Innlent

Á­bendingar borist um skemmdar­verkin

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Óprúttinn aðili eða aðilar gengu milli bíla á Seltjarnarnesi í skjóli nætur og braut bílrúður.
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Óprúttinn aðili eða aðilar gengu milli bíla á Seltjarnarnesi í skjóli nætur og braut bílrúður. Samsett

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist ábendingar varðandi skemmdarverk á ökutækjum á Seltjarnarnesi sem framin voru í nótt. Lögreglan 

Lögreglu barst snemma morguns tilkynning um skemmdarverk á ökutækjum á Seltjarnarnesi. Ýmist ein eða tvær rúður bílanna höfðu verið brotnar. Um þrjátíu bílar urðu fyrir tjóni og er talið að tjónið hlaupi á milljónum króna.

Sjá einnig: Tjónið á Sel­tjarnar­nesi hlaupi lík­lega á milljónum

Ásmundur Rúnar Gylfason segir rannsókn málsins miða ágætlega áfram. Lögreglu hafi borist ábendingar og sé nú að vinna úr þeim. Hann ítrekar þó beiðni lögreglu til fólks að athuga hvort það eigi myndbandsupptökur úr bílum eða aðrar upplýsingar sem gætu varpað ljósi á málið og koma þeim til lögreglu.

„Við höfum fengið ábendingar. Við höfum bara verið að vinna úr þeim í dag og höldum áfram á morgun,“ segir Ásmundur.

Hann geti ekki veitt upplýsingar um hvort einhver liggi undir grun né hvort talið sé að fleiri en einn hafi verið að verki.

Sjá einnig: Gekk á milli bíla og braut rúður

Í tilkynningu lögreglu eru þau sem geta veitt upplýsingar um málið vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000 eða koma upplýsingum á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.petur@lrh.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×