Rótgróin flugfélög horfin af markaðnum
Tvö rótgróin íslensk flugfélög, sem einkum hafa starfað innanlands, Flugfélagið Ernir og Mýflug, hafa hætt rekstri á skömmum tíma. Sérfræðingur um flugmál segir breyttar markaðsaðstæður og harðnandi samkeppni að hluta skýra stöðuna.