Bláa lónið á markað í nóvember Árni Sæberg skrifar 30. október 2026 13:17 Sigríður Margrét Oddsdóttir er forstjóri Bláa lónsins og Grímur Sæmundsen er stjórnarformaður, stofnandi og langsamlega stærsti eigandi félagsins. Bláa lónið Á hluthafafundi Bláa Lónsins hf. í dag var formlega samþykkt að efna til almenns hlutafjárútboðs og óska eftir töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hluthafar samþykktu einnig kaupréttaráætlun fyrir allt fastráðið starfsfólk samstæðunnar.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að starfsemi Bláa Lónsins hafi vaxið verulega undanfarin ár. Skráning á aðalmarkað Nasdaq Iceland sé stór áfangi í sögu Bláa Lónsins. Skráning muni styrkja og breikka hluthafahópinn og gefa almenningi, fagfjárfestum og starfsfólki tækifæri til að eiga hlut í einu þekktasta fyrirtæki landsins. Stefnt sé að almennu hlutafjárútboði og skráningu í nóvember. Starfsmenn verði hluthafar Kaupréttaráætlunin sem samþykkt var nái til alls fastráðins starfsfólks Bláa Lónsins hf. og dótturfélaga þar sem félagið á yfir 90 prósent hlut í, alls um 700 einstaklinga. Hver kaupréttarhafi öðlist rétt til að kaupa hluti í félaginu fyrir allt að 1,5 milljónir króna einu sinni á ári í fimm ár, á árunum 2028 til 2032, eða samtals fyrir allt að 7,5 milljónir króna. „Starfsfólkið okkar er sá hópur sem skapar þá einstöku upplifun og þær einstöku vörur sem viðskiptavinir okkar um allan heim þekkja. Það skiptir okkur miklu að þegar félagið tekur þetta skref inn á markað geti allt fastráðið starfsfólk tekið þátt í vextinum fram undan,“ er haft eftir Hildi Þórisdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs Bláa Lónsins. Markmið kaupréttarkerfisins sé að halda í og laða að framúrskarandi starfsfólk og gefa því hlutdeild í árangri félagsins. Áætlunin sé gerð í samræmi við ákvæði laga um tekjuskatt og verði borin undir Ríkisskattstjóra til staðfestingar áður en gengið verður frá kaupréttarsamningum við starfsfólk.
Bláa lónið Ferðaþjónusta Kauphöllin Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira