Innlent

Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi

Árni Sæberg skrifar
Höskuldur Þór Þórhallsson og Magnús Traustason. Til að freista þess að fá niðurstöðu Úrskurðarnefndar lögmanna hnekkt þurfti Höskuldur að fara í mál við Magnús.
Höskuldur Þór Þórhallsson og Magnús Traustason. Til að freista þess að fá niðurstöðu Úrskurðarnefndar lögmanna hnekkt þurfti Höskuldur að fara í mál við Magnús. Vísir

Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þór Þórhallsson þarf að sætta sig við að sitja uppi með áminningu sem Úrskurðarnefnd lögmanna veitti honum vegna ágreinings um skipti dánarbús. Landsréttur kvað upp dóm þess efnis í gær en Höskuldur hefur þegar sagt að hann muni fara með málið alla leið í Hæstarétt þurfi hann þess.

Vísir fjallaði á sínum tíma ítarlega um áminningu Höskuldar en hann var skipaður skiptastjóri í opinberum skiptum á dánarbúi konu í júlí árið 2020. 

Landsréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands í máli Höskuldar á hendur Magnúsi Traustasyni, einum erfingja konunnar. Höskuldur stefndi Magnúsi til þess að fá áminningu úrskurðarnefndarinnar hnekkt, líkt og lög gera ráð fyrir. Niðurstaða héraðsdóms er reifuð í fréttinni hér að neðan:

Í dómi Landsréttar segir að niðurstaða nefndarinnar á því að Höskuldur hefði brotið gegn lögum um lögmenn með því að hafa ekki staðið skil á erfðafjárskatti fyrr en tæplega ári eftir samþykki endanlegrar úthlutunargerðar dánarbús móður Magnúsar. 

Krafa Höskuldar um ógildingu úrskurðarins hafi annars vegar byggst á því að nefndin hefði átt að vísa málinu frá og hins vegar að hann hafi verið efnislega rangur. 

Vegna þess fyrrnefnda taldi Landsréttur að nefndin hefði verið bær til að taka kvörtun hans til meðferðar þar sem ótvírætt hefði verið að Magnús hefði lögvarða hagsmuni af því að bera kvörtunina fram þar sem hún varðaði meðal annars ætlaða vanrækslu Höskuldar á skilum skattsins sem Magnús og aðrir erfingjar báru persónulega ábyrgð á. 

Þá taldi Landsréttur að nefndin hefði haft lögbundna heimild til að áminna Höskuld fyrir ranga upplýsingagjöf þar sem hinar röngu upplýsingar vörðuð beinlínis þá kvörtun sem nefndin hafði til meðferðar og voru þess eðlis að geta haft áhrif á niðurstöðu hennar. 

Varðandi athugasemdir Höskuldar sem lutu að því að nefndin hefði ekki gefið honum kost á að tjá sig um fyrirhugaða áminningu á grundvelli hinnar röngu upplýsingagjafar tók Landsréttur fram að gögn málsins hefðu borið með sér að hann hefði ekki veitt nefndinni réttar upplýsingar um greiðslutíma skattsins og því fyrirsjáanlegt að andmæli hans hefðu haft enga eða mjög takmarkaða þýðingu. Þá var ekki fallist á með Höskuldi að tiltekið ákvæði laga um erfðafjárskatt hefði þýðingu í málinu. 

Hinn áfrýjaði dómur var því staðfestur um sýknu Magnúsar af öllum kröfum Höskuldar. Höskuldi var gert að greiða Magnúsi 1,2 milljónir króna í málskostnað fyrir Landsrétti.


Tengdar fréttir

„Ég er rasandi hissa á þessu“

Magnús Traustason er afar hissa á því að þurfa að grípa til varna í sérdeilis sérkennilegu máli. Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður segir að svona séu lögin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×