: 1984- George Orwell Já ég veit, þetta er augljóst val enda mjög vinsæl bók og flest eintökin í útláni. Mögulega hafa einhverjir borgarfulltrúar lesið hana nú þegar haldandi að hún væri einhverskonar handbók um hvernig nota skuli tungumálið. Tillagan sem lögð var fyrir Menningarráð og er afar umdeild er á skjön við fögur fyrirheit ráðsins um að efla bókasöfn borgarinnar og bæta þjónustu þeirra. Vonandi er þeim alvara með því að hlúa að bókasöfnunum enda er full ástæða til þess. Reykjavík er Bókmenntaborg UNESCO og því mætti ætla að borgin fjárfesti í bókmenntastarfi til þess að halda í þá nafnbót. En ef maður týnir hins vegar til helstu stykkorðin í tillöguninni — „kostnaður á hvern gest“, „breytt skipulag“, „sameining rekstrareininga“, „samnýting húsnæðis“. Þá er nokkuð ljóst að rauði þráðurinn er niðurskurður. Í sumar var útibúum safnanna lokað til skiptis og okkur var sagt að þetta væri skilvirkara svona. Nú kunna þessi sömu söfn að vera sameinuð skólabókasöfnum og okkur sagt að þetta séu framfarir. Þannig að skert aðgengi bætir sem sagt þjónustuna? Kannski er þá fáfræði styrkleiki eftir allt saman. Oliver Twist- Charles Dickens Þegar Dickens skrifaði þessa bók, rétt fyrir 1840, var læsi í Englandi undir 50%, sem gæti orðið niðurstaða Íslands í næstu PISA-könnun ef fram heldur sem horfir. Nú þegar misskipting eykst og verð á bensíni, matvöru og öðrum nauðsynjum er himinhátt hefur Dickens aldrei átt jafn mikið erindi við okkur. Fyrstu fimm æviárin skipta sköpum fyrir heilaþroska barna, og rannsóknir hafa sýnt fram á að lestur fyrir ung börn styður við málþroska þeirra og námsárangur síðar meir. Bókasöfn eru kjörinn vettvangur til að ná til þessara fyrstu lesenda. Eins og staðan er í menntamálum ættum við ekki að þurfa að standa eins og Oliver Twist biðjandi „herra minn, má ég fá meira?“ um þjónustu sem hjálpar foreldrum að styðja við nám barna sinna. The Origins of Totalitarianism- Hannah Arendt Í hverjum bókaklúbbi þarf að vera ein háleit fræðibók sem gott er að slá um sig með, en enginn í hópnum klárar í raun að lesa. Í ljósi uppgangs öfgahægriafla hér á landi og víðar í Evrópu á hún sérstaklega vel við. Arendt lýsir einmanaleika sem einni af rótum popúlískra hreyfinga. Bókasöfn eru það sem kallað hefur verið þriðja rýmið, samkomustaður utan heimilis og vinnu, og þau vinna gegn einmanaleika með því að byggja upp samfélag og tengsl. Þar geta viðkvæmir hópar fundið að þeir tilheyri, innflytjendur æft sig í íslensku, eldri borgarar setið saman og prjónað, flóttafólk fengið hlýjar móttökur og foreldrar í fæðingarorlofi lesið fyrir börnin sín. Eros the Bittersweet- Anne Carson Þetta er þó ekki tómt svartnætti. Það ríkti mikil gleði þegar Anne Carson hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Íslendingar voru auðvitað fljótir að eigna sér verðlaunahöfund sem flutti til landsins sem fullmótaður listamaður. En hvaða fræjum þarf að sá til að næsti Halldór Laxness fái að blómstra? Menning þarfnast fjárfestingar og uppskeran skilar sér ekki á einu kjörtímabili. Slíkt vex hægt og þrífst þar sem fólk fær að gera tilraunir, læra og koma saman. Í bókinni fjallar Carson um togstreituna milli þess að þrá eitthvað og að eignast það í raun. Borgarstjórnin kann að þrá jafnvægi í rekstri en þegar þau eru loks glöð með það sem þau sjá í töflureikninum er sál Reykjavíkur, menningarhúsin og fólkið sem þar blómstrar horfin. Þar sem tillögunni hefur verið slegið á frest er óljóst hvað meirihlutinn hyggst gera næst. Besta leiðin til að spyrna við fótum, þegar stöðugt er nartað í lífsgæði okkar, er að styðja bókasöfnin með því að nota þau — mæta á viðburði, læra, fara með börnin á leiksvæðið, bóka tíma í upptöku- eða hlaðvarpsverinu, nota saumavélarnar og kíkja á viðgerðarkaffi. Ekki bara einu sinni, heldur reglulega.Og síðast en ekki síst að fá bækur lánaðar. Því að fleiri lesendur þýða fleiri manneskjur með gagnrýna hugsun sem kunna að lesa á milli línanna. Höfundur er rithöfundur og meðlimur í Reykjavík Poetics. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókasöfn Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun