Viðskipti innlent

Hjúkrunar­heimili í Ný­herja­húsið

Árni Sæberg skrifar
Borgartún 37 hýsti Origo þar til að höfuðstöðvar félagsins voru fluttar í Kópavog.
Borgartún 37 hýsti Origo þar til að höfuðstöðvar félagsins voru fluttar í Kópavog. Vísir/Vilhelm

Reitum hefur borist tilkynning frá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum þess efnis að Borgartún 37 hafi verið valið í markaðskönnun um hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu en mat tilboða byggðist meðal annars á verði, stærð, staðsetningu og öryggi. Húsið hýsti um árabil upplýsingatæknifyrirtækið Nýherja, sem varð síðar að Origo.

Í tilkynningu Reita þess efnis til Kauphallar segir að tillaga Reita varðandi Borgartún 37 geri ráð fyrir að húsið verði stækkað um 700 fermetra og stærð þess verði um 7.300 fermetrar að framkvæmd lokinni. Gert sé ráð fyrir um 100 hjúkrunarrýmum í húsnæðinu.

Áætlaðar leigutekjur í tilboði Reita nemi um 440 milljónum króna á ársgrunni, en ákvörðun um endanlega samningsgerð sé háð því að samkomulag náist við FSRE um skilmála leigusamnings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×