Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Atli Ísleifsson skrifar 2. nóvember 2026 14:29 Þetta eru hluti þeirra verkefna sem eru tilnefndar í ár. Búið er að tilkynna um tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands í ár en verðlaunin verða afhent næstkomandi fimmtudag.
Tilnefnt er í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk og eru þrjár tilnefningar í hverjum flokki. Auk þess verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlaun Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Hönnunarverðlaunum Íslands er ætlað að varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Tilnefningar í flokknum „Vara“: Backflip er fellistóll hannaður af Guðmundi Lúðvík fyrir HAY. Stóllinn er endurhugsun á kunnuglegu húsgagni þar sem fellibúnaðurinn hverfur inn í bakið og fegurð, þægindi og form eru í fyrirrúmi. Backflip. Leiftur er björgunarbátur hannaður af Páli Einarssyni fyrir Rafnar. Báturinn er hluti af sístækkandi vörulínu björgunarbáta Rafnar sem eru í notkun víða um heim. Leiftur. Mystic Garden er safn glerlampa eftir Brynjar Sigurðarson og Veroniku Sedlmair hjá Studio Brynjar og Veronika. Safnið samanstendur af handblásnum glerhlutum þar sem tilraunir með efni, lit og ljós mæta frásögnum sem sækja í náttúru, rómantík og hið yfirnáttúrulega. Mystic Garden. Tilnefningar í flokknum „Staður“: Óskaland er viðbygging við samnefndan leikskóla í Hveragerði, hönnuð af marimo arkitektum, þar sem arkitektúr, innanhússhönnun, sérhannaðar innréttingar og fjölbreytt garðrými mynda leikandi og notalegt umhverfi út frá skala, sjónarhorni og upplifun barnsins. Óskaland. Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur á Bæjarbrún sem gnæfir 650 metra yfir Seyðisfirði með einstöku útsýni frá mynni fjarðarins og inn dalinn hannaður af Arkibygg og Esju arkitektum. Baugur Bjólfs. Frakkastígur 1 er íbúðar- og atvinnuhúsnæði eftir s.ap arkitekta. Húsið er framúrskarandi tilraunaverkefni í hringrásarhönnun þar sem endurnýting byggingarefna, lífsferilsgreiningar og sveigjanleiki til framtíðar eru samþætt arkitektúrnum frá upphafi. Frakkastígur 1. Tilnefningar í flokknum „Verk“: Sketching Bathing in Iceland er verk sem fjallar um sundlaugarmenningu Íslendinga eftir Rán Flygenring. Verkið var gefið út í samnefndri bók og birtist í sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík. Sketching Bathing in Iceland Vitrum Iceland er verk eftir hönnuðinn Johönnu Seelemann sem spannar rannsóknir, tilraunir, hönnun, framleiðslu og sýningu. Johanna sameinar handverk og iðnað og skapar framúrskarandi lausnir, ferla og gripi úr endurunnu gleri. Verkin, hliðarborð, vegglampar, vasar, hillur og stóll, voru sýnd í H,A,K,K galleríi. Vitrum Iceland ¡Hola! er herferð malbikunarfyrirtækisins Colas um ástand vega á Íslandi sem unnin var af auglýsingastofunni Pipar\TBWA. ¡Hola! Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu.
Hönnunarverðlaun Íslands Tíska og hönnun Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Góðir straumar á Straumi Menning Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Stundum gott að fara öruggu leiðina Sturluð skvísulæti í stórafmæli Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Verður að geta hent sér í hnébeygju Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Sjá meira