Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Chelsea lenti undir snemma leiks en fagnaði 1-4 sigri á útivelli gegn Aston Villa í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Joao Pedro skoraði þrennu og lagði upp mark fyrir Cole Palmer. Enski boltinn 4.3.2026 19:03
Gullit er hættur að horfa á fótbolta Hollenska knattspyrnugoðsögnin Ruud Gullit segist vera búinn að fá nóg af spilamennskunni í fótboltanum í dag og lýsti því yfir að hann muni ekki horfa lengur á fótboltaleiki. Enski boltinn 4.3.2026 07:33
Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Todd Boehly, meðeigandi Chelsea, hefur upplýst að hann hafi keypt Marc Cucurella sumarið 2022 vegna þess að Manchester City hafði fyrst sýnt spænska vinstri bakverðinum áhuga. Enski boltinn 3.3.2026 12:01
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn 22.2.2026 09:38
Chelsea fór illa að ráði sínu gegn Burnley Þremur leikjum í ensku úrvalsdeildinni er lokið í dag og dramatíkin var allsráðandi. Chelsea fór illa að ráði sínu á heimavelli og gerði jafntefli gegn nýliðum Burnley á heimavelli, 1-1. Enski boltinn 21. febrúar 2026 16:57
Á nærbuxunum úti í snjókomunni Senegalski knattspyrnumaðurinn Nicolas Jackson er á láni hjá þýska liðinu Bayern München í vetur og er að upplifa nýja hluti þar. Jackson setti inn sérstakt myndband af sér á samfélagsmiðla. Fótbolti 21. febrúar 2026 08:00
„Mér býður við þessu, satt best að segja“ Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, ræddi kynþáttafordóma í fótbolta á blaðamannafundi sínum en hann var spurður út í atvikið þegar Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, varð fyrir meintu kynþáttaníði í Meistaradeildinni í vikunni og hann gaf afdráttarlaust svar. Enski boltinn 20. febrúar 2026 07:01
Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Marc Kosicke, umboðsmaður þýska knattspyrnustjórans Jurgen Klopp, segir að bæði Manchester United og Chelsea hafi bæði spurst fyrir um áhuga Þjóðverjans að gerast knattspyrnustjóri sinna liða þrátt fyrir að hann hafi ekki sagst ætla taka við öðru liði á Englandi eftir að hafa farið frá Liverpool. Enski boltinn 16. febrúar 2026 19:21
Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og það var dramatískur viðsnúningur í þeim öllum. Sigurgöngur Manchester United og Chelsea enduðu og bæði Bournemouth og Newcastle unnu á útivelli. Enski boltinn 11. febrúar 2026 08:32
Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Leikmenn Chelsea naga sig í handarbökin eftir að hafa glutrað niður tveggja marka forystu gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld í leik sem endaði með 2-2 jafntefli. Enski boltinn 10. febrúar 2026 21:30
Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mörkin úr stórleikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir neðan. Manchester United fagnaði fjórða sigrinum í röð, Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik fyrir Chelsea og Viktor Gyökeres kom boltanum tvívegis í netið fyrir Arsenal. Enski boltinn 8. febrúar 2026 13:18
Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Chelsea sótti 3-1 sigur á útivelli gegn Wolves á Molineux leikvanginum. Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik en Úlfarnir minnkuðu muninn óvænt í seinni hálfleik. Enski boltinn 7. febrúar 2026 14:32
Sakar Arsenal um virðingarleysi Liam Rosenior, aðalþjálfari Chelsea, viðurkenndi að hann hefði misst stjórn á skapi sínu gagnvart leikmönnum Arsenal vegna þess sem hann telur vera virðingarleysi gagnvart liði sínu fyrir seinni undanúrslitaleikinn í Carabao-bikarnum á þriðjudag. Enski boltinn 6. febrúar 2026 11:02
Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Hvað er hægt að gera til að trufla hin stórhættulegu föstu leikatriði Arsenal? Fáir hafa fundið svarið enda hefur Arsenal raðað inn mörkum eftir hornspyrnur síðustu ár. Chelsea var tilbúið að prófa eitthvað í undanúrslitaleik Arsenal og Chelsea í enska deildabikarnum í gær. Enski boltinn 4. febrúar 2026 12:02
Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í kvöld ákvað Chelsea að endurkalla Mamadou Sarr aftur úr láni frá Strasbourg í Frakklandi. Enski boltinn 2. febrúar 2026 23:18
Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekki vantaði sviptingarnar í leiki gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni. Alls voru sextán mörk skoruð í leikjunum fimm í gær. Enski boltinn 1. febrúar 2026 08:01
Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Chelsea kom til baka eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik gegn West Ham United og vann 3-2 sigur á Stamford Bridge í kvöld. Þreföld skipting Liams Rosenior, knattspyrnustjóra Chelsea, gaf góða raun. Enski boltinn 31. janúar 2026 19:30
Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Chelsea sótti 3-0 sigur á útivelli gegn Crystal Palace á Selhurst Park í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Ungstirnið Estevao kom að fyrstu tveimur mörkunum, Enzo Fernandez skoraði svo úr vítaspyrnu áður en tíu heimamenn minnkuðu óvænt muninn. Enski boltinn 25. janúar 2026 13:31
Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Chelsea hafði betur gegn Brentford með tveimur mörkum gegn engu þegar að liðin mættust á Stamford Bridge í Lundúnum í dag í 22.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 17. janúar 2026 16:58
Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Liðsfundur var haldinn í herbúðum Chelsea í gær þar sem þjálfarinn Liam Rosenior minnti leikmenn og starfsfólk félagsins á að sinna sóttvörnum, til að berjast gegn útbreiðslu vírussins sem er að hrella liðið. Enski boltinn 16. janúar 2026 10:30
Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Nýráðinn knattspyrnustjóri Chelsea var ekki sammála því að Arsenal væri að „fara með fótboltann aftur í tímann“ með því að leggja svona mikla áherslu á föst leikatriði undir stjórn Mikel Arteta. Enski boltinn 14. janúar 2026 13:30
Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR VAR-mistökum hefur fjölgað á fyrri helmingi enska úrvalsdeildartímabilsins og það virðist vera sem myndbandsdómarar séu ekki alveg að ná betri tökum á starfi sínu þrátt fyrir meiri reynslu og betri æfingu. Enski boltinn 14. janúar 2026 10:00
Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Búið er að draga í fjórðu umferð enska bikarsins í fótbolta. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Aston Villa og Newcastle United. Íslendingalið voru í pottinum Hákon Rafn Valdimarsson og félagar hans í Brentford mæta spútnikliði Macclesfield. Enski boltinn 12. janúar 2026 19:01
Utan vallar: Dauði knattspyrnustjórans Fimm dagar voru liðnir af nýja árinu þegar tveimur þjálfurum hafði verið kastað út í hafsauga. Þeir eiga sameiginlegt að hafa starfað í sérkennilegu starfsumhverfi sem endurspeglar breyttar starfsaðstæður knattspyrnuþjálfara á efsta stigi. Enski boltinn 10. janúar 2026 09:30
Sjáðu sögulega seint sigurmark og Manchester-liðin missa frá sér sigra Nú er hægt að sjá hér á Vísi mörkin og alla dramatíkina frá viðburðarríku kvöldi í ensku úrvaldeildinni í gærkvöldi. Enski boltinn 8. janúar 2026 09:04