Skoðun

Af­föll í lax­eldi

Kristján Ingimarsson skrifar

Basl er búskapur

Heilsa og velferð dýra er grundvallaratriði í allri matvælaframleiðslu, hvort sem um er að ræða ræktun dýra á landi eða í vatni. Afföll eru ein af áskorunum slíkrar starfsemi og markmið allra ábyrgra framleiðenda er að halda þeim í lágmarki. Enginn bóndi vill missa bústofninn sinn og á það jafnt við um ræktun spendýra, fiska og fugla. Afföllin hafa áhrif á velferð fiska, afkomu fyrirtækja, umhverfislega sjálfbærni og viðhorf almennings til atvinnugreinarinnar. Dagleg störf starfsfólks í fiskeldi snúa öll að því að tryggja heilsu og velferð laxanna, hverjar sem áskoranirnar kunna að vera, í samvinnu við sérfræðinga í heilbrigði og velferð dýra, ásamt dýralæknum.

Íslenskt laxeldi þarf að uppfylla stranga upplýsingagjöf um afföll. Matvælastofnun birtir reglulega upplýsingar sem byggja á mánaðarlegum gögnum frá eldisfyrirtækjum og sýna meðal annars lifun eldislaxa á vaxtarskeiði í sjó. Fiskeldi sætir oft harðari gagnrýni en aðrar greinar matvælaframleiðslu en íslenskt laxeldi er eina búgreinin sem birtir opinberlega tölur um afföll í hverjum mánuði. Þetta gegnsæi er mikilvæg forsenda eftirlits, umbóta og upplýstrar umræðu.

Við mat á afföllum í laxeldi er mikilvægt að hafa í huga að líffræði og æxlun Atlantshafslaxins er mjög frábrugðin því sem þekkist hjá spendýrum og fuglum í hefðbundnum landbúnaði. Því þarf að gæta þess að samanburður á afföllum byggist á sambærilegum forsendum og mælikvörðum.

Haf og vatn eru óvægið umhverfi og það endurspeglast í því hversu lítið hlutfall villtra laxa lifir frá hrognastigi til fullorðinsára en hjá villtum laxi geta afföllin verið yfir 98% frá klaki þar til hann gengur til sjávar. Náttúran gerir ráð fyrir miklum afföllum hjá fiskum en bætir það upp með fjölda afkvæma sem fæðast. Laxahrygna getur framleitt allt að 10.000 hrogn í einu, eða meira en 1.000 hrogn fyrir hvert kíló líkamsþyngdar. Til samanburðar getur ær til dæmis eignast tvö lömb á ári í allt að átta ár og hæna getur verpt um 250 eggjum á ári. Þessi líffræðilegi munur skýrir meðal annars hvernig laxinn hefur aðlagast náttúrulegum aðstæðum. Hann breytir þó ekki þeirri ábyrgð sem hvílir á eldisfyrirtækjum að tryggja fiskunum sem bestar aðstæður og draga úr afföllum með öllum tiltækum ráðum.

Ástæðan fyrir þessu er náttúruleg þróun í þúsundir ára sem gerir laxinum kleift að mæta mjög miklum náttúrulegum afföllum á öllum stigum lífsferilsins. Við samanburð á afföllum er mikilvægt að byggja á samræmdum mælikvörðum og taka mið af lífsferli fisksins, aðstæðum og þeim áhættuþáttum sem hafa áhrif á lifun. Samkvæmt tölum MAST voru mánaðarleg afföll að meilatali 1,8 á síðasta ári. Slíkar upplýsingar eru mikilvægar til að meta þróunina og árangur þeirra aðgerða sem gripið er til.

Eitt mikilvægasta verkefni íslenskra eldisfyrirtækja er að draga úr afföllum sem eru enn of mikil. Það er fyrst og fremst spurning um velferð fiskanna, en jafnframt ábyrga nýtingu auðlinda, sjálfbærni og rekstrarlegrar hagkvæmni, enda er hver fiskur sem tapast tjón fyrir fyrirtækin.

Áskoranir og ástæður affalla í Noregi og Skotlandi eru margvíslegar en þeim hefur tekist að draga úr afföllum undanfarin ár og með aukinni þekkingu og tæknibreytingum er útlit fyrir að við fetum sama veg og aðrar þjóðir.

Þær áskoranir sem íslenskt fiskeldi býr við og hafa valdið mestum afföllum eru sjúkdómar, skaðlegar lífverur og líffræðilegir þættir . Fyrirtækin hafa brugðist við með ýmsum hætti og hluti af þeirri vegferð er að fá inn ný hrogn sem skila betri árangri í seiðaeldi auk þess sem framfarir í seiðaeldi hafa miðað að því að framleiða sterkari seiði með aukinni lifun. Meiri þekking á sjúkdómum og skaðlegum lífverum mun líka skila sér í betri lifun hjá laxi í sjó á næstu misserum. Samhliða þessu er mikilvægt að vakta enn betur umhverfisaðstæður og efla áhættumat og forvarnir, svo að hægt sé að greina hættur fyrr, bæta viðbragðsgetu og draga þannig úr líkum á alvarlegum afföllum.

Það að afföll eigi sér náttúrulegar orsakir þýðir ekki að þau séu óhjákvæmileg en það þýðir heldur ekki að hægt sé að koma í veg fyrir þau öll. Því er mikilvægt að byggja umfjöllun um afföll á staðfestum orsökum, raunhæfu mati á fyrirbyggjandi aðgerðum og þeim náttúrulegu takmörkunum sem fylgja líffræðilegri framleiðslu.

Laxeldi hefur vaxið hratt hér við land undanfarin ár og samhliða þeirri þróun hefur byggst upp aukin þekking og reynsla innan greinarinnar. Með auknum rannsóknum, tækniframförum og öflugri áhættustýringu mun skapast sterkar forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu greinarinnar sem tryggir ekki eingöngu frekari framleiðslu heldur einnig hvernig tekst til að bæta velferð fiska, draga úr affölllum og nýta auðlindir með ábyrgum hætti.

Höfundur er öryggis- og fræðslustjóri Kaldvíkur.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×