Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar 27. október 2026 07:03 Ný skýrsla Norrænu ráðherranefndarinnar um samkeppnishæfni Norðurlandanna sýnir að við stöndum sterkt og áherslur nýrrar atvinnustefnu Íslands til 2035 ríma vel við tillögur skýrslunnar um hvernig við sækjum fram og aukum verðmætasköpun. Þegar kemur að reglubyrði fyrir atvinnulífið er Ísland þó í vanda samkvæmt skýrslunni og ljóst er að taka þarf til. Við í Viðreisn höfum lagt ríka áherslu á að ganga rösklega til verks. Með Viðreisn í ríkisstjórn er einföldun regluverks og betri opinber þjónusta við atvinnulífið í skýrum forgangi. Í atvinnuvegaráðuneytinu vinn ég að breytingum sem munu auðvelda fyrirtækjum reksturinn og bæta hag neytenda. Þar eru sameiningar stofnana og endurskoðun regluverks í forgrunni. Rekstur fyrirtækja verður einfaldaður Á dagskránni hjá mér eru breytingar á bókhaldslögum, reglum um ársreikninga og stærðarmörk fyrirtækja, ásamt breytingum á hlutafélagalöggjöf. Þetta eru allt tímabærar breytingar sem létta fyrirtækjum störfin og draga úr kostnaði þeirra við að uppfylla skyldur sínar. Í ferðaþjónustu hyggst ég vinna að einfaldara regluverki og leggja fram frumvarp þess efnis eftir áramót. Þar gildir sama leiðarljós og annars staðar í ráðuneytinu: skýr verkefni, hagkvæmur rekstur og þjónusta sem nýtist greininni. Stofnun atvinnuveganna tekur brátt til starfa Lög um Stofnun atvinnuveganna hafa verið samþykkt og ég hef skipað forstjóra til að leiða undirbúninginn. Stofnunin tekur til starfa 1. janúar 2027 við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Jafnframt flyst matvælaeftirlit heilbrigðisnefnda sveitarfélaga til nýju stofnunarinnar. Með því skapast grundvöllur fyrir samræmdu eftirliti og betri þjónustu um allt land. Á bak við þetta verkefni liggur áralöng umræða og fjöldi greininga. Nú hefur verið tekin ákvörðun og undirbúningur starfseminnar er kominn af stað. Ég legg áherslu á að ný stofnun byggi á þeirri þekkingu sem fyrir er á starfsstöðvum um land allt og nýti sameiginlega krafta til að bæta þjónustuna. Framundan eru fleiri sameiningar á stofnunum sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið, þar sem betri þjónusta og bætt eftirlit verður leiðarljósið. Ríkisstjórnin vinnur að einföldun um allt kerfið Við höfum staðið að breytingu og einföldun eftirlits sem birtist m.a. í lagasetningu um að leggja heilbrigðisnefndir niður frá næstu áramótum. Breytingarnar fela í sér fækkun eftirlitsaðila á sviði matvæla, hollustuhátta og mengunarvarna úr ellefu í tvo og samræmi í við framkvæmd eftirlits um land allt. Atvinnulífið hefur lengi kallað eftir þessum umbótum. Starfsleyfisskyldu hefur verið létt af 16 flokkum atvinnurekstrar og skráning komið í staðinn. Þá hefur almenn krafa um fjögurra vikna auglýsingatíma vegna tiltekinna starfsleyfa verið felld brott, sem getur flýtt afgreiðslu um allt að fjórar vikur. Búið er að taka til hendinni í orkumálum og Alþingi hefur samþykkt breytingar á tólf lagabálkum til að einfalda regluverk orkumála, meðal annars með heimild til að sameina afgreiðslu mismunandi leyfa í eina leyfisveitingu. Þessi einföldun heldur áfram í vetur. Birt hafa verið frumvarpsdrög um einfaldari skipulagsferla í samráðsgátt, meðal annars með tillögu um að stytta lágmarksathugasemdafrest vegna breytinga á gildandi skipulagi úr sex vikum í fjórar. Þar er frekari einföldun í undirbúningi. Einföldun lýkur aldrei Einföldun regluverks er eins og tilektin heima - hún klárast aldrei heldur þarf að sinna henni reglulega. Í anda þess höfum við komið á samráðshópi ríkisins og aðila vinnumarkaðarins. Þar sitja fulltrúar forsætisráðherra, fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra ásamt fulltrúum SA, SI, SVÞ, FA og ASÍ. Hópurinn á að greina tækifæri til frekari einföldunar og leggja til farveg fyrir varanlegt samráð við atvinnulífið um einföldun. Viðreisn mun áfram beita sér fyrir einföldun í núverandi ríkisstjórn og við erum hvergi nærri hætt. Höfundur er atvinnuvegaráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hanna Katrín Friðriksson Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun