Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Sindri Sverrisson skrifar 4. nóvember 2026 15:16 Harry Kane hlaut Gullboltann en það stóð þó ansi tæpt því Kylian Mbappé varð rétt á eftir honum. Getty/Jeff Spicer Franska lögreglan hefur hafið rannsókn á veðmálasvindli í tengslum við verðlaunahátíðina Ballon d'Or, eða Gullboltann, þar sem grunur leikur á að innherjaupplýsingar um hverjir yrðu í fimm efstu sætum karla hafi skilað óprúttnum aðilum háum fjárhæðum.
Samkvæmt grein The Athletic í dag eru til rannsóknar veðmál á 12 reikningum á spámarkaðssíðunni Polymarket. Veðmálin snerust um að þeir Harry Kane, Kylian Mbappé, Lamine Yamal, Rodri og Lionel Messi yrðu í fimm efstu sætunum í kjörinu um Gullboltann og sú varð raunin. Franski miðillinn Upside greindi frá því að 250.000 evrur hefðu verið lagðar undir og að hagnaðurinn hefði numið 200.000 evrum eða jafnvirði rúmlega 27 milljóna króna. Mikil leynd hvílir ávallt yfir kjörinu um Gullboltann og skipuleggjendur hátíðarinnar, miðillinn France Football, leggja mikið upp úr því að ekkert spyrjist út fyrir athöfn. The Athletic hefur heimildir fyrir því að France Football hafi verið varað við óvenjulegum veðmálum í aðdraganda hófsins og því útlit fyrir að upplýsingum um niðurstöðuna hafi með einhverjum hætti verið lekið. The French police are investigating suspected insider trading after a series of bets successfully predicted the exact order of the top five male finishers in last month’s Ballon d’Or. More from @jwhitey98 https://t.co/XHNJlI2z84— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) November 4, 2026 France Football hóf sína eigin rannsókn og lét auk þess frönsku lögregluna vita af málinu. „Heilindi Ballon d’Or eru algjört forgangsatriði hjá France Football,“ sagði talsmaður Ballon d’Or í samtali við The Athletic. „Við viljum ítreka að sigurvegarinn er valinn í óháðri kosningu. Verið viss um að við tökum þessar ásakanir um leka á niðurstöðum og hugsanlega sviksamleg veðmál mjög alvarlega. Rannsókn er hafin til að leiða staðreyndir í ljós og skera úr um hugsanlega ábyrgð. Við erum að leggja fram kæru hjá viðeigandi lögregluyfirvöldum. Þar sem rannsókn stendur enn yfir er ekki hægt að greina frá frekari upplýsingum að svo stöddu,“ sagði talsmaðurinn.
Fótbolti Fjárhættuspil Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Sjá meira