Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Birgir Olgeirsson skrifar 4. nóvember 2026 14:26 María Ellen Steingrímsdóttir, fulltrúi Viðreisnar í menntaráði Kópavogs, vill fresta nýjum einkunnakvarða. Hún óttast að óvissa um framkvæmdina geti leitt til misræmis í einkunnagjöf. Vilhelm Fulltrúar Viðreisnar í menntaráði Kópavogs vilja að Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra fresti innleiðingu nýs einkunnakvarða hjá tíundubekkingum. Meirihluti ráðsins hafnaði tillögunni í gær en gagnrýnir jafnframt undirbúning ríkisstjórnarinnar og segir skólana ekki hafa fengið nægan stuðning.
Bryndís Rut Logadóttir og María Ellen Steingrímsdóttir lögðu tillöguna fram á fundi menntaráðs í gær. Þær vildu að ráðið skoraði á ráðherra að fresta breytingunum þannig að nýi kvarðinn yrði ekki notaður við lokamat nemenda í tíunda bekk vorið 2027. Samkvæmt drögum ráðuneytisins eiga nemendur þá að fá lokaeinkunnir frá fjórum til tíu í stað bókstafa. Einkunnin sjö merkir að nemandi hafi náð þeirri hæfni sem ætlast er til við lok grunnskóla. Óttast misræmi í einkunnagjöf Í tillögu Viðreisnar segir að endanleg útfærsla kvarðans liggi ekki fyrir. Óvissa um framkvæmdina geti leitt til misræmis í einkunnagjöf og haft alvarlegar afleiðingar fyrir nemendur þegar þeir sæki um framhaldsskóla. Fulltrúarnir taka fram í bókun sinni að þeir styðji markmið breytinganna um aukið samræmi og jafnræði í námsmati. Ágreiningurinn snúist um tímasetninguna. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra vill að tíundubekkingar fái lokaeinkunnir frá fjórum til tíu í stað bókstafa við útskrift í vor.Vísir/Einar „Það skýtur hins vegar skökku við að meirihlutinn viðurkenni sjálfur verulega annmarka á undirbúningi og skort á stuðningi við skólana, en telji á sama tíma óábyrgt að fresta innleiðingunni.“ Þær segja að þótt margir skólar séu langt komnir í undirbúningi tryggi það ekki að allir geti beitt nýjum kvarða með sambærilegum hætti. Hætta sé á að nemendur sitji ekki við sama borð við lok grunnskólagöngu. Telja frestun auka óvissu Meirihluti menntaráðs segir samtöl við nemendur, foreldra, kennara og skólastjórnendur staðfesta að undirbúningur og kynning ríkisstjórnarinnar hafi verið ófullnægjandi. Skólarnir hafi ekki fengið nægan stuðning við innleiðinguna og við það geri meirihlutinn alvarlegar athugasemdir. Hann telur þó tölukvarða skref í rétta átt og skárri kost en bókstafakvarðann. Margir skólar séu langt komnir í undirbúningi og frestun myndi auka óvissu hjá nemendum sem útskrifist í vor. „Frestun innleiðingar viðheldur gagnrýndu fyrirkomulagi og væri því óábyrg,“ segir í bókun meirihlutans. Meirihlutinn kallar eftir tafarlausum auknum stuðningi ráðuneytisins og leggur fyrir menntasvið að kynna breytingarnar fyrir foreldrum og nemendum. Snorri gagnrýnir Viðreisn Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi Viðreisn vegna málsins á Alþingi í dag. Hann benti á að fulltrúar flokksins í Kópavogi vildu fresta breytingum sem kæmu frá ríkisstjórn sem Viðreisn ætti sjálf aðild að. Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir Viðreisn þurfa að axla ábyrgð á málinu í ríkisstjórn á meðan fulltrúar flokksins í Kópavogi kalli eftir frestun.Vísir/Vilhelm Snorri sagðist styðja að tölur kæmu í stað bókstafa en gagnrýndi útfærsluna og að hæfniviðmiðunum sem námsmatið byggðist á væri ekki breytt samhliða. „Væri ekki nær fyrir Viðreisn að einfaldlega axla meiri ábyrgð í ríkisstjórnarsamstarfinu og koma í veg fyrir ruglið til þess að byrja með?“ spurði Snorri.
Kópavogur Alþingi Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira