Enski boltinn

Orða varnar­mann Barcelona við Manchester United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alejandro Balde fagnar hér marki hjá Barcelona á síðustu leiktíð við hlið Lamine Yamal.
Alejandro Balde fagnar hér marki hjá Barcelona á síðustu leiktíð við hlið Lamine Yamal. EPA/QUIQUE GARCIA

Spænski varnarmaðurinn Alejandro Balde gæti yfirgefið Barcelona í janúar og er nú orðaður við Manchester United.

Spænski miðillinn Marca segir að Hansi Flick, þjálfari Börsunga, vilji styrkja vörnina sína en til þess þurfi hann fyrst að láta leikmann fara, og líklegastur til þess er hinn 23 ára gamli Balde.

„Við leitum alltaf að því sem er best fyrir liðið og við erum að gera það,“ sagði Flick á föstudag. „Við sjáum til, það eru enn nokkrar vikur þar til vetrarfélagaskiptaglugginn opnast. Ef við getum gert eitthvað, þá gerum við það kannski,“ sagði Flick.

Vörn Barcelona hefur orðið fyrir barðinu á meiðsladraugnum undanfarnar vikur, en spænski vinstri bakvörðurinn hefur samt fengið takmarkaðan spiltíma þrátt fyrir forföllin.

Samkvæmt portúgalska miðlinum Record er Manchester United í „viðbragðsstöðu“ til að fá varnarmanninn – og það gæti leitt til félagaskipta í hina áttina. 

Lisandro Martinez hefur verið orðaður við Barcelona og hefur nýlega verið í sviðsljósinu vegna harðorðra ummæla sinna um stjórnendur Man Utd.

Martinez var rekinn af velli gegn Chelsea á laugardag og samningur hans rennur út í sumar. Það þarf ekki að koma á óvart ef hann spilar ekki marga leiki í viðbót með Manchester United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×