

Allt það helsta sem viðkemur flugi.
Varaforseti Bandaríkjanna mun funda með forsætisráðherra þegar hann kemur til landsins. Hitti forseta Póllands í dag og ferðaðist til Írlands.
Fundurinn verður haldinn í húsi Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli að kvöldi 4. september þegar forsætisráðherra kemur til landsins af fundum í Svíþjóð og Danmörku.
Erlendir aðilar sem selja ferðir til Íslands segja bókunarstöðu ársins betri en á sama tíma fyrir ári auk þess sem þeir eru bjartsýnni á stöðuna fyrir komandi vetri.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata, sem var um borð í flugvél Icelandair sem bilaði á leið til svissnesku borgarinnar Zürich í morgun, segir flugstjóra og áhöfn hafa staðið fagmannlega að öryggislendingu vélarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Farþegaþotu Icelandair var snúið við á leið frá Keflavík til borgarinnar Zurich í Sviss í morgun.
Þingmaður Vinstri grænna, Kolbeinn Óttarsson Proppé, vill að Alþingi komi að ákvörðunum um umsvif herliðs hér á landi og hyggst leggja fram frumvarp til að breyta varnarmálalögum í þá átt.
Gert er ráð fyrir að innanlandsflug til Egilsstaða og Ísafjarðar dragist saman um 10 til 15 prósent í vetur að sögn forstjóra Air Icelandair Connect. Hann segir að hið opinbera verði að koma að rekstri innanlandsflugs.
Skiptar skoðanir eru á milli þingmannanna Jóns Gunnarssonar, Sjálfstæðisflokki og Hönnu Katrínar Friðriksson, Viðreisn, um hvort ríkið eigi að greiða niður rekstrarkostnað innanlandsflugfélaga með nokkrum hætti.
Landsréttur hafnaði kröfu Isavia um að úrskurður Héraðsdóms Reykjaness yrði felldur úr gildi.
Tvö þjófnaðarmál eru nú á borði lögreglunnar á Suðurnesjum. Málin komu bæði upp í komuverslun fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli fyrr í ágústmánuði.
Kanadíska flugfélagið Air Canada hefur verið dæmt til þess að greiða frönskumælandi hjónum tæpar tvær milljónir króna (CAD 21.000) fyrir að hafa brotið á tvítyngilögum Kanada.
"Við höfum átt í viðræðum við Airbus og Boeing varðandi langtíma flota félagsins og þær viðræður standa þannig að við stefnum að því að taka ákvörðun fyrir lok þessa ársfjórðungs en auðvitað hefur þetta svokallaða MAX-mál áhrif á þetta verkefni líka,“ segir forstjóri Icelandair Group.
Kyrrsetning Boeing 737-MAX flugvéla Icelandair veldur því að flugfélagið þarf að hátt í 150 flugmenn þurfa ýmist að fara í hálft starf hjá félaginu eða fara út hlutverki flugstjóra í starf flugmanns.
Landhelgisgæslunni stendur til boða að kalla út þyrlurnar ef þörf þykir á meðan þær eru á landinu.
Mesta innviðauppbygging í sögu Grænlands er nú að hefjast með uppbyggingu þriggja flugvalla. Kim Kielsen forsætisráðherra segir framtíð landsins bjarta,
Innanlandsflug á Íslandi gæti lagst af innan fárra ára verði ekki gripið til aðgerða, að mati framkvæmdastjóra flugfélagsins Ernis.
Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að félagið hafi gengið lengra en mörg önnur til að bæta loftgæði í háloftunum.
Aðgerðir til að bæta stöðu innanlandsflugs þola enga bið að mati þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Skoða þurfi hvort ríkið geti fjármagnað flugið líkt og almenningssamgöngur. Skoska leiðin dugi ekki til að mæta rekstrarvandanum en hún þurfi þó að koma til framkvæmda strax á nýju ári.
Bandarísk sprengjuflugvél af gerðinni B-2 Spirit staldraði við á Keflavíkurflugvelli í gær í tæpar tvær klukkustundir.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis kemur saman í fyrramálið klukkan hálf níu til að ræða stöðu innanlandsflugs á Íslandi.
Breytingarnar eru liður í hagræðingaraðgerðum Isavia vegna minni umsvifa á Keflavíkurflugvelli.
Tafir sem orðið hafa á því að Icelandair geti tekið Boeing 737 MAX þoturnar eru stærsta ástæða þess að Seðlabankinn er svartsýnni á það en áður hversu hratt ferðaþjónustan muni vinda ofan af áföllum sem yfir hana dunið að undanförnu.
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og stjórnarformaður Icelandair Group, sér fyrir sér að bætur frá Boeing til flugfélagsins verði að hluta til í formi reiðufjár. Bílasala hefur ekki aukist þótt kjarasamningar séu í höfn og óviss varðandi WOW Air er frá.
Loftslagshópur á vegum Landverndar boðar aktivisma og alvöru aðgerðir til að hvetja stjórnvöld til mun róttækari aðgerða í loftslagsmálum en nú liggur fyrir, eins og það er orðað í yfirlýsingu á vegum hópsins sem send var á fjölmiðla í nótt.
Flugfarþegar í innanlandskerfinu fyrstu sjö mánuði ársins hafa ekki verið færri síðan árið 2002. Samgönguráðherra segir þetta áhyggjuefni og að spýta þurfi í lófana. Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir verðið komið yfir sársaukamörk.
Eftirlaunasjóður starfsmanna bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing er á meðal þrjátíu stærstu hluthafa Arion banka með eignarhlut að jafnvirði tæplega 600 milljóna króna.
Fjölskylda Grants Wagstaff, sem lést í flugslysi í Eyjafirði, kveðst harmi slegin vegna minningarathafnar án sinnar vitneskju. Arngrímur Jóhannsson, sem flaug vélinni og ekkjan stefnir í dómsmáli, stóð að uppsetningu minnismerkis.
Rússneska flugvélaleigufyrirtækið Avia hefur höfðað mál á hendur bandaríska flugvélaframleiðandanum Boeing vegna 737 MAX 8-vélanna sem voru kyrrsettar um allan heim fyrr á þessu ári eftir tvö mannskæð flugslys.
Hópur flugliða sem starfar hjá Icelandair undirbýr nú hópmálsókn á hendur fyrirtækinu vegna skaða sem þeir telja sig hafa orðið fyrir vegna skertra loftgæða um borð.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur miklar áhyggjur af samdrætti í innanlandsflugi og vill ekki að Ísland breytist í borgríki. Það sem af er ári hefur farþegum um aðra flugvelli en í Keflavík fækkað um 12 prósent.