Craig ekki séð viðtalið við Kristófer: „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“
Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, segir það jákvætt að svo margir leikmenn séu nálægt því að komast í lokahópinn fyrir EM sem fram fer í Kýpur, Finnlandi, Póllandi og Lettlandi. Hann segist ekki hafa séð viðtalið sem Kristófer Acox fór í og hafði lítið um það að segja.