Laun Katrínar Jakobsdóttur hækka um 73 þúsund krónur Laun þingmanna og ráðherra hækka um 3,4 prósent um áramótin. Það þýðir hækkun um fjörutíu þúsund krónur á grunnþingafararkaup sem segir þó ekki nema hálfa söguna því um er að ræða prósentuhækkun sem leggst ofan á viðbætur sem þingmenn eru vegna formennsku í nefndum og þess háttar, sem er álag ofan á grunnþingfararkaupið. Innlent 14. desember 2020 15:07
Jöfn skipting fæðingaorlofs - Jafnréttismál Fæðingaorlofsfrumvarp félagsmálaráðherra liggur fyrir Alþingi. Frumvarpið boðar 12 mánaða fæðingaorlof með jafna skiptinu milli foreldra og rétturinn skiptist þannig að sjálfstæður réttur hvors foreldris um sig verði sex mánuðir. Skoðun 14. desember 2020 14:30
Grýlur, mýtur og stjórnarmyndun Ég tek eftir því að skeggræður eru hafnar um það hvernig ríkisstjórn menn vilja sjá að kosningum loknum. Þetta er ágæt umræða þótt enn flokkist hún undir samkvæmisleik, enda langt til kosninga. Skoðun 14. desember 2020 08:31
„Alvarlegt hvernig farið er með Landspítalann“ Þingmaður Samfylkingarinnar segir alvarlegt að gerð sé aðhaldskrafa á heilbrigðisstofnanir nú á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru. Formaður fjárlaganefndar segir að krónutölur þurfi að skoða í stærra samhengi hvað varðar aðhaldskröfur á Landspítalann. Hann vill að því verði hætt að setja almennar aðhaldskröfur og vill að tekin verði upp ný aðferðafræði í staðinn. Innlent 13. desember 2020 15:45
Eitthvað er rotið í Danaveldi Þingmenn Miðflokksins hafa á Alþingi lagt fram tillögu til þingsályktunar um að dómsmálaráðherra flytji frumvarp um breytingu á útlendingalögum með það að markmiði að hemja útgjöld ríkissjóðs til málefna hælisleitenda og auka skilvirkni í málsmeðferð. Skoðun 13. desember 2020 10:01
Sprengisandur: Málefni barna, miðhálendisþjóðgarður og fjárlög Sprengisandur er á dagskrá í dag líkt og alla sunnudaga klukkan 10. Innlent 13. desember 2020 09:12
Tillaga um gjaldfrjálsar tíðarvörur felld á Alþingi Breytingartillaga Andrésar Inga Jónssonar, þingmanns utan flokka, við frumvarp til fjárlaga um að gera tíðarvörur aðgengilegar án endurgjalds fyrir tiltekna hópa var í dag felld á Alþingi með einu atkvæði. Þingmenn Vinstri grænna, fyrrverandi samflokksmenn Andrésar, greiddu atkvæði gegn tillögunni. Innlent 11. desember 2020 20:46
Við förum að lögum (auðvitað) Fyrir tíu árum voru samþykkt lög á Alþingi sem skylduðu fyrirtæki með yfir 50 starfsmenn til að jafna hlut kynjanna í stjórnum þeirra. Markmiðin voru skýr. Skoðun 11. desember 2020 11:31
„Ríkisstjórnin hefði ekki tekið svona há lán ef ekki væru níu mánuðir í kosningar“ Fjárlög næsta árs markast af viðbrögðum stjórnvalda við áhrifum kreppunnar sem fylgir kórónuveirufaraldrinum. Þetta sagði Willum Þór Þórsson formaður fjárlaganefndar þegar hann mælti fyrir breytingartillögum meirihluta nefndarinnar við aðra umræðu um fjárlög á Alþingi í dag. Innlent 10. desember 2020 20:00
„Vá stendur fyrir dyrum“ Stjórnvöld hafa ákveðið að draga hraðar úr losun gróðurhúsaloftegunda miðað við það sem áður var ákveðið. Formaður Samfylkingarinnar segir að markmiðin séu ekki fjármögnuð og spyr hvort um sé að ræða ódýrt kosningaloforð. Innlent 10. desember 2020 19:00
Haltu kjafti, hlýddu og vertu góður Af hverju gengur mörgum drengjum svona illa að læra og miklu verr en stúlkunum? Er það vegna þess að þeir eru svona óþekkir og latir? Af hverju geta þeir ekki setið og hagað sér vel. Þá myndi allt ganga svo miklu betur? Skoðun 10. desember 2020 14:00
Sérhagsmunir í „upphæðum“ Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er með skipulögðum hætti að veikja ýmsar af mikilvægustu eftirlitstsstofnunum í íslensku samfélagi. Í júní í fyrra voru samþykkt lög sem veikja Fjármálaeftirlitið. Síðastliðið vor var Samkeppniseftirlitið veikt með lagasetningu og nú á að draga tennurnar úr Skattrannsóknarstjóra. Skoðun 10. desember 2020 13:30
Hertar sóttvarnir hafi dregið úr bjartsýni Gert er ráð fyrir um fimmtíu og sex milljarða króna meiri halla á næsta ári en kynnt var í fjárlögum í haust. Samkvæmt breytingatillögu meirihluta fjármálanefndar nemur hann nú um 320 milljörðum króna. Innlent 10. desember 2020 12:21
Gera ráð fyrir 320 milljarða hallarekstri ríkissjóðs Hallarekstur ríkissjóðs á næsta ári er áætlaður 10,4% af vergri landsframleiðslu að teknu tilliti til þeirra breytingatillagna sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis gerir grein fyrir í nefndaráliti við fjáraukalög sem dreift var á Alþingi í dag. Innlent 9. desember 2020 21:17
Fjölmiðlafrumvarpi frestað fram yfir áramót Umræðu um fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra verður frestað fram yfir áramót og umsagnarfrestur um stofnun hálendisþjóðgarðs verður lengdur. Þetta er á meðal þess sem þingflokkarnir sömdu um í gærkvöldi þegar samkomulag náðist um afgreiðslu mála fyrir þinghlé. Samþykkt var að taka fyrstu umræðu um nokkur stjórnarmál, líkt og frumvarp fjármálaráðherra um afnám tvöfaldrar refsingar við skattalagabrotum og frumvörp félagsmálaráðherra um samþættingu á þjónustu fyrir börn. Innlent 9. desember 2020 20:00
Hinn grenjandi minnihluti Í umræðum um stofnun hálendisþjóðgarðs á Alþingi í gær voru flestir þingmenn sem tóku til máls andvígir stofnun hálendisþjóðgarðsins eða höfðu uppi verulega fyrirvara við stofnun garðsins. Skoðun 9. desember 2020 13:30
Spurði hvort „grenjandi minnihluti“ ætti að hafa neitunarvald varðandi hálendisþjóðgarð Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og þingmaður Vinstri grænna, blandaði sér í umræður á þingi í gærkvöldi um frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra, um hálendisþjóðgarð. Innlent 9. desember 2020 10:18
Alþingismenn samstíga um kjarabætur til öryrkja Fulltrúar allra flokka á Alþingi eru sammála um nauðsyn þess að frumvarp sem felur í sér fimmtíu þúsund króna eingreiðslu og hækkun skerðingamarka bóta öryrkja verði að lögum fyrir jól. Full samstaða á Alþingi er ekki algeng í málum sem þessum. Innlent 8. desember 2020 19:21
Spyr hvort eðlilegt sé að sami flokkur stýri ráðuneytinu og fari með formennsku í nefndinni Kristján Guy Burgess, kennari í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir nauðsynlegt að ræða það á vettvangi Alþingis hvort eðlilegt sé að utanríkisráðherra, formaður utanríkismálanefndar og nú jafnframt varaformaður nefndarinnar komi öll úr sama stjórnmálaflokki. Innlent 8. desember 2020 14:28
244 grásleppusjómenn vilja setja tegundina í kvóta Grásleppusjómenn afhentu sjávarútvegsráðherra stuðningsyfirlýsingu í morgun við frumvarp hans um kvótasetningu grásleppuveiða. Ríflega helmingur leyfishafa grásleppuveiða skrifaði undir. Ráðherrann segir að þetta sýni þörfina á að breyta veiðistjórnun tegundarinnar. Innlent 8. desember 2020 14:00
Alþingi og utanríkismálin Í framhaldi af greinum Vilborgar Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðings langaði mig að bæta við umræðuna um hlutverk Alþingis í utanríkismálum þjóðarinnar. Skoðun 8. desember 2020 10:31
54 milljónir í uppsagnarstyrki, endurráða alla og fjárfesta í um 600 bílum Bílaleigan Hertz ætlar að endurráða alla 66 starfsmenn fyrirtækisins sem var sagt upp í september. Fyrirtækið hefur fengið um 54 milljón króna ríkisstuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnafresti en starfsfólk vann allan uppsagnarfrestinn. Forstjórinn segir bílasölu og langtímaleigu hafa gengið vel og býst við að fjárfest verði í um 600 bílum á næstunni. Viðskipti innlent 7. desember 2020 21:00
Útgöngubann – aldrei án aðkomu Alþingis Ég skaust með grímuna út í Fjarðarkaup um daginn. Einu sinni sem oftar. Þegar ég kem að kjötborðinu stoppar maður mig með glaðsinna augu og grímuna á sínum stað og spyr hvernig það sé að vera á þingi á þessum tímum. Skoðun 7. desember 2020 18:30
Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist rúm 27 prósent Ný könnun MMR leiðir í ljós að fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 27,1 prósent, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu könnun sem framkvæmd var í fyrri hluta nóvember. Innlent 7. desember 2020 12:05
Móðurmissirinn hafi engin áhrif haft á kröfu um afsögn án tafar Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir ríkisstjórnina hafa misst fótanna í Landsréttarmálinu í fyrra og ætlað að láta það snúast um hana sem persónu. Það hafi ekki verið eitthvað sem hún hafi ætlað að sitja undir og því sagt af sér sem dómsmálaráðherra. Innlent 6. desember 2020 18:12
„Okkur finnst að lýðræði eigi að standa öllum til boða, ekki bara sumum“ Fulltrúar tuttugu sveitarfélaga hafa lagt fram tillögu til landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þess efnis að fallið verði frá hugmyndum um lögfestingu íbúalágmarks. Innlent 6. desember 2020 13:02
Ólögmætt uppgreiðslugjald Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt uppgreiðslugjald lánþega á lánum sem tekin voru hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) á árunum 2005-13 ólögleg. ÍLS var óheimilt að krefja lánþega um greiðslu uppgreiðslugjalda þegar þeir greiddu lán sín upp. Skoðun 6. desember 2020 10:01
Stuðningurinn víðtækari en fréttir gefi til kynna Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir stuðning við hugmyndir sínar um miðhálendisþjóðgarð víðtækari en fréttir gefi til kynna. Hann hyggst mæla fyrir frumvarpinu eftir helgi og er vongóður að það nái fram að ganga. Innlent 5. desember 2020 12:52
Sigríður og Sjallar utan svæðis Sinn er siðurinn í hverju landi þegar kemur að skyldum og skyldurækni í þeim störfum sem fólk, konur og karlar taka að sér í einhverskonar samfélagsþjónustu. Þau okkar sem starfa í almannaþjónustu og/eða í opinberri þjónustu eru þá oftar ekki bundin í þá klafa lagalega að þurfa bregðast við þeim erindum sem að þeim er beint. Skoðun 4. desember 2020 14:31
Enn af andvaraleysi Alþingis gagnvart utanríkismálum Í lok þessarar viku eru sjö mánuðir frá því að utanríkismál voru síðast á dagskrá Alþingis. Meira en hálft ár. Það er ef frá er talin 30 mínútna umræða um græna utanríkisstefnu í október sl. sem þrír þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku þátt í. Skoðun 4. desember 2020 11:00