Körfubolti

Stjarnan skein skært gegn ný­liðunum

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Stjörnunnar í efstu deild. 
Frá leik Stjörnunnar í efstu deild.  Vísir/Paweł

Stjarnan vann öruggan 41 stiga sigur á nýliðum Fjölnis er liðin mættust í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 110-69, sigur Stjörnunnar.

Sigur Stjörnunnar í kvöld var aldrei í hættu. Liðið var átta stigum yfir eftir lok fyrsta leikhluta og byggði jafnt og þétt upp forskot sitt út leikinn. 

Fór svo að leikar enduðu með 110-69 sigri heimakvenna og hefur Stjarnan nú unnið fimm af fyrstu sex leikjum sínum í deildinni á tímabilinu og hefur nú jafnað topplið Grindavíkur að stigum en Grindavík á leik til góða á morgun. 

Agnes María Svansdóttir, leikamaður sem gekk í raðir Stjörnunnar frá Keflavík fyrir tímabilið, fór hamförum í leik kvöldsins. Agnes var stigahæsti leikmaður vallarins með 27 stig, þá reif hún niður sex fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Nýliðar Fjölnis eru enn án stiga í deildinni eftir sex umferðir, hafa tapað öllum sínum leikjum til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×