Handbolti

Yfir­burðir Hauka sem tapa ekki leik

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Aronsson heldur áfram að gera frábæra hluti í Olís-deildinni.
Freyr Aronsson heldur áfram að gera frábæra hluti í Olís-deildinni. vísir/Diego

Hverjir ætla að stöðva Hauka? Það er erfitt að sjá nú þegar liðið hefur unnið fyrstu níu leiki sína í Olís-deild karla í handbolta. Í kvöld urðu KA-menn fyrir barðinu á Haukaliðinu á Akureyri þar sem gestirnir fögnuðu 36-27 sigri.

KA hefði með sigri getað minnkað forskot Hauka í tvö stig í toppbaráttunni en þess í stað eru Haukar núna með 18 stig, fjórum á undan Val og sex á undan KA sem situr í 3. sæti.

KA-menn höfðu unnið frábæra sigra gegn FH og Aftureldingu í síðustu leikjum en máttu sín lítils gegn Haukum í kvöld.

Haukar voru heilum sjö mörkum yfir í hálfleik, 19-12, og KA náði aldrei að saxa almennilega á forskotið í seinni hálfleiknum. Munurinn varð mestur tíu mörk og á endanum var hann níu mörk, 36-27.

Freyr Aronsson og Össur Haraldsson fóru á kostum eins og áður á leiktíðinni en Freyr skoraði 14 mörk úr 17 skotum, þar af fjögur af vítalínunni, og Össur nýtti öll níu skot sín, þar af eitt af vítalínunni. Aron Rafn Eðvarðsson var svo góður í marki Hauka og skráður með 14 varin skot hjá HB Statz, eða 37% markvörslu.

Dagur Árni Heimisson var markahæstur hjá KA með 10 mörk úr 15 skotum, þar af fjögur úr vítum, og Dagur Gautason kom næstur með fimm mörk úr sex skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×