Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 23:18 Alþjóðaíshokkísambandið hefur útilokað rússnesk landslið frá mótum sínum frá innrásinni í Úkraínu árið 2022 en Alþjóðaíþróttadómstóllinn hleypti þeim aftur inn. Getty/Bruce Bennett Stór styrktaraðili vill ekki lengur vera tengdur heimsmeistaramótinu í íshokkí eftir að ákveðið var að hleypa Rússlandi aftur inn á mótið.
Sænska fyrirtækið AJ Produkter hefur styrkt HM í íshokkí síðan 1989. Eftir tilkynninguna um að Rússland fái að taka þátt hefur þetta stóra sænska fyrirtæki ákveðið að fjarlægja merki sitt af mótinu. „Það er miður að þurfa að taka þessa ákvörðun,“ sagði Enock Johansson, framkvæmdastjóri AJ, við TV4. Á föstudag tilkynnti Alþjóðaíþróttadómstóllinn að Rússland fengi að taka þátt í komandi heimsmeistaramótum í íshokkí, þar á meðal karlamótinu í Þýskalandi næsta vor. Fréttirnar hafa vakið hörð viðbrögð, sérstaklega á Norðurlöndum og í Þýskalandi. AJ hefur nú ákveðið að fjarlægja merki sitt af öllum sýnilegum stöðum á komandi heimsmeistaramóti karla, að því er TV4 greinir frá. „Þetta er mjög leiðinleg ákvörðun, en við erum einhuga um að hún sé sú rétta,“ sagði Johansson. Ákvörðunin felur meðal annars í sér að merki AJ verður fjarlægt af búningum dómara og starfsmanna, sem og af batta umhverfis ísinn meðan á mótinu stendur. „Það sem við getum gert til að taka afstöðu er einfaldlega að fjarlægja vörumerkið okkar. Við teljum mikilvægt að gera það,“ sagði Johansson. Alþjóðaíshokkísambandið hefur útilokað rússnesk landslið frá mótum sínum frá innrásinni í Úkraínu árið 2022 og lýsti á föstudag yfir vonbrigðum með úrskurð CAS. „IIHF er ósammála úrskurðinum og heldur fast við að upphafleg ákvörðun okkar hafi verið nauðsynleg til að tryggja öryggi allra þátttakenda á mótunum,“ sagði sambandið.
Íshokkí Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone Sjá meira