Flestir tölvuleikir fjölskylduvænir Ian Livingstone, forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Eidos, heldur fyrirlestur á ráðstefnunni You Are in Control. Fréttablaðið ræddi við hann um Eve Online, ofbeldi í tölvuleikjum og framtíð iðnaðarins. Leikjavísir 21. september 2010 06:00
Super Mario 25 ára í dag Super Mario og félagar hans í samnefndum tölvuleikjum fagna 25 ára afmæli sínu í dag. 250 milljón leikir hafa verið seldir frá því fyrsti Super Mario leikurinn var gefinn út af Nintendo tölvuleikjarisanum og því er um að ræða vinsælustu tölvuleikjaröð í sögunni. Leikjavísir 13. september 2010 09:11
Við eigum skilið að fá athyglina Íslenskt U21 árs landslið hefur aldrei komist í lokakeppni stórmóts í knattspyrnu. Liðið kemst skrefi nær því markmiði með sigri á Þjóðverjum í dag. Liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum en þau mætast í Kaplakrika í undankeppni EM klukkan 16.15 í dag. Leikjavísir 11. ágúst 2010 08:15
Nintendo, Sony og Microsoft kynna magnaðar nýjungar fyrir leikjatölvur Risarnir á leikjatölvumarkaðnum láta finna fyrir sér á stærstu samkomu tölvuleikjabransans, E3 í Kaliforníu. Leikjavísir 16. júní 2010 15:00
Rooney fær sér skál af morgunkorni fyrir leiki Leikjaundirbúningur hjá einum besta knattspyrnumanni heims, Wayne Rooney, er ekki eins heilsusamlegur og margur hefði haldið. Ólíkt flestum fær hann sér ekki pasta eða gufusoðið grænmeti. Hann kýs frekar skál af morgunkorni en það er vani sem hann losnar ekki við. Enski boltinn 7. maí 2010 18:15
Nýtt myndband CCP slær öllu við Myndböndin frá fyrirtækinu í Grandagarði hafa verið flott hingað til en þetta slær öllu öðru við. Leikjavísir 6. maí 2010 16:21
Terry og James eru gáfaðastir í enska landsliðinu John Terry og David James eru afar vel gefnir sem og vel máli farnir að mati vængmannsins Shaun Wright-Phillips sem leikur með Man. City. Enski boltinn 3. mars 2010 13:45
IBM kynnir nýjan öflugan og orkusparandi örgjörva Alþjóðlegi upplýsingatæknirisinn IBM mun á morgun, fimmtudag, kynna fyrir íslenskum upplýsingatækniiðnaði IBM POWER7 örgjörvann sem er einn allra öflugasti örgjörvi heims nú um stundir miðað við afkastagetu. Leikjavísir 3. mars 2010 10:46
PS3 leikjatölvan hökkuð Bandaríski tölvuþrjóturinn George Hotz, sem var frægur sem unglingur þegar hann hakkaði iPhone símann frá Apple, segist hafa leikið sama leikinn á PlayStation 3 leikjatölvuna vinsælu. Leikjavísir 25. janúar 2010 20:05
Mikki mús verður ofurhetja í tölvuleik Áttatíu árum eftir að Mikki Mús var kynntur til sögunnar á hvíta tjaldinu hefur honum verið úthlutað aðalhlutverkinu í tölvuleik, Epic Mickey, sem settur verður á markað fyrir Wii-leikjatölvur Nintendo á næsta ári. Leikjavísir 4. nóvember 2009 04:00
Tölvugúrú sækir Ísland heim Dr. Frank Soltis, aðalhönnuður IBM POWER örgjörvans sem meðal annars er notaður í PlayStation 3 og Xbox 360 leikjavélunum er væntanlegur hingað til lands á IBM Power ráðstefnu Nýherja og Skyggnis. Innlent 18. september 2009 11:51
Góð þátttaka á Guitar-Hero móti Mikill áhugi og stemmning var hjá ungu kynslóðinni fyrir óopinberu Íslandsmóti í Guitar Hero - World Tour tónlistartölvuleiknum fyrir PlayStation 3 í versluninni Sense Senter í Kringlunni um síðustu helgi. Í tilkynningu frá Sense segir að 17 lið hafi skráð sig til leiks en keppt var í 3-4 manna liðum þar sem liðsmenn spiluðu á gítar, bassa, trommur og sungu með. Leikjavísir 7. september 2009 16:09
Ný tegund af PlayStation 3 Ný tegund af PlayStation 3-tölvunni kemur út 1. september. Harði diskurinn hefur verið stækkaður úr 80 GB yfir í 120 GB og öll innri hönnun vélarinnar hefur verið tekin í gegn, sem skilar sér í léttara og minna umfangi. Leikjavísir 29. ágúst 2009 01:45
Tetris er 25 ára Það var árið 1984 sem þetta góðkunna hugarfóstur sovéska tölvunarfræðingsins Alexey Pajitnov leit dagsins ljós en hann skrifaði frumgerð leiksins á Elektronika 60-tölvu sem flestum þætti víst allforn gripur nú til dags. Leikjavísir 8. júní 2009 08:13
Allir Xbox eigendur fá 2ja ára neytendaábyrgð Hátækni hefur ákveðið að beita sér fyrir því að öllum Xbox eigendum, sem keyptu vélar sínar á Íslandi, sé tryggð lögbundin 2ja ára neytendaábyrgð. Hátækni og Microsoft á Íslandi hafa nú náð samkomulagi um þessa 2ja ára ábyrgð. Viðskipti innlent 3. mars 2009 12:00
Nikita hannar föt fyrir tölvuleik Föt frá íslenska fatahönnunarfyrirtækið Nikita verður í tölvuleiknum Stoked, sem XBOX 360 mun gefa út núna á þriðjudaginn. Leikurinn hefur verið markaðssettur um víða veröld. Viðskipti innlent 22. febrúar 2009 11:54
Íslenskur tölvuleikur hlaut norrænan styrk Átta ný verkefni sem tengjast þróun tölvuleikja hlutu styrk í síðustu umferð styrkveitinga úr Norrænu tölvuleikjaáætluninni. Þeirra á meðal er "Vikings of Thule", sem er þróað af Gogogic ehf. á Íslandi fyrir PC. Hlýtur verkefnið 400.000 danskar kr. í styrk eða sem svarar til um 8 milljónum kr.. Leikjavísir 16. desember 2008 11:18
Sony býst við minni hagnaði Japanski hátækniframleiðandinn Sony reiknar með rúmlega helmingi minni hagnaði á árinu en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Sterkt jen, samdráttur og verðstríð við helstu keppinauta skýra niðurfærsluna. Leikjavísir 23. október 2008 09:31
Margar hugmyndir á Hugsprettu Tölvukerfi til að greina umræðu á netinu er meðal þess sem kynnt var á Hugsprettu stefnumótunarfundi ungs fólks um framtíðarmöguleika Íslands sem haldinn var í dag. Leikjavísir 18. október 2008 20:45
Abba SingStar væntanlegur „Ég held að þetta verði þrefalt eða fjórfalt á við vinsældir fyrri SingStar-diska miðað við gífurlegar vinsældir Mamma mia! og tónlistarinnar úr myndinni,“ Segir Ólafur Þór Jóelsson, vörustjóri tölvuleikja hjá Senu, um nýjasta Singstar-tölvuleikinn sem er væntanlegur á markað um miðjan nóvember. Diskurinn inniheldur 30 vinsælustu lög Abba fyrir Playstation 2 og 3, og geta eigendur þessara leikjatölva því bráðlega sungið með lögum á borð við Mamma Mia, Gimme Gimme Gimme og Dancing Queen. Leikjavísir 11. september 2008 00:01
Hagnaður Sony lækkar mikið Hagnaður japanska tölvurisans Sony hefur lækkað um nær helming milli ársfjórðunga. Á öðrum ársfjórðungi nam hagnaðurinn um 26 milljörðum kr, en hann var tæplega 50 milljarðar kr. á fyrsta ársfjórðung ársins. Leikjavísir 29. júlí 2008 10:33
Microsoft hressir upp á Xbox í samkeppninni Hugbúnaðarrisinn Microsoft hefur ákveðið að þrefalda minnisrými Xbox 360-leikjatölvunnar með það fyrir augum að styrkja stöðu sína gagnvart keppinautunum Nintendo og Sony. Leikjavísir 13. júlí 2008 20:22
Viltu setjast í stól seðlabankastjóra? Í myntsafni Seðlabanka Íslands er tölvuleikur þar sem gestir geta spreytt sig á því að sitja í stól bankastjóra Seðlabanka Íslands. Leikmenn fá upplýsingar um gang mála í efnahagslífinu og eiga að bregðast við með því að nota sömu stýritæki og bankastjóri Seðlabanka Íslands hefur á að ráða. Markmið leiksins er að halda verðlagi sem næst verðbólgumarkmiði bankans, sem er sama markmið og Seðlabanki Íslands hefur. Leikjavísir 11. júní 2008 06:30
Á kafi í forarpytti Liberty Hversu langt myndirðu ganga til að ná fram hefndum? Og hvað myndirðu vera tilbúinn til að gera til að upplifa hinn ameríska draum? Þetta eru spurningar sem Nico Bellic, austurevrópskur innflytjandi, þarf að svara við komuna til Ameríku. Leikjavísir 13. maí 2008 00:01
Þúsund keyptu leik Um eitt þúsund manns gerðu sér ferð í Elko og BT í Skeifunni aðfaranótt þriðjudags til að festa kaup á tölvuleiknum Grand Theft Auto IV. Leikjavísir 1. maí 2008 00:01
Eldsnöggir að hækka verð á tölvuleikjum Tölvuleikir hafa hækkað í verði síðan krónan fór á skrið fyrir nokkrum dögum. Í verslunum BT eru þeir nú að meðaltali þrettán prósentum dýrari en 1. mars, samkvæmt verðkönnunum Fréttablaðsins og leikjasíðunnar GameOver.is. Í Elko hafa þeir hækkað um sex prósent að meðaltali. Leikjavísir 20. mars 2008 00:01