„Kaldur vetur framundan“ hjá Icelandair og reikna með mun verri afkomu
Verulega hefur verið dregið úr afkomuvæntingum til Icelandair á næsta ári í nýju verðmati, einkum vegna hækkandi eldsneytisverðs, og að félagið skili ekki rekstrarhagnaði fyrr en 2029. Greinendur gera nú ráð fyrir að EBIT-afkoma flugfélagsins verði um 116 milljónum dala lakari en áður var spáð og vara við að það sé „kaldur vetur framundan.“
Tengdar fréttir
Viðsnúningur í rekstri og kostnaðarlækkun „lífsnauðsynleg“ fyrir Icelandair
Lægra eldsneytisverð og sterkari sjóðstaða hjá Icelandair þýðir að horfur eru betri en áður, samkvæmt nýrri greiningu, en verðmatsgengi félagsins hefur verið hækkað og er eftir sem áður langt yfir verðlagningu á markaði. Rekstur Icelandair verður samt áfram erfiður samtímis mikilli fjárfestingarþörf en viðsnúningur og kostnaðarlækkun er sögð vera „lífsnauðsynleg“ fyrir flugfélagið.
Reksturinn batnar en hátt eldsneytisverð setur Icelandair þröngar skorður
Skýr merki eru um að undirliggjandi rekstur Icelandair sé að styrkjast, meðal annars vegna hærri fargjalda, betri sætanýtingar og umfangsmikilla hagræðingaraðgerða, að mati hlutabréfagreinanda, sem verðmetur félagið talsvert yfir markaðsgengi. Hátt eldsneytisverð, sterkt gengi krónunnar og kjaradeilur við flugstéttir setja rekstrinum hins vegar áfram þröngar skorður.