24/7 - Víkingur Haukson - Bitcoin vol 2 #83
Víkingur Hauksson er sjálfstæður fjárfestir og Bitcoin sérfræðingur. Í þættinum svarar Víkingur spurningum frá hlustendum um Bitcoin. Víkingur talar meðal annars um bitcoin í samhengi við ríkistjórnina og seðlabankann, af hverju hann hefur svona litla trú á öðrum rafmyntum, hvað Bitcoin hefur yfir aðrar rafymyntir, hvernig Bitcoin mun leysa vanda peningsins, að Bitcoin sé besti harði peningur til að geyma virði, að það sé ekki of seint að kaupa sér Bitcoin, af hverju Bitcoin verður til í takmörkuðu magni einn daginn, hvort að Bitcoin verði gjaldmiðill eða bara vermætageymsla, hvað hann myndi gera við tíu milljónir ef hann ætti ekki neitt og margt margt fleira.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    