Innlent

Kol­beins­ey lifir enn þrátt fyrir spá­dóma um annað

Atli Ísleifsson skrifar
Kolbeinsey gegndi áður mikilvægu hlutverki í deilum um landhelgi og landgrunnsréttindi.
Kolbeinsey gegndi áður mikilvægu hlutverki í deilum um landhelgi og landgrunnsréttindi. Landhelgisgæslan

Landshelgisgæslan hefur birt nýjar myndir af Kolbeinsey, norður af landinu, og virðist sem að hægt hafi á niðurbroti eyjarinnar á síðustu árum. Eyjan er enn til staðar þrátt fyrir fyrri spádóma um að hún yrði með öllu horfin árið 2020. 

Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar eru birtar nýjar myndir en gæslan hefur á síðustu árum flogið reglulega yfir Kolbeinsey, sem er 74 kílómetra norður af Grímsey, til að fylgjast með niðurbroti eyjarinnar. 

„Áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF flaug nýverið yfir eyna og tók af henni myndir. Af þeim að dæma virðist hafa hægt á niðurbrotinu á síðustu árum.

Landhelgisgæslan

Fyrir um 15 árum var jafnvel óttast að Kolbeinsey yrði með öllu horfin árið 2020. Eyjan stendur þó enn upp úr sjó og minna virðist hafa gengið á hana að undanförnu en áður. Berggrunnur hennar er afar gljúpur og hafís vinnur mikið á henni þau ár sem hann nær að umlykja eyjuna.

Kolbeinsey gegndi mikilvægu hlutverki í deilum um landhelgi og landgrunnsréttindi. Árið 1989 steyptu áhöfn varðskipsins Óðins og starfsmenn Vita- og hafnamálastofnunar þyrlupall á eynni, en síðan hefur hún minnkað verulega. Landhelgisgæslan hefur reglulega fylgst með henni í gegnum árin en hún glataði að mestu mikilvægi sínu eftir að samið var um miðlínuna milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Jan Mayen hins vegar.

Landhelgisgæslan

Landhelgisgæslan mun halda áfram að fylgjast með ástandi eyjarinnar en meðfylgjandi myndir sýna núverandi ásýnd Kolbeinseyjar,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×