Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Björn Berg skrifar 3. nóvember 2026 07:02 Góð ávöxtun er að sjálfsögðu mikilvæg en þegar safnað er fyrir útborgun í fyrstu íbúð tökum við tillit til fleiri þátta. Fyrstu íbúðakaupin eru ekki aðeins nauðsynleg fjárfesting heldur er afar mikilvægt að þau heppnist vel. Því þarf að vanda bæði undirbúninginn og sparnaðinn. Þegar hinar ýmsu hliðar sparnaðarins hafa verið metnar ætti að verða auðveldara fyrir ykkur að velja það sem syni þínum hentar best. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Tímalengd sparnaðarins Aðspurður um hentuga ávöxtunarkosti svara ég yfirleitt um hæl „hvenær stendur til að nota þessa peninga?“. Það er sennilega mikilvægasta spurningin í þessu samhengi. Almennt má nefnilega segja að því lengri tíma sem við höfum til að spara, þeim mun fleiri valkostir (og oft betri) standi okkur til boða. Sem dæmi um slíkt má nefna að ef til stendur að kaupa íbúð á næstu örfáu misserum er sennilega ekki við hæfi að fjárfesta í kostum sem bera mikinn upphafskostnað. Sömuleiðis gæti veruleg og sennilega óréttlætanleg áhætta fylgt því að velja kosti sem sveiflast umtalsvert í verði, svo sem þegar stór hluti sparnaðar liggur í hlutabréfum. Því er langsamlega algengast að skammtímasparnaður sé geymdur á bankabókum eða í lausafjársjóðum. Eftir því sem lengra er í fasteignakaupin verða fleiri kostir raunhæfir. Þegar sparað er til langs tíma er algengt að stillt sé upp vel dreifðu eignasafni, eða sparað í vel dreifðum (og alþjóðlegum) sjóði í þeirri viðleitni að ná fram sem mestri ávöxtun að teknu tilliti til áhættu. Áhættan Það skiptir nefnilega miklu máli að huga að þeirri áhættu sem fylgir ávöxtun og fjárfestingum, ekki síst þegar safnað er fyrir útborgun í íbúð. Verulegar verðsveiflur eru eðlilegur þáttur í því að fjárfesta á hlutabréfamörkuðum og ef sækja á þá góðu ávöxtun sem vænst er þarf sparifjáreigandinn að vera tilbúinn að þola þær sveiflur. En þær geta varað í fleiri ár og þegar kaupa á heimili er ekki víst að hægt sé að réttlæta slíka áhættu með væntingum um aukna ávöxtun. Eins og áður segir á þetta einkum við um skammtímasparnað, en til lengri tíma hafa sveiflur mun minni áhrif á öryggi fjárfestingarinnar. Auk þess má nefna sem áhættuþátt að sé sparnaðurinn aðgengilegur, gætu sumir kannski freistast til þess að nýta féð í eitthvað annað en upphaflega stóð til. Því heyri ég reglulega að sótt sé í ávöxtunarkosti sem fela í sér bindingu eða einhvers konar fyrirhöfn við úttekt, svo lágmarka megi líkurnar á að farið sé út af sporinu. Sparnaðarkostir Áður en valið er á milli ólíkra ávöxtunarkosta þarf því að meta hve lengi skal sparað og hversu miklar verðsveiflur eru ásættanlegar. Lítum á nokkra sem gætu komið til greina: Framtíðarreikningur: Það sem nú þegar er inni á framtíðarreikningnum má sennilega vera þar áfram, en ekki er gert ráð fyrir innborgunum eftir 18 ára aldur. Almennt eru þar nokkuð hærri verðtryggðir vextir en á öðrum verðtryggðum bókum og því getur framtíðarreikningurinn verið ákjósanlegur kostur ef áhugi er á verðtryggðri ávöxtun. Sérstakir húsnæðissparnaðarreikningar: Ólíklegt er að betri vextir fáist á bankabókum en á reikningum sem sérstaklega eru hugsaðir fyrir húsnæðissparnað. Þeim fylgja þó ákveðnar takmarkanir, sem geta til dæmis verið hámarksaldur, að aðeins sé hægt að stofna slíkan reikning einu sinni og að honum sé lokað við úttekt. Manstu hvað ég nefndi varðandi freistingar og hættuna á að peningnum sé varið í eitthvað annað? Húsnæðissparnaðarreikningur gæti dregið úr hættunni á slíku. Skammtímasjóðir: Mikið úrval sjóða er í boði á Íslandi. Þeir eru þægilegir að því leyti að lítið mál er að greiða þangað inn með reglubundnum hætti án lágmarksfjárhæða (eða með mjög lágum lágmarksfjárhæðum) og aðgengi að sparnaðinum er gott. Sjóðir eru sameiginleg fjárfesting þar sem sjóðstjóri dreifir eignum samkvæmt heimildum sjóðsins og sér því um vinnuna við að velja, dreifa og endurfjárfesta. Ýmsir skammtímasjóðir eru til, svo sem lausafjár- eða veltufjársjóðir. Þeim er ætlað að vera tiltölulega svipaðir bankareikningum í notkun, með litlum verðsveiflum og möguleika á sambærilegri eða betri ávöxtun. Þeir eru þó ekki alveg eins og bankareikningar og geta lækkað í verði. Eftir því sem reynt er að sækja meiri ávöxtun í sjóði er líklegt að verðsveiflur aukist og þar með áhætta til skamms tíma. Mundu að skoða vel og vandlega þann kostnað sem fylgir sjóðum, svo sem kostnað við kaup og árlegum umsjónarlaunum. Langtímasjóðir: Þegar ávaxtað er til langs tíma eykst raunhæft úrval sjóða. Þá er jafnvel verið að skoða sjóði sem fjárfesta í hinum ýmsu eignaflokkum eða að miklu leyti í hlutabréfum. Skoðaðu vel eignadreifingu slíkra sjóða. Því miður eru sjóðir sem sagðir eru bjóða upp á góða eignadreifingu ekki endilega jafn vel dreifðir og ætla mætti. Þannig ber nokkuð á því að slíkir sjóðir fjárfesti lítið utan landsteinanna. Viðbótarlífeyrir og reglulegur sparnaður Þegar valdar hafa verið ávöxtunarleiðir er tilvalið að skipuleggja sparnaðinn. Nýtið þessa reiknivél til að sjá hvernig hann færist nær markmiðinu sínu, að teknu tilliti til þess að húsnæðisverð gæti hækkað á sparnaðartímanum. Passaðu svo upp á að sonur þinn greiði í viðbótarlífeyrissparnað af laununum sínum og fái það mótframlag sem hann á rétt á. Þannig getur hann aukið við útborgunina þegar þar að kemur og nýtt sér skattfrjálsa ráðstöfun sparnaðarins, innan þeirra marka sem reglurnar heimila. Endilega skilaðu til hans kveðju frá mér með óskum um gott gengi! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Börn og uppeldi Tengdar fréttir Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00 Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00 Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00 Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03 Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00 Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00 Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Sjá meira
Góð ávöxtun er að sjálfsögðu mikilvæg en þegar safnað er fyrir útborgun í fyrstu íbúð tökum við tillit til fleiri þátta. Fyrstu íbúðakaupin eru ekki aðeins nauðsynleg fjárfesting heldur er afar mikilvægt að þau heppnist vel. Því þarf að vanda bæði undirbúninginn og sparnaðinn. Þegar hinar ýmsu hliðar sparnaðarins hafa verið metnar ætti að verða auðveldara fyrir ykkur að velja það sem syni þínum hentar best. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Tímalengd sparnaðarins Aðspurður um hentuga ávöxtunarkosti svara ég yfirleitt um hæl „hvenær stendur til að nota þessa peninga?“. Það er sennilega mikilvægasta spurningin í þessu samhengi. Almennt má nefnilega segja að því lengri tíma sem við höfum til að spara, þeim mun fleiri valkostir (og oft betri) standi okkur til boða. Sem dæmi um slíkt má nefna að ef til stendur að kaupa íbúð á næstu örfáu misserum er sennilega ekki við hæfi að fjárfesta í kostum sem bera mikinn upphafskostnað. Sömuleiðis gæti veruleg og sennilega óréttlætanleg áhætta fylgt því að velja kosti sem sveiflast umtalsvert í verði, svo sem þegar stór hluti sparnaðar liggur í hlutabréfum. Því er langsamlega algengast að skammtímasparnaður sé geymdur á bankabókum eða í lausafjársjóðum. Eftir því sem lengra er í fasteignakaupin verða fleiri kostir raunhæfir. Þegar sparað er til langs tíma er algengt að stillt sé upp vel dreifðu eignasafni, eða sparað í vel dreifðum (og alþjóðlegum) sjóði í þeirri viðleitni að ná fram sem mestri ávöxtun að teknu tilliti til áhættu. Áhættan Það skiptir nefnilega miklu máli að huga að þeirri áhættu sem fylgir ávöxtun og fjárfestingum, ekki síst þegar safnað er fyrir útborgun í íbúð. Verulegar verðsveiflur eru eðlilegur þáttur í því að fjárfesta á hlutabréfamörkuðum og ef sækja á þá góðu ávöxtun sem vænst er þarf sparifjáreigandinn að vera tilbúinn að þola þær sveiflur. En þær geta varað í fleiri ár og þegar kaupa á heimili er ekki víst að hægt sé að réttlæta slíka áhættu með væntingum um aukna ávöxtun. Eins og áður segir á þetta einkum við um skammtímasparnað, en til lengri tíma hafa sveiflur mun minni áhrif á öryggi fjárfestingarinnar. Auk þess má nefna sem áhættuþátt að sé sparnaðurinn aðgengilegur, gætu sumir kannski freistast til þess að nýta féð í eitthvað annað en upphaflega stóð til. Því heyri ég reglulega að sótt sé í ávöxtunarkosti sem fela í sér bindingu eða einhvers konar fyrirhöfn við úttekt, svo lágmarka megi líkurnar á að farið sé út af sporinu. Sparnaðarkostir Áður en valið er á milli ólíkra ávöxtunarkosta þarf því að meta hve lengi skal sparað og hversu miklar verðsveiflur eru ásættanlegar. Lítum á nokkra sem gætu komið til greina: Framtíðarreikningur: Það sem nú þegar er inni á framtíðarreikningnum má sennilega vera þar áfram, en ekki er gert ráð fyrir innborgunum eftir 18 ára aldur. Almennt eru þar nokkuð hærri verðtryggðir vextir en á öðrum verðtryggðum bókum og því getur framtíðarreikningurinn verið ákjósanlegur kostur ef áhugi er á verðtryggðri ávöxtun. Sérstakir húsnæðissparnaðarreikningar: Ólíklegt er að betri vextir fáist á bankabókum en á reikningum sem sérstaklega eru hugsaðir fyrir húsnæðissparnað. Þeim fylgja þó ákveðnar takmarkanir, sem geta til dæmis verið hámarksaldur, að aðeins sé hægt að stofna slíkan reikning einu sinni og að honum sé lokað við úttekt. Manstu hvað ég nefndi varðandi freistingar og hættuna á að peningnum sé varið í eitthvað annað? Húsnæðissparnaðarreikningur gæti dregið úr hættunni á slíku. Skammtímasjóðir: Mikið úrval sjóða er í boði á Íslandi. Þeir eru þægilegir að því leyti að lítið mál er að greiða þangað inn með reglubundnum hætti án lágmarksfjárhæða (eða með mjög lágum lágmarksfjárhæðum) og aðgengi að sparnaðinum er gott. Sjóðir eru sameiginleg fjárfesting þar sem sjóðstjóri dreifir eignum samkvæmt heimildum sjóðsins og sér því um vinnuna við að velja, dreifa og endurfjárfesta. Ýmsir skammtímasjóðir eru til, svo sem lausafjár- eða veltufjársjóðir. Þeim er ætlað að vera tiltölulega svipaðir bankareikningum í notkun, með litlum verðsveiflum og möguleika á sambærilegri eða betri ávöxtun. Þeir eru þó ekki alveg eins og bankareikningar og geta lækkað í verði. Eftir því sem reynt er að sækja meiri ávöxtun í sjóði er líklegt að verðsveiflur aukist og þar með áhætta til skamms tíma. Mundu að skoða vel og vandlega þann kostnað sem fylgir sjóðum, svo sem kostnað við kaup og árlegum umsjónarlaunum. Langtímasjóðir: Þegar ávaxtað er til langs tíma eykst raunhæft úrval sjóða. Þá er jafnvel verið að skoða sjóði sem fjárfesta í hinum ýmsu eignaflokkum eða að miklu leyti í hlutabréfum. Skoðaðu vel eignadreifingu slíkra sjóða. Því miður eru sjóðir sem sagðir eru bjóða upp á góða eignadreifingu ekki endilega jafn vel dreifðir og ætla mætti. Þannig ber nokkuð á því að slíkir sjóðir fjárfesti lítið utan landsteinanna. Viðbótarlífeyrir og reglulegur sparnaður Þegar valdar hafa verið ávöxtunarleiðir er tilvalið að skipuleggja sparnaðinn. Nýtið þessa reiknivél til að sjá hvernig hann færist nær markmiðinu sínu, að teknu tilliti til þess að húsnæðisverð gæti hækkað á sparnaðartímanum. Passaðu svo upp á að sonur þinn greiði í viðbótarlífeyrissparnað af laununum sínum og fái það mótframlag sem hann á rétt á. Þannig getur hann aukið við útborgunina þegar þar að kemur og nýtt sér skattfrjálsa ráðstöfun sparnaðarins, innan þeirra marka sem reglurnar heimila. Endilega skilaðu til hans kveðju frá mér með óskum um gott gengi!
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00
Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00
Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00
Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03
Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00
Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun