

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Man. United fékk heimaleik og City mætir Liverpool bönunum
Það er búið að draga í sextán liða úrslit ensku bikarkeppninnar en næst síðasti leikur 32 liða úrslita úrslitanna fer fram í kvöld.

Kennir í brjósti um Arnór en er líka á förum
John Eustace, knattspyrnustjóri Blackburn, segir það hafa verið afar erfiða ákvörðun að taka Arnór Sigurðsson út úr leikmannahópnum og útiloka þannig að hann gæti spilað meira fyrir liðið það sem eftir lifir leiktíðar.

„Fólk má alveg dæma mig“
Tottenham-menn hafa átt afar erfiða daga að undanförnu en stjóri liðsins, Ange Postecoglou, vill að öll gagnrýni beinist að sér en ekki að leikmönnum liðsins.

Lögreglan rannsakar söngva um stunguárás
Í heimsókn sinni til Leeds í gær sungu sumir stuðningsmenn Millwall söngva sem gerðu grín að stunguárás sem átti sér stað fyrir tuttugu og fimm árum. Félögin vinna nú saman með lögreglu við að hafa uppi á stuðningsmönnunum og refsa þeim með viðeigandi hætti.

Slot sér ekki eftir því að hafa hvílt stjörnurnar
Arne Slot gerði tíu breytingar á liði Liverpool fyrir FA bikarleikinn sem tapaðist 1-0 gegn B-deildarliði Plymouth Argyle fyrr í dag. Hann sér ekki eftir því og segist ekki viss um að annars hefði leikurinn unnist.

Aston Villa áfram en vond bikarvika fyrir Spurs
Aston Villa er komið áfram í sextán liða úrslit FA bikarsins eftir 2-1 sigur gegn Tottenham. Morgan Rogers lagði fyrra mark heimamanna listilega vel upp og skoraði síðan sjálfur í seinni hálfleik. Mathys Tel skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham.

Liverpool úr leik eftir tap gegn liði Guðlaugs Victors
Liverpool er úr leik í FA bikarnum eftir 1-0 tap í fjórðu umferð, á útivelli gegn B-deildarliðinu Plymouth Argyle. Íslenski landsliðsmaðurinn og fyrrum leikmaður Liverpool, Guðlaugur Victor Pálsson, kom inn af varamannabekknum og hjálpaði til við að halda marki Plymouth Argyle hreinu.

Úlfarnir áfram eftir öruggan útisigur
Wolverhampton Wanderers eru á leið í sextán liða úrslit FA bikarsins eftir 0-2 sigur gegn Blackburn Rovers. Joao Gomes og Matheus Cunha skoruðu mörkin með einnar mínútu millibili í fyrri hálfleik.

Mætir Liverpool 15 árum eftir að hafa spilað með Gerrard: „Var svo stressaður“
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Plymouth Argyle mæta stórliði Liverpool í enska bikarnum í dag. Guðlaugur segir mikla spennu fyrir leiknum og ekki síst hjá honum sjálfum enda fyrrum leikmaður Rauða hersins.

Brighton sneri við eftir að hafa lent snemma undir
Brighton er komið áfram í sextán liða úrslit FA bikarsins eftir 2-1 sigur gegn Chelsea. Franski framherjinn Georginio Rutter kom að báðum mörkum heimamanna, sem lentu snemma undir.

Willum og félagar úr leik eftir svekkjandi tap gegn Newcastle
Newcastle komst áfram í sextán liða úrslit FA bikarsins með 2-3 sigri gegn Birmingham City. Willum Þór Willumsson spilaði síðasta hálftímann fyrir heimamenn en Alfons Sampsted kom ekki við sögu.

Stefán og félagar áfram í FA bikarnum eftir vítaspyrnukeppni
Sex leikir fóru fram síðdegis í fjórðu umferð, 32 liða úrslitum, FA bikarsins á Englandi. Útkljá þurfti tvær viðureignir með vítaspyrnukeppni.

Sjóðheitur Jón Daði gaf fyrstu stoðsendinguna
Jón Daði Böðvarsson hefur farið frábærlega af stað með sínu nýja liði, Burton. Hann lagði upp markið í 1-1 jafntefli gegn Blackpool í dag.

Biður liðið um að láta ekki blekkjast af sigri gærdagsins
Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United og núverandi sparkspekingur, segir að frammistaða liðsins hafi verið langt frá því að vera nógu góð þrátt fyrir sigur gegn Leicester í enska bikarnum í gær.

De Bruyne bjargaði City gegn C-deildarliðinu
Englandsmeistarar Manchester City lentu í vandræðum er liðið heimsótti C-deildarlið Leyton Orient í enska bikarnum í dag.

Maguire hetja United í bikarnum
Miðvörðurinn Harry Maguire var hetja Manchester United í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið í 2-1 endurkomusigri á Leicester City.

Unai Emery býst við miklu af Rashford
Marcus Rashford er orðinn leikmaður Aston Villa og gæti spilað sinn frysta leik í enska bikarnum á sunnudaginn.

Rodri í Meistaradeildarhópi Manchester City
Manchester City vonast greinilega eftir því að geta notað spænska miðjumanninn Rodri á þessu tímabili.

Sjáðu mörkin sem skutu Liverpool á Wembley
Liverpool vann öruggan 4-0 sigur á Tottenham Hotspur í síðari undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum á Anfield í gærkvöld. Liverpool vann einvígið samanlagt 4-1.

„Félagið setur mig í skítastöðu“
Þau óvæntu tíðindi bárust fyrr í dag að enska B-deildar liðið Blackburn Rovers hefur tekið landsliðsmanninn Arnór Sigurðsson úr 25 manna leikmannahópi sínum fyrir lokaátök tímabilsins. Arnór segir félagið setja sig í skítastöðu, hann fékk fréttirnar í morgun.

Spilaði leik með sirloin steik í skónum
James Collins, fyrrum varnarmaður Aston Villa og West Ham, hefur greint frá sérkennilegri nálgun á ristarmeiðsli sem plöguðu hann eitt sinn á hans ferli.

Tvíburar mætast í enska bikarnum: „Þetta verður mjög skrýtið“
Það verður tvíburaslagur í elstu fótboltakeppni heims, ensku bikarkeppninni, á morgun þegar Wigan og Fulham mætast í fjórðu umferð keppninnar.

Liverpool í tuttugasta og síðasta sæti í eyðslu
Janúarglugginn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta lokaðist í byrjun vikunnar og eitt af þeim liðum sem eyddu engu í honum var Liverpool. Þegar tveir síðustu gluggar eru teknir saman þá kemur athyglisverð staðreynd í ljós.

Vill að stuðningsfólkið syngi söng um sig og noti ABBA lag
Anthony Elanga er ein af ástæðunum fyrir því að Nottingham Forest hefur komið flestum á óvart með frábærri frammistöðu í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Hann er líka vinsæll í Nottingham-skíri og veit af því.

„Þeir voru of góðir fyrir okkur“
Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, hrósaði Liverpool liðinu eftir að Tottenham tapaði 4-1 á móti Liverpool í undanúrslitaleik enska deildabikarsins i kvöld.

Liverpool mætir Newcastle á Wembley eftir stórsigur á Spurs
Liverpool tryggði sér i kvöld sæti í fyrsta úrslitaleik tímabilsins þegar Liverpool vann 4-0 stórsigur á Tottenham í seinni undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum.

Sjáðu mörkin sem skutu Newcastle á Wembley
Newcastle United mun keppa til úrslita í enska deildabikarnum á Wembley í Lundúnum þann 16. mars næst komandi. Liðið vann 2-0 sigur á Arsenal í gær.

Newcastle gerði grín að afsökun Arteta
Newcastle-menn nýttu tækifærið eftir að hafa slegið Arsenal út úr enska deildabikarnum í gærkvöld og gerðu grín að Mikel Arteta, stjóra Arsenal.

Martröð fyrir Man. Utd og Slátrarann
Manchester United hefur nú staðfest að argentínski miðvörðurinn Lisandro Martínez hafi skaðað krossband í vinstra hné og ljóst að hann verður lengi frá keppni.

Newcastle lét draum Víkings rætast
„Hvílíkt kvöld í Newcastle!“ skrifaði Grammy-verðlaunahafinn Víkingur Heiðar Ólafsson á Instagram eftir að hafa verið sérstakur gestur á leik Newcastle og Arsenal í enska deildabikarnum í gærkvöld. Þar með rættist gamall draumur píanóleikarans.