Ísland í dag - „Pabbi minn vakir yfir mér“

Tónlistarkonan Ásdís María Viðarsdóttir gengur undir listamannsnafninu Ásdís. Ásdís býr í Berlín í Þýskalandi og er með rúmlega tvær milljónir mánaðarlegra spilana á Spotify - minnst á Íslandi samt. Eitt af nýjustu lögunum hennar, Touch Me, hefur klifið upp vinsældarlista Bylgjunnar, en líklega eru margir þarna úti sem hafa ekki hugmynd um að söngkonan sem syngur og semur lagið sé íslensk. Ásdís hefur samið lög fyrir tónlistarfólk á borð við Ritu Ora en dreymir um að semja fyrir Miley Cyrus og Lady Gaga. Hana dreymir samt líka um að flytja aftur heim eftir tíu ára dvöl í Berlín og fara aldrei aftur frá móður sinni. Í Íslandi í dag kynnumst við þessari mögnuðu tónlistarkonu.

689
18:39

Vinsælt í flokknum Ísland í dag