Hrauntungan mallar löturhægt áfram Virki í gígnum sem enn er er virkur í eldgosinu við Sundhnúksgíga er svipuð og undanfarna daga. Hrauntungan sem rann yfir Grindavíkurveg í gærmorgun hreyfist löturhægt eins og er, en viðbragsaðilar eru viðbúnir því að annað áhlaup gæti hafist á ný. Innlent 9. júní 2024 07:44
Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga rann með miklum krafti yfir Grindavíkurveg í dag, eftir að hraunflæði jókst skyndilega í nótt. Hraunbreiðan er nú í um áttahundruð metra fjarlægð frá heitavatnslögnum og færist hægt áfram. Innlent 8. júní 2024 22:53
Telur að lokast hafi fyrir gíginn að hluta Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að lokast hafi tímabundið fyrir flæði úr sunnanverðum gígnum á Sundhnúksgígaröðinni í dag, með þeim afleiðingum að hraunrennsli breyttist. Innlent 8. júní 2024 20:18
Áhlaupinu lokið en annað ekki útilokað Í nótt, aðfaranótt laugardags, tók að auka á hraunstreymið norður fyrir Sýlingarfell og klukkan hálf ellefu í morgun náði hrauntungan veginum rétt norðan við varnargarðinn. Álykta má að áhlaupinu sé lokið en búast má við að það mjatlist eitthvað áfram. Innlent 8. júní 2024 15:54
„Þetta er nánast allt eins og við áttum von á“ Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir atburðarrás morgunsins við Svartsengi hafa verið viðbúna. Helstu vandræðin núna séu gróðureldar sem kviknað hafa út frá hrauninu og slökkviliðið berst við. Hann segir Bláa lónið ekki í hættu. Innlent 8. júní 2024 12:29
Hraun runnið að Grindavíkurvegi Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga er komið að Grindavíkurvegi norðan varnargarðanna við Svartsengi. Búið er að loka gati í varnargarðinum auk þess sem búið er að loka Bláa lóninu. Innlent 8. júní 2024 09:54
Engin orð sem lýsa deginum örlagaríka í Grindavík Kona á níræðisaldri segir ekki hægt að lýsa atburðunum í Grindavík þann 10. nóvember með orðum. Þrátt fyrir erfiðleika undanfarna mánuði dreymir hana um að komast aftur heim. Innlent 8. júní 2024 08:01
Land er hætt að síga í Svartsengi Aflögunarmælingar undanfarna daga sýna að landsig hafi stöðvast í Svartsengi og því líklegt að flæði kviku frá dýpi inn í kvikusöfnunarsvæðið sé nú sambærilegt því sem er á yfirborði í Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 7. júní 2024 16:45
Hraungígur brast í morgun Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga streymir úr barmi gígs sem brast um klukkan fimm í morgun. Hraunstreymið ógnar engum innviðum eins og stendur en grannt er fylgst með. Innlent 7. júní 2024 10:16
Rafmagn komið á í Grindavík Rafmagn er aftur komið á í Grindavík en þar varð rafmagnslaust skömmu eftir að gos hófst við Sundhnúkagígaröðina í síðustu viku. Innlent 6. júní 2024 00:19
Hraunrennsli frá gígnum virðist vera orðið meinlítið Sú breyting varð í nótt á eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur að virknin færðist úr þremur gígum niður í einn. Verulegur kraftur er enn í gosinu. Innlent 4. júní 2024 23:04
Einn gígur virkur og kvikusöfnun heldur áfram Nýleg gögn benda til þess að kvikusöfnun haldi áfram undir Svartsengi líkt og áður. Gígurinn sem ennþá er virkur er staðsettur rétt við þann gíg sem gaus lengst úr í eldgosinu sem hófst 16. mars og endaði 9. maí. Land heldur áfram að síga ólíkt því sem hefur áður sést í eldgosunum á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 4. júní 2024 17:00
Vinna í sex sólarhringa til að koma rafmagni á Allt kapp er nú lagt á að koma rafmagni aftur á í Grindavík en reiknað er með að það verði komið á síðar í vikunni. HS Veitur hóf í gærkvöldi að setja upp varatengingu til bæjarins eftir að skemmdir urðu á loftlínu við Grindavík í síðustu viku þegar að hraunflæði frá áttunda gosinu á svæðinu kveikti í loftlínu við bæinn. Unnið verður á vöktum næstu sex sólarhringa til að ljúka verkinu. Innlent 4. júní 2024 15:37
Virðist hafa dregið verulega úr krafti gossins Verulega virðist hafa dregið úr krafti eldgossins við Sundhnúk um klukkan tvö í nótt, að mati Eldfjalla og náttúruvárhóps Suðurlands. Innlent 4. júní 2024 09:57
Fylgjast grannt með nýrri sprungu innan varnargarðanna Veðurstofa Íslands fylgist grannt með sprungu sem opnaðist innan varnargarðanna nærri Grindavík á laugardaginn en gufa streymir frá sprungunni vegna mikils hita undir yfirborðinu. Þetta staðfestir náttúruvásérfræðingur Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi. Innlent 3. júní 2024 11:58
Tæplega sextíu sagt upp hjá Landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík Fimmtíu og sjö starfsmönnum hjá Landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík var sagt upp síðastliðinn fimmtudag, þrítugasta maí. Þetta staðfestir Jóhann Gunnarsson, yfirmaður landvinnslu Þorbjarnar, í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 3. júní 2024 11:56
Fylgjast grannt með hraunflæðinu Eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram og nú gýs á þremur gígum. Innlent 3. júní 2024 07:18
Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel Gestum verður hleypt ofan í Bláa lónið klukkan 11:30, í fyrsta skipti síðan eldgos hófst á miðvikudag. Ágætisútsýni er yfir gosstöðvarnar frá lóninu, en aðeins þeim sem eiga miða í lónið er hleypt inn á svæðið. Innlent 2. júní 2024 11:30
Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Enn mallar í eldgosinu við Sundhnúksgíga. Hraun flæðir úr þremur gosopum en tveimur gígum að sögn Bryndísar Ýrar Gísladóttur náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Hún segir stöðuna óbreytta. Hraun renni til tveggja átta. Frá syðri gíg rennur það til suðurs og suðvesturs eins og í síðasta gosi og frá nyrðri gíg rennur það til austurs. Innlent 2. júní 2024 10:10
Bláa lónið opnar aftur á morgun Bláa Lónið tekur aftur til starfa á morgun eftir að hafa lokað þegar svæðið var rýmt við upphaf eldgossins sem hófst 29. maí 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjunum. Innlent 1. júní 2024 14:39
Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið Útvegsbóndinn Hermann Ólafsson í Grindavík er kominn með rolluhótel skammt vestan bæjarins þar sem hann hýsir stóran hluta af sauðfé Grindvíkinga. Hann segir þetta sárabót vegna gistiheimilis sem hann neyddist til að loka vegna hamfaranna. Innlent 1. júní 2024 12:52
Eldgosið í beinni útsendingu Hér fyrir neðan má sjá vefmyndavélar Vísis sem eru staðsettar á svæðinu í kringum Sundhnúksgígaröðina. Gos hófst á svæðinu þann 29. maí síðastliðinn. Innlent 31. maí 2024 15:02
Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið, í samráði við Almannavarnir og Lögreglustjórann á Suðurnesjum, að halda áfram móttöku fasteigna í Grindavík strax á mánudag. Ákvörðunin er þó með þeim fyrirvara að aðstæður í bænum og við eldstöðvarnar breytist ekki til hins verra. Innlent 31. maí 2024 14:40
Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að ef fram heldur sem horfir virðist spámennska Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings og félaga vera á réttu róli. Þeir spá goslokum í Sundhnúkagígaröðinni í júlí og þá gæti verið komið 800 ára hlé á umbrotum að sögn Þorvaldar. Innlent 31. maí 2024 13:43
Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Mikið hefur dregið úr virkni eldgossins. Hraunrennsli er aðallega á svæðinu í kringum Hagafell. GPS mælingar sýndu að land í Svartsengi seig um fimmtán sentimetra þegar kvika hljóp þaðan í fyrradag áður en eldgosið hófst. Skjálftavirkni er lítil á svæðinu og gosórói helst nokkuð stöðugur. Innlent 31. maí 2024 11:48
Engar breytingar í nótt Engar verulegar breytingar urðu á eldgosinu á Reykjanesi í nótt. Skjálftavirkni á svæðinu er takmörkuð og gosórói hefur haldist nokkuð stöðugur. Innlent 31. maí 2024 06:49
Myndasyrpa: Vegurinn endar í hrauninu Hraun úr eldgosinu við Sundhnúk flæddi yfir vegi á Reykjanesskaga í gær. Nýjar myndir frá Vilhelm Gunnarssyni ljósmyndara Vísis sýna hvernig Grindavíkurvegur endar í hrauninu. Innlent 30. maí 2024 17:42
„Allt of snemmt að afskrifa Grindavík“ Formaður bæjarráðs í Grindavík segir stöðuna vegna eldgossins sem hófst í gær mun betri en í fyrstu leit út fyrir. Ljóst sé að varnargarðar hafi bjargað byggðinni oftar en einu sinni. Innlent 30. maí 2024 17:01
Eldsumbrotum á Reykjanesskaga ljúki líklega í sumar Prófessor í eldfjallafræði telur líklegt að eldsumbrotum á Reykjanesskaga ljúki í sumar. Sennilegast muni gosið sem nú stendur yfir lognast út af á næstu dögum, en þó sé mögulegt að það malli áfram jafnvel í einhverjar vikur líkt og síðasta gos. Innlent 30. maí 2024 12:55
Segir enga hættu á ferðum og yfirvöld komin í lið með íbúum Starfsmenn Einhamar Seafood unnu að því í morgun að koma óunnum fiski frá Grindavík en Stefán Kristjánsson, eigandi og forstjóri fyrirtækisins, segir yfirvöld mun samvinnufúsari núna varðandi aðgang að bænum en í fyrri gosum. Innlent 30. maí 2024 12:34
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent