Axel með þriggja högga forskot Axel Bóasson er efstur í karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi eftir níu holur í dag. Mikill vindur er á Hólmsvelli og hefur skor manna því verið talsvert skrautlegra í dag en síðustu daga. Golf 23. júlí 2011 16:30
Ólafía Þórunn að rúlla Íslandsmótinu upp Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er með yfirburðastöðu á Íslandsmótinu í höggleik kvenna. Ólafía Þórunn er samtals á einu höggi undir pari eftir níu holur í dag og er eina konan á undir pari. Golf 23. júlí 2011 14:50
Ólafía Þórunn segist vera reynslunni ríkari í ár Axel Bóasson úr Keili og Alfreð Brynjar Kristinsson úr GKG eru efstir og jafnir eftir tvo fyrstu dagana á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru. Axel var með forystuna og átti eitt högg á Alfreð eftir fyrsta daginn en þeir hafa nú báðir leikið fyrstu 36 holurnar á átta höggum undir pari. Yngri systir Alfreðs, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, er með tveggja stiga forskot á Eygló Myrru Óskarsdóttur hjá konunum. Golf 23. júlí 2011 07:00
Axel og Alfreð jafnir eftir annan daginn - fjórtán kylfingar undir pari Axel Bóasson úr Keili og Alfreð Brynjar Kristinsson úr GKG eru efstir og jafnir eftir tvo fyrstu dagana á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru. Axel var með forystuna og átti eitt högg á Alfreð eftir fyrsta daginn. Þeir hafa nú báðir leikið fyrstu 36 holurnar á átta höggum undir pari. Það eru margir að spila vel enda fjórtán kylfingar að spila fyrstu tvo dagana undir pari. Golf 22. júlí 2011 20:09
Ólafía Þórunn með tveggja högga forskot hjá konunum - erfitt hjá Tinnu Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er efst eftir annan dag í meistaraflokki kvenna á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru. Ólafía Þórunn lék á tveimur höggum undir pari í dag eftir að hafa leikið á pari í gær. Hún er því á tveimur höggum undir pari eftir fyrstu 36 holurnar. Golf 22. júlí 2011 16:30
Allt gengur á afturfótunum hjá Tinnu Tinna Jóhannsdóttir úr Keili sem setti vallarmet á fyrsta hring Íslandsmótsins í höggleik í gær hefur farið skelfilega af stað á öðrum degi mótsins. Eftir níu holur er Tinna á sjö höggum yfir pari og fjórum höggum yfir pari samanlagt. Golf 22. júlí 2011 14:07
Strákarnir í stuði í Leirunni Axel Bóasson fór á kostum á fyrsta degi Íslandsmótsins í höggleik í gær. Axel spilaði á sjö höggum undir pari og hefur eins höggs forskot á Alfreð Brynjar Kristinsson og Kristján Þór Einarsson sem einnig voru í stuði á sex undir pari. Golf 22. júlí 2011 07:00
Tinna hóf titilvörnina á vallarmeti Tinna Jóhannsdóttir úr Golfklúbbnum Kili er í fyrsta sæti að loknum fyrsta degi á Íslandsmótinu í höggleik í kvennaflokki. Tinna lék holurnar átján á 69 höggum eða þremur höggum undir pari Hólmsvallar og setti vallarmet. Tinna lauk hringnum á fugli á átjándu holunni. Golf 22. júlí 2011 06:00
Tinna hóf titlvörnina á því að setja vallarmet Keiliskonan Tinna Jóhannsdóttir byrjar titilvörn sína vel á Íslandsmótinu í höggleik en hún er með eins höggs forystu á Eyglóu Myrru Óskarsdóttur úr GO eftir fyrsta daginn í meistaraflokki kvenna á Íslandsmótinu sem hófst í dag á Hólmsvelli í Leiru. Golf 21. júlí 2011 20:28
Axel efstur að loknum fyrsta degi Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili er efstur að loknum fyrsta degi á Íslandsmótinu í höggleik karla á Hólmsvelli í Leirunni. Axel spilaði á sjö höggum undir pari í dag og jafnaði vallarmetið. Golf 21. júlí 2011 17:49
Alfreð Brynjar: Við mættum bara í eins buxum Alfreð Brynjar Kristinsson spilaði frábærlega í Leirunni í dag og endaði á sex undir pari. Alfreð og vinur hans Þórður Ingi voru saman í holli og skörtuðu samskonar bláum buxum. Golf 21. júlí 2011 17:24
Ólafur Már: Kylfusveinninn var bara í súkkulaðinu Ólafur Már Sigurðsson spilaði holurnar átján á einu höggi undir pari. Hann var eldhress þegar blaðamaður hitti á hann og kannaðist ekkert við að hafa súkkulaði í sínum fórum. Golf 21. júlí 2011 16:15
Heiðar Davíð: Kominn tími á að sjá almennileg skor Heiðar Davíð Bragason úr GÓ spilaði Leiruna á þremur höggum undir pari í dag. Hann lauk hringnum með fallegu pútti fyrir fugli á 18. holunni. Golf 21. júlí 2011 15:30
Axel jafnaði vallarmetið Axel Bóasson úr Keili lék stórkostlegt golf á fyrsta degi Íslandsmótsins í höggleik í dag. Axel lék á 65 höggum og jafnaði vallarmetið í Leirunni. Golf 21. júlí 2011 12:55
Tiger rekur kylfusveininn sinn Eftir 12 ára samstarf er komið að leiðarlokum. Tiger Woods er búinn að reka kylfusveininn sinn, Steve Williams. Aftur nýtt upphaf hjá Tiger í þeirri von sinni að komast aftur á skrið. Golf 21. júlí 2011 10:15
Darren Clarke djammaði í alla nótt Norður-Írinn Darren Clarke, sigurvegari á Opna breska meistaramótinu í golfi, var þreytulegur að sjá þegar hann mætti á blaðamannafund í Sandwich í morgun. Ástæðan var ekki sú að Clarke var andvaka eftir sigurinn heldur stóðu fagnaðarlætin fram á morgun. Golf 18. júlí 2011 23:00
Birgir Leifur mætir ekki í titilvörnina á Íslandsmótinu Birgir Leifur Hafþórsson mun ekki mæta í titilvörnina á Íslandsmótinu í höggleik sem hefsta á fimmtudaginn á Hólmsvelli í Leiru. Birgir Leifur fékk boð um að taka þátt á áskorendamóti sem fram fer á Englandi á sama tíma og valdi hann að þiggja það boð og tilkynnti hann mótsstjórn um ákvörðun sína í dag. Golf 18. júlí 2011 22:18
Tiger Woods gaf Darren Clarke góð ráð fyrir lokadaginn Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods og Darren Clarke eru miklir vinir og Woods gaf Norður-Íranum góð ráð fyrir lokahringinn á Opna breska meistaramótinu. Clarke landaði sínum fyrsta sigri á stórmóti í dag en hann vildi ekki tjá sig um hvaða ráð Woods hefði gefið Clarke. Golf 17. júlí 2011 20:12
Darren Clarke sigraði á Opna breska Darren Clarke sigraði á Opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk á Royal St. Georges vellinu á Englandi í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 42 ára gamli Norður-Íri sigrar á stórmóti. Clarke lék samtals á 5 höggum undir pari og var hann þremur höggum betri en Bandaríkjamennirnir Dustin Johnson og Phil Mickelson. Clarke lék á pari vallar eða 70 höggum í dag. Golf 17. júlí 2011 17:08
Clarke með eins höggs forystu á Opna breska fyrir lokahringinn Darren Clarke hefur eins höggs forystu á Dustin Johnson fyrir loka hringinn á Opna Breska meistaramótinu í golfi en mótið fer fram á Royal St George's vellinum á Englandi. Golf 16. júlí 2011 22:10
Clarke og Glover efstir á opna breska Norður-Írinn Darren Clarke og Bandaríkjamaðurinn Lucas Glover eru efstir á opna breska eftir annan dag mótsins. Golf 16. júlí 2011 07:00
Tiger að verða blankur? Það er mikil umræða um það í dag hvort fjárhagsstaða Tiger Woods sé slæm og menn velta því jafnvel upp hvort hann sé að verða blankur. Golf 15. júlí 2011 19:45
Tom Watson fór holu í höggi Gamli refurinn Tom Watson fór holu í höggi á Opna breska meistaramótinu í golfi á Royal St. George's vellinum í morgun. Draumahöggið átti Watson á sjöttu holu vallarins sem er 163 metra löng par þrjú hola. Golf 15. júlí 2011 11:30
Tvítugur áhugamaður jafnaði við Bjorn Hinn tvitugi, enski áhugamaður, Tom Lewis, gerði sér lítið fyrir og jafnaði árangur Danans Thomas Bjorn á opna breska meistaramótinu í golfi í dag. Golf 14. júlí 2011 18:25
Björn á slæmar minningar frá Sandwich Daninn Thomas Björn er efstur þegar líður að lokum fyrsta dags á Opna breska meistaramótinu í golfi. Björn spilaði á fimm höggum undir pari í dag. Björn hefur aldrei unnið stórmót en komst næst því á Royal St. George's vellinum fyrir átta árum. Sama velli og mótið fer fram í ár. Golf 14. júlí 2011 16:00
Björn fer á kostum - róleg byrjun hjá McIlroy Daninn Thomas Björn hefur farið á kostum á fyrsta hringnum á Opna breska meistaramótinu í golfi á Royal St. George's vellinum í Sandwich á Englandi. Björn fékk sjö fugla á fyrsta hring mótsins sem hófst í dag. Golf 14. júlí 2011 11:30
Allra augu eru á Rory McIlroy Opna breska meistaramótið hefst í dag á Royal St. George-vellinum. Það er óhætt að segja að allra augu verða á hinum 22 ára gamla Norður-Íra, Rory McIlroy. Hann gerði sér lítið fyrir og vann opna bandaríska mótið á dögunum og er undir mikilli pressu fyrir mótið. Golf 14. júlí 2011 07:00
Tólf ára strákur fór hölu í höggi í Eyjum Daníel Ingi Sigurjónsson fór holu í höggi á golfvellinum í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Daníel sem er aðeins tólf ára gamall náði draumahögginu á 12. braut vallarins, par 3 holu. Á fréttasíðunni Eyjafrettir.is kemur fram að Daníel Ingi sé líklega yngsti kylfingurinn til þess að fara holu í höggi í Eyjum. Golf 12. júlí 2011 17:45
Rory McIlroy verður með Els og Fowler í ráshóp fyrstu tvo keppnisdagana Opna breska meistaramótið í golfi hefst á fimmtudaginn á Royal St. George‘s vellinum og er þetta í 140. sinn sem mótið fer fram. Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku hefur titil að verja en hann sigraði með nokkrum yfirburðum í fyrra á St. Andrews. Að venju verða margir spennandi ráshópar fyrstu tvo keppnisdagana og Norður-Írinn Rory McIlroy vekur mesta athygli allra keppenda. Golf 12. júlí 2011 10:00
Golfskóli Birgis Leifs: Einföld æfing til að bæta miðið Í þessum kennsluþætti úr Golfskóla Birgis Leifs fer atvinnukylfingurinn yfir einfalda æfingu til þess að bæta miðið hjá kylfingum. Birgir Leifur bendir á nokkrar algengar villur sem eru ríkjandi hjá mörgum kylfingum og lausnin er frekar einföld eins og sjá má í myndbrotinu. Kennsluefnið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Golf 11. júlí 2011 14:30
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti