Skoðun

Takk fyrir, ferða­maður!

Björgvin Jóhannesson skrifar

Í áratugi var þróunin á Íslandi á einn veg. Ungt fólk flutti af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins í leit að menntun, atvinnu og betri framtíð. Margir sneru aldrei aftur. Atvinnutækifærin heima fyrir voru fá, atvinnulífið einsleitt og byggðirnar veiktust smám saman.

Sjálfur ólst ég upp á Höfðabrekku, rétt utan við Vík í Mýrdal. Ég þekki því vel hvernig staðan var og hversu takmarkaðir möguleikarnir voru fyrir ungt fólk sem vildi byggja framtíð sína í heimabyggð. Ferðaþjónustan hefur gjörbreytt þessari mynd.

Í Vík hefur orðið mikil uppbygging, störfum fjölgað, fjárfestingar aukist og samfélagið eflst. Þar sem áður voru takmörkuð tækifæri er nú fjölbreytt atvinnulíf og vaxandi byggð. Ferðaþjónustan hefur ekki aðeins skapað störf heldur gefið fólki raunverulegt val um hvar það vill búa.

Og Vík er langt frá því að vera eina dæmið.

Á Selfossi hefur uppbygging ferðaþjónustu átt þátt í að skapa forsendur fyrir nýjum miðbæ sem hefur gjörbreytt ásýnd bæjarins. Þar hafa risið veitingastaðir, verslanir og fjölbreytt þjónusta sem nýtist jafnt heimamönnum sem ferðafólki. Á Húsavík hefur hvalaskoðun og tengd starfsemi skapað störf, laðað að fjárfestingar og styrkt bæinn sem áfangastað.

Svipaða sögu má segja víða um land. Ferðaþjónustan hefur blásið lífi í samfélög sem áður glímdu við fólksfækkun og takmarkaða atvinnumöguleika.

Þetta er byggðastefna í verki. Ekki á pappír, heldur í raunverulegum störfum, fyrirtækjum og fjölskyldum sem sjá framtíð sína á landsbyggðinni.

Gagnrýnisraddir

Þrátt fyrir þetta heyrast reglulega raddir sem tala niður ferðaþjónustuna, afgreiða hana sem lágframleiðnigrein og telja rétt að halda aftur af vexti hennar.

Það er undarleg nálgun gagnvart einni mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar.

Ferðaþjónustan er ekki einhæf atvinnugrein. Hún spannar allt frá afþreyingu og veitingarekstri til sérhæfðrar þjónustu, tæknilausna, stjórnunar og umfangsmikilla fjárfestinga. Hún skapar störf fyrir fólk með ólíka menntun, reynslu og hæfileika. Fáar atvinnugreinar bjóða upp á sambærilega fjölbreytni.

Þá má ekki gleyma framlagi hennar til samfélagsins. Áætlað hefur verið að skattspor ferðaþjónustunnar nemi um 200 milljörðum króna á ári. Það eru fjármunir sem standa undir sameiginlegum innviðum og opinberri þjónustu um allt land.

Samt virðist stundum auðveldara að ræða hvernig megi skattleggja greinina enn frekar en hvernig megi styrkja hana.

Auðvitað eigum við að gera kröfur um aukna framleiðni, nýsköpun og verðmætasköpun. En það gerum við ekki með því að íþyngja fyrirtækjum stöðugt meira eða draga úr fjárfestingarhvata þeirra. Við gerum það með því að skapa stöðugt rekstrarumhverfi, efla innviði og hvetja til framfara. Það er ekki skynsamleg atvinnustefna að veikja eina af helstu stoðum atvinnulífsins og kvarta síðan yfir skorti á verðmætasköpun.

Öflug ferðaþjónusta í þágu framtíðar Íslands

Ferðaþjónustan er ekki aðeins atvinnugrein þeirra sem starfa beint við hana. Hún er hluti af forsendunum fyrir því að fólk geti búið áfram um allt land og séð þar framtíð sína. Hún hefur jafnframt verið mikilvægur þáttur í því að efla flugsamgöngur til og frá Íslandi og auka tengsl landsins við umheiminn. Áhrif hennar ná því langt út fyrir mörk þeirra fyrirtækja sem sinna ferðamönnum. Á bak við hana standa einstaklingar og fjölskyldur sem hafa tekið áhættu, byggt upp fyrirtæki, skapað störf og fjárfest í samfélögum sínum.

Þegar talað er um að halda aftur af greininni er því ekki aðeins verið að ræða afkomu fyrirtækja. Það er líka verið að ræða framtíð byggðarlaga og möguleika næstu kynslóða til að velja sér búsetu.

Vissulega fylgja vexti ferðaþjónustunnar áskoranir. Við þurfum að stýra álagi, vernda náttúruna, byggja upp innviði og tryggja ábyrga þróun. En lausnin er að takast á við þær áskoranir, ekki að gera lítið úr atvinnugreininni sem hefur skapað svo mörg tækifæri.

Við mótum sjálf ímynd ferðaþjónustunnar

Það er rík ástæða fyrir okkur öll til að standa með íslenskri ferðaþjónustu og styðja við heilbrigða þróun hennar, þannig að hún geti áfram skapað störf, aukið verðmætasköpun og styrkt samfélög um allt land.

Ímynd íslenskrar ferðaþjónustu mótast nefnilega ekki aðeins af því hvernig við kynnum landið erlendis. Hún mótast líka af því hvernig við sjálf tölum um hana.

Við ættum að vera stolt af þeim árangri sem náðst hefur, án þess að loka augunum fyrir því sem betur má fara. Í stað þess að kvarta yfir því að fá ekki laust borð á veitingastað ættum við frekar að fagna því að eftirspurn sé næg til að halda úti veitingarekstri á staðnum.

Og þá hugsa ég aftur heim í Vík.

Hvernig væri samfélagið þar í dag án ferðaþjónustunnar? Hvernig liti miðbær Selfoss út? Hvaða tækifæri hefðu skapast á Húsavík?

Við vitum ekki svörin með vissu. En eitt er ljóst: Ferðaþjónustan hefur breytt framtíð fjölda íslenskra byggðarlaga til hins betra.

Áður en við tölum niður ferðaþjónustuna ættum við því að spyrja okkur einnar spurningar: Hvar værum við án hennar?

Takk fyrir, ferðamaður!

Höfundur er formaður FHG (Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu).




Skoðun

Sjá meira


×