Trump dregur í land
Bandaríkjaforseti hefur dregið til baka hótun sína um harðar árásir á Íran sem áttu að eiga sér stað í nótt. Hann birti færslu á samfélgasmiðli sínum Truth Social þess efnis rétt fyrir fréttir. Hann segist hafa átt í samtali við háttsetta íranska embættismenn og að þeir hafi komist að samkomulagi. Óljóst er um var samið en Trump boðar að skrifað verði undir einhvers konar plagg á allra næstunni. Í færslunni minnist hann þó hvorki á Kogh-eyju í Persaflóa sem hann hótaði að hernema né heldur að hann hugðist taka alfarið yfir olíu- og gasmarkaði Írans. Íranar lokuðu fyrir alla skipaumferð um Hormússund og átökin hafa stigmagnast verulega á síðustu dögum. Ekki liggur fyrir hvernig fer með opnun sundsins.