
Segja Boeing hafa þagað um gallann
Flugvélaframleiðandi Boeing er sagður hafa setið á upplýsingum um gallann sem talinn er hafa valdið því að 737 Max-vél Lion Air fórst í lok síðasta mánaðar.
Allt það helsta sem viðkemur flugi.
Flugvélaframleiðandi Boeing er sagður hafa setið á upplýsingum um gallann sem talinn er hafa valdið því að 737 Max-vél Lion Air fórst í lok síðasta mánaðar.
Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og reynslubolti í fluggeiranum telur ólíklegt að Icelandair og WOW Air verði rekin sem tvö mismunandi vörumerki til frambúðar í kjölfar samruna félaganna.
Þetta var gert vegna deilna um fjárframlög til flugfélagsins. Yfirvöld Frakklands segja haldlagninguna vera lokaúrræði sem þeir hafi gripið til eftir að viðræður virkuðu ekki.
Hlutabréfaverð í Icelandair hefur hækkað um næstum 7 prósent það sem af er degi.
Boðað hefur verið til hluthafafundar hjá Icelandair Group vegna fyrirhugaðra kaupa félagsins á WOW Air.
Bilun kom upp í Bombardier einkaflugvél með fimm manns um borð. Vélinni lent heilu og höldnu í Keflavík
Sveiflur á gengi krónunnar í október voru miklar en gengið hefur verið stöðugt það sem af er nóvembermánuði.
Isavia áætlar að fjárfesta fyrir um 90 milljarða króna í uppbyggingu og stækkun Keflavíkurflugvallar fram til ársins 2022.
Ef um alvarlega bilun væri að ræða væri búið að kyrrsetja vélarnar um allan heim.
Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur sent Icelandair og öðrum flugfélögum sem fljúga 737 Max-vélum félagsins leiðbeiningar um hvernig skuli bregðast við gallanum sem talið er að hafi leitt til hraps vélar Lion Air á dögunum.
Sigrún Björk Jakobsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia og hefur hún störf 4. desember.
Air Atlanta og systurfélag þess áforma að endurnýja flugflotann á næstu árum. Íslenska leiguflugfélagið í sterkri stöðu eftir margra ára endurskipulagningu og uppbyggingu.
Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir þó nokkrar fyrirspurnir hafa borist félaginu vegna kaupa Icelandair á flugfélaginu WOW air sem tilkynnt var á mánudagsmorgun.
Stjórnendur félagsins hyggjast ekki óska eftir undanþágu frá samkeppnislögum til þess að kaupin á WOW air komi til framkvæmda strax.
Umræddir áhafnarmeðlimir þóttust sofa á flugvallargólfi á sviðsettri mynd sem vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum fyrir nokkrum vikum.
Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri Icelandair Group segir fargjöld Wow Air mjög lág og ráða má af orðum hans að þau muni hækka. Hann segir að margvísleg samlegðaráhrif fylgi kaupum Icelandair á Wow Air gangi þau eftir.
Jóhannes Þór Skúlason formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að kaup Icelandair Group á WOW air hafi að mestu eytt óvissuástandi innan ferðaþjónustunnar á Íslandi.
Einn af fyrstu starfsmönnum WOW Air segir fólk hafa haft litla trú á flugfélagi Skúla Mogensen til að byrja með.
Skúli Mogensen, stofnandi WOW Air, segir að síðustu þrír sólarhringar hafi verið einhverjir þeir erfiðustu í lífi hans. Ákvörðunin um að selja flugfélagið til Icelandair hafi verið honum þungbær en um leið segist hann telja að það hafi verið rétt ákvörðun.
Sameining Icelandair og WOW eru frábær tíðindi að mati hagfræðingsins Heiðars Guðjónssonar.
Það sem af er morgni hafa hlutabréf í Icelandair lækkað um næstum sex prósent.
Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson.
Fjölmiðlar víða um heim hafa undanfarinn sólarhring eða svo fjallað um fyrirhuguð kaup Icelandair Group á flugfélaginu WOW air.
Samkvæmt reglum samkeppnisréttar getur samruni fyrirtækis á fallanda fæti, til dæmis fyrirtækis á barmi gjaldþrots, verið heimilaður þrátt fyrir að samruninn sé skaðlegur samkeppni.
Greinendur telja að kaup Icelandair Group á WOW air minnki líkurnar á því að íslensk ferðaþjónusta verði fyrir verulegum skakkaföllum í vetur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendasamtökunum.
Fjörugur dagur á markaði er nú að kvöldi kominn en gengi Icelandair Group hækkaði um 39,2% eftir að tilkynnt var um kaup félagsins á flugfélaginu WOW Air.
Hlutabréf í Icelandair Group hækkuðu um 39 prósent í Kauphöll Íslands í dag eftir að tilkynnt var kaup félagsins á öllu hlutafé í WOW Air. Kaupverðið er greitt með hlutabréfum í Icelandair. WOW Air verður sjálfstætt dótturfélag Icelandair. Félögin verða rekin áfram undir sömu vörumerkjum og engin breyting verður á rekstri þeirra fyrst um sinn.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir algjörlega ótímabært að gefa nokkuð út um um hve langan tíma mun taka að komast að niðurstöðu varðandi kaup Icelandair Group á WOW air.
Það er ekki ofsögum sagt að það hafi gustað um flugfélagið WOW air undanfarna mánuði en í dag var tilkynnt að fyrirtækið verði selt Icelandair Group, að uppfylltu samþykki hluthafafundar, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.