Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. Innlent 4.9.2026 14:00
Af TikTok á skjáinn Skólinn eru nýir örþættir frá Sketsagerðinni, sem hefur notið vinsælda fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum, sem hefja göngu sína á Sýn+ þann 15. september. Þættirnir verða þrjátíu talsins, hver á bilinu ein til þrjár mínútur að lengd og verða þeir sýndir yfir þrjátíu daga tímabil. Bíó og sjónvarp 4.9.2026 12:12
Kínverskar stórstjörnur í haldi yfirvalda vegna rannsóknar um spillingu Kínverska badmintonsambandið hefur verið það sterkasta í íþróttinni síðustu ár. Zhang Jun, forseti sambandsins, og Xia Xuanze, varaforseti sambandsins sem er einnig landsliðsþjálfari með áherslu á einliðaleik, eru í haldi kínverskra yfirvalda vegna spillingar. Sport 4.9.2026 11:02
Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Stofnandi kínverska fjárfestinga- og fasteignafélagsins Evergrande Group hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan var um tíma auðugasti maður Asíu en fall Evergrande, sem var einn af hornsteinum kínverska hagkerfisins, hafði umfangsmikil áhrif á Kína og varð að eins konar táknmynd fyrir vandræði á fasteignamarkaði Kína. Viðskipti erlent 20. ágúst 2026 13:50
Lentu geimflaug í fyrsta sinn Kínverjum tókst í fyrsta sinn í dag að lenda fyrsta þrepi geimflaugar aftur á jörðinni. Hingað til hafa Bandaríkjamenn og þá fyrirtækin SpaceX og Blue Origin verið einu aðilarnir sem hafa búið yfir slíkri tækni, sem dregið getur verulega úr kostnaði við að koma farmi á braut um jörðu. Erlent 19. ágúst 2026 15:51
Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Stjórnvöld á Taívan stóðu í gær fyrir æfingu á fjarskiptatruflunum í kjölfar ímyndaðrar árásar eða innrásar af hálfu Kína. Æfingar vegna mögulegrar árása Kínverja eru reglubundin viðburður en þetta var fyrsta æfing Taívana þar sem gert var ráð fyrir umfangsmiklum fjarskiptatruflunum. Erlent 11. ágúst 2026 10:03
Tollar kísilframleiðslu í Kína Donald Trump tilkynnti í gærkvöldi tolla á fjölkristallaðan kísil og kísilafurðir frá Kína sem notaðar eru í framleiðslu sólarrafhlaðna og hálfleiðara. Markmiðið með þessum fimmtán prósenta tollum er að ýta undir innlenda framleiðslu í Bandaríkjunum en hann tekur þó ekki gildi fyrr en eftir þingkosningarnar í nóvember en kjósendur vestanhafs hafa ítrekað kvartað yfir hækkandi verðlagi í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 7. ágúst 2026 09:44
AGS og gengismálin: Enn er verk að vinna Þótt besta leiðin til að takast á við slíkt ójafnvægi sé að laga undirliggjandi veikleika í innlendri efnahagsstefnu þýðir það ekki að mat á of- eða vanmati gjaldmiðla hafi ekki mikilvægt upplýsingagildi. Það verður ekki nægilega undirstrikað að renminbi er gjaldmiðill sem kínversk stjórnvöld stýra með mjög virkum hætti. Umræðan 31. júlí 2026 11:26
Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Hópur bandarískra þingmanna hefur farið fram á við ríkisstjórn Donalds Trump að refsiaðgerðum verði beitt til að reyna að stöðva umfangsmiklar og oft ólöglegar veiðar Kínverja sem kallaðar eru „vistmorð“. Peningar sem áttu að fara í eftirlit með þessum veiðum fóru í allt annað. Erlent 24. júlí 2026 14:50
Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Air China hefur hafið sölu á flugferðum frá Keflavík til Peking, höfuðborgar Kína. Jómfrúarflugið verður 26. október næstkomandi en Air China er eitt stærsta flugfélag heims og ríkisflugfélag Kína. Innlent 23. júlí 2026 12:00
Óttast kínverska gervigreind Forsvarsmenn bandarískra gervigreindarfyrirtækja eins og OpenAI og Anthropic hafa varað ráðamenn þar í landi við hraðri framþróun gervigreindar í Kína. Í Washington DC stendur nú yfir umræða um það hvort að mögulega eigi að banna bandarískum fyrirtækjum að nota kínverska gervigreind. Viðskipti erlent 21. júlí 2026 14:53
Vinsælasta kvikmyndin í Kína er um kvennafótbolta og kungfú Kvikmyndaleikstjórinn Stephen Chow frá Hong Kong er mættur aftur með nýja kvikmynd og nú hefur hann kvennaknattspyrnulið að stjörnum sínum. Myndin er vinsæl en viðbrögðin frá Suður-Kóreu eru allt önnur þar sem vonda liðið í myndinni kemur þaðan. Fótbolti 20. júlí 2026 15:32
Auka þrýstinginn á Taívan verulega Yfirvöld í Taívan segja ferðum skipa Strandgæslu Kína og kínverskra rannsóknarskipa kringum eyjuna hafa fjölgað mjög. Kínverjar séu að auka þrýstinginn á eyríkið verulega og mögulega að undirbúa að setja Taívan í herkví, ef til átaka kemur. Erlent 20. júlí 2026 10:50
Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskar venjur og regluverk. Viðskipti innlent 12. júlí 2026 00:01
Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Síðustu ár hafa reglulega borist fréttir af því að fyrirhugað sé að koma á beinu flugi milli Kína og Íslands en nú er útlit fyrir að fréttirnar verði loks að veruleika. „Stutt er í að dagsetning fyrsta flugsins verði kynnt og sala miða hefjist,“ segir Kínverska sendiráðið á Íslandi í svari við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 11. júlí 2026 17:00
Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Kínversk yfirvöld hafa staðfest að fimmtán manns hafi látist og að níu sé saknað í tengslum við mikið óveður sem þar gengur yfir. Mikill vindur og úrkoma hefur leitt til mikilla aurskriða og flóða í landinu. Erlent 7. júlí 2026 06:15
Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Kínverjar skutu langdrægri eldflaug með gervi kjarnaoddi í Kyrrahaf í morgun en um er að ræða fyrstu tilraunir Kínverja með langdrægar eldflaugar frá árinu 2024. Fyrir þann tíma höfðu Kínverjar ekki tilkynnt um tilraunir með langdrægar flaugar í yfir fjörtíu ár. Erlent 6. júlí 2026 07:17
Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Söngkonan Laufey Lín er lofsungin af starfsmönnum kínverska sendiráðsins á Íslandi. Laufey Lín er stödd í Kína þessa dagana á tónleikaferðalagi. Tónlist 27. júní 2026 14:02
Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Lítilli flugvél var flogið á hæsta skýjakljúf kínversku höfuðborgarinnar Peking í dag. Erlendir fjölmiðlar segja að byggingin hafi verið rýmd og að brak úr vélinni hafi fallið til jarðar. Erlent 26. júní 2026 13:41
Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Í suðaustanverðu Indlandshafi á um sjö kílómetra dýpi hafa vísindamenn uppgötvað eitthvað sem lýst er sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“. Þar hafa þegar verið taldar hátt í fimm hundruð hvalaleifar á svæði sem teygir sig yfir um tólf hundruð kílómetra. Erlent 11. júní 2026 23:17
Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest. Innlent 9. júní 2026 22:03
Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Xi Jinping, forseti Kína, sótti í morgun kollega sinn Norður-Kóreu heim. Kim Jong Un tók vel á móti Xi og saman hétu þeir því að styrkja samband ríkjanna. Dregið hefur úr áhrifum Kínverja í Norður-Kóreu, samhliða auknum áhrifum Rússa þar og auknu efnahagslegu sjálfstæði Kóreumanna. Erlent 8. júní 2026 16:48
Taívanar líta til Úkraínu og Íran Yfirvöld í Taívan ætla að fjölga verulega eldflaugum sem ætlað er að granda skipum. Markmiðið er að styrkja varnir eyríkisins gegn mögulegri innrás Kínverja á komandi árum og stendur til að fjölga eldflaugum og flugskeytum verulega. Ráðamenn í eyríkinu vilja læra af átökunum í bæði Úkraínu og Persaflóa, þar sem ríki hafa varist árásum mun öflugri andstæðinga. Erlent 4. júní 2026 08:29
Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Ráðamenn víða um Asíu hyggja á aukna hernaðaruppbyggingu og þá að miklu leyti vegna áhyggja af gífurlegri uppbyggingu í Kína. Kínverjar kalla eftir samstöðu gegn nýju hernaðarbrölti Japana, sem hafna slíkum ásökunum og benda á uppbygginguna í Kína. Erlent 1. júní 2026 16:03
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent