Sport

Á­huga­verð um­mæli Teits hafa hrist upp í hlutunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Haukur Helgi og félagar í Álftanesi eru mikið í umræðunni þessa dagana.
Haukur Helgi og félagar í Álftanesi eru mikið í umræðunni þessa dagana. vísir/Anton

Teitur Örlygsson, körfuboltasérfræðingur Sýnar Sports, kom með áhugaverða skoðun að borðinu í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi.

„Ég hef aldrei trú á liðum sem koma fullmótuð inn í fyrsta leik í ágúst og september,“ sagði Teitur Örlygsson, einn af sérfræðingum Körfuboltakvölds, og var þá að ræða lið Álftaness.

Umsjónarmaður þáttarins, Stefán Árni Pálsson, spurði Teit þá að því hvort hann hefði áhyggjur af Álftanesi?

„Ég held að þetta gæti komið í bakið á þeim,“ svaraði Teitur þá. „Það verður bara leiðinlegt ef þú getur ekki bætt þig og það gerist ekkert óvænt.“

Þessi ummæli hafa talsvert verið rædd síðan og sitt sýnist hverjum um þessa skoðun Teits. Ekki voru allir sammála henni í Besta sætinu í dag.

Meistaradeildin fer á fullt í kvöld með áhugaverðum leikjum.

Fókus margra verður örugglega í Manchester í dag þar sem Roma er í heimsókn hjá Man. Utd. United hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum sínum.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×