Mannskæður jarðskjálfti í Afganistan
Tveir stórir jarðskjálftar riðu yfir vesturhluta Afganistan um hádegi að staðartíma. Samkvæmt mælingum jarðvísindastofnunar Bandaríkjanna var sá fyrri 6,3 að stærð og sá minni 5,5. Minnst 320 eru látnir og fimm hundruð slasaðir en stjórnvöld telja að talan muni hækka til muna.