Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar 27. október 2026 12:03 Flestir stjórnendur og stjórnmálamenn þekkja mikilvægustu PR-regluna: Ef þér veður á, gerir mistök o.s.frv., gildir að SEGJA SATT FRÁ og GERA ÞAÐ STRAX! Stjórnarformaður Landsvirkjunar, Brynja Baldursdóttir og Daði Már fjármálaráðherra féllu rækilega á þessu einfalda prófi aðspurð um ástæður þess að Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins til 17 ára, kaus að segja upp. Þvert á þessa alþekktu reglu reyndu þau bæði að gera lítið úr málinu og breiða yfir raunverulegan sannleika með hálfkveðnum vísum og hroka. Þannig sagði stjórnarformaðurinn starfslok Harðar „fyrr en ætlað var“ hvað sem það á að þýða! og gaf í skyn að Hörður, sem var forstjóri Marels 1999-2009, kynni ekki að vinna með „faglegum“ stjórnarmönnum eins og henni sjálfri og nýrri stjórn fyrirtækisins. Þá sagði ráðherrann á Alþingi einhvern ágreining hafa verið um „stjórnarhætti“ og „nálgun um ákvarðanatöku“ en enginn efnislegur ágreiningur hefði verið um annað. Hann fullyrti að þar með væri „öll sagan sögð“. Valdmörkin Við vitum hvert framhaldið varð og líka hvað mun koma næst!Fjármálaraðherrann og stjórnarformaðurinn eru þegar byrjuð að bakka og hafa orðið að kyngja því – þó ekki vilji þau viðurkenna mistökin – að ágreiningurinn hafi snúist um valdmörk forstjóra og stjórnar. Þannig hefur stjórnin fundað reglulega án forstjórans, sem er stórundarlegt þar sem lög Landsvirkjunar (6. gr.) tilgreina nákvæmlega hvar valdmörkin liggja: „Stjórn og forstjóri fara með stjórn fyrirtækisins.“ Og: „Forstjóri skal eiga sæti á stjórnarfundum.“ Stjórn og forstjóri fara sem sagt SAMAN með stjórn Landsvirkjunar og vettvangur samstarfsins eru stjórnarfundir. En áfram reyna bæði ráðherra og stjórnarformaður að gera lítið úr þessum fundum stjórnar án forstjórans. Þetta hafi bara verið hádegisverðarfundir haldnir fyrir stjórnarfund til að fara yfir efni fundarins, segir formaðurinn og ráðherrann segir ríkið ekki geta bannað þessu fólki eða öðrum að hittast yfir smábita! Þessi flótti frá sannleikanum mun halda áfram – það kennir sagan okkur. Smám saman mun þó fleira og fleira koma í dagsljósið, togað uppúr fólki með töngum, engum til sóma. Það kennir sagan okkur líka. Það er einfaldlega ekki hægt að þegja um efnislegan ágreining sem bitnar á stjórnun stærsta og mikilvægasta fyrirtækis í eigu þjóðarinnar. Snakki um stjórnarhætti og matarbita verður ekki trúað. Og ekki bætir úr skák að fjármálastjóri Landsvirkjunar til fjölda ára hefur einnig ákveðið að fara frá fyrirtækinu. Spurningum fjölgar Eins og staðan er geta menn aðeins getið sér til um raunverulegar ástæður: Hvað var ákveðið, óbókað, á lokuðum fundum stjórnar? Var þar rætt um arðgreiðslur til ríkisins? Óskaði ráðherrann eftir hærri arðgreiðslu til að tryggja núllið? Var þar rætt um stærsta og mikilvægasta efnahagsmál Íslands nú um stundir – endursamninga við ALCOA eftir 20 ára óbreyttan samning um lægsta raforkuverð í heimi? Var þar fjallað um viðbrögð við áfellisdómi Samkeppniseftirlitsins sem krafði Landsvirkjun um 1,4 milljarða í sekt, en var gert afturreka í síðustu viku? Var rætt um að selja hluta Landsvirkjunar? Hvers vegna var forstjórinn látinn víkja af bókuðum fundum stjórnar? Spurningarnar eru margar og þeim mun fjölga eftir því sem tíminn líður. Ég átti sæti í stjórn Landsvirkjunar í 14 ár, skipuð af ráðherrum margra flokka og eins og aðrir stjórnarmenn aðeins bundin af því að vinna að hagsmunum fyrirtækisins (5. gr.). Rétt er að benda á að ákvæðum um skyldur og réttindi stjórnarmanna hefur ekki verið breytt eftir pólitíska skipun ráðherrans á „faglegum“ stjórnarmönnum. Stjórnarfundir án forstjóra og annarra starfsmanna Landsvirkjunar hafa verið haldnir einu sinni á ári til að meta árangur stjórnarstarfanna og gera tillögur um launamál forstjóra og stjórnarmanna. Þessir fundir voru bókaðir og í fundaráætlun, undirbúnir af starfsmönnum fyrirtækisins. Þetta eru einu stjórnarfundir Landsvirkjunar sem ég hef setið án forstjóra. Og ef þannig vildi til að einhverjir stjórnarmenn fengju sér bita fyrir eða eftir stjórnarfund, þá var það í matsal með starfsmönnum. Eigendurnir eiga betra skilið Starfsemi og rekstur Landsvirkjunar er í uppnámi og traust til fyrirtækisins hefur borið skaða, ekki vegna uppsagnar Harðar og fjármálastjórans, heldur vegna þess hvernig ráðherra og stjórnarformaður brugðust við í aðdraganda og eftirleik uppsagnanna. Það er óþarfi að ausa Hörð Arnarson lofi eins og bæði gera milli þess sem þau væna hann um lygar – þjóðin veit hvaða árangri Hörður hefur skilað á 17 árum. Það er hins vegar ástæða til að óttast framhaldið, því fjármálaráðherra sjálfur virðist standa að baki þessum nýju „stjórnarháttum“ og hefur lýst fullu trausti á stjórn Landsvirkjunar vegna þeirrar gagnrýni sem hún hefur hlotið eftir uppsögn Harðar. Ráðherrann lýsti fjálglega og af ógleymanlegum hroka þeim nýju vinnubrögðum að losa um tengingu við Alþingi, sem áður tilnefndi í stjórnina, en skipa þess í stað sjálfur einhendis „faglegri“ stjórnarmenn. Nú er komið á daginn að nýrri stjórn er ætlað að vera ríki í ríkinu, hafinni yfir forstjóra og lög um Landsvirkjun og jafnvel án tengsla við ráðuneytið, sem hefur að sögn hafnað því að funda með forstjóra um mikilvæg mál. Þetta setur stefnu ráðherrans gagnvart ríkisfyrirtækjum almennt í nýtt ljós. Þjóðin sem er eigandi Landsvirkjunar á rétt á því að ráðamenn segi SATT OG RÉTT FRÁ. Og þjóðin á skilið betri umsjónarmenn með dýrmætri eign sinni en þá sem nú eru við völd. Höfundur er fyrrverandi ráðherra og þingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun