Rúmlega 100 milljóna króna bótakrafa í Shooters-málinu Réttargæslumaður dyravarðarins sem er lamaður fyrir neðan háls eftir líkamsárás fyrir utan skemmtistaðinn Shooters þann 26. ágúst fer fram á rúmlega 100 milljónir króna í miskabætur frá árásarmanninum. Innlent 25. nóvember 2018 07:00
Réðst að lögreglubíl og beraði sig Karlmaður var handtekinn í miðborg Reykjavíkur um klukkan þrjú í nótt eftir að hann réðist að lögreglubíl, beraði sig og fór ekki að fyrirmælum. Innlent 24. nóvember 2018 08:06
Sérsveit vopnast gegn erlendum herþjálfuðum glæpamönnum Bakgrunnur og þjálfun erlendra glæpamanna, sem koma hingað til lands vegna tengsla við skipulagða glæpahópa hér á landi, er þess eðlis að hann kallar á aukinn viðbúnað lögreglu. Innlent 23. nóvember 2018 07:00
Grunuð um að hafa reynt að drepa tengdason sinn og afmá verksummerki Einnig grunuð um að hafa stungið á hjólbarða bíls til að varna því að maðurinn kæmist í burtu. Innlent 22. nóvember 2018 16:34
Tvö og hálft ár fyrir innbrotið í Gullsmiðju Óla Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir innbrot í skartgripabúðina Gullsmiðju Óla í Hamraborg í Kópavogi í maí síðastliðnum og sautján umferðar- og fíkniefnalagabrot. Innlent 22. nóvember 2018 13:15
Áfram í haldi vegna árásar sem leiddi til lömunar dyravarðar Maðurinn hefur verið í haldi vegna málsins frá því hann var handtekinn í lok ágúst. Innlent 21. nóvember 2018 17:29
Enn ekkert spurst til meintra PIN-númeraþjófa Ekkert hefur komið út úr rannsókn á máli fjögurra manna sem grunaðir eru um að hafa stolið háum fjárhæðum af eldra fólki í september. Innlent 21. nóvember 2018 13:14
Nokkur vitni komið til lögreglu eftir auglýsingu Rannsókn á vettvangi stórbrunans við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði heldur áfram í dag. Innlent 21. nóvember 2018 11:33
Óvænt tap Rússa í forsetakjöri Interpol Suður-Kóreubúinn Kim Jong-yang bar óvænt sigur úr bítum í kosningum um forseta alþjóðalögreglunnar Interpol á ársþingi lögreglunnar í Dubai. Flestir höfðu talið líklegt að mótframbjóðandi hans, Rússinn Alexander Prokopchuk, yrði kjörinn forseti. Erlent 21. nóvember 2018 07:56
Stal síma og lyfjum af bókasafnsgesti Lögreglumenn höfðu hendur í hári þjófsins. Innlent 21. nóvember 2018 07:31
Fjögurra ára drengur beindi leisigeisla að umferð Sterkum grænum leisergeisla var beint að umferð í Reykjanesbæ um helgina. Innlent 20. nóvember 2018 12:39
Lögregla og björgunarsveitir leituðu manns fyrir norðan Lögreglan á Norðurlandi eystra fékk beiðni um klukkan 17 í gær um eftirgrennslan eftir manni sem hafði ekki skilað sér heim. Innlent 20. nóvember 2018 07:14
Tíðni vopnaðra útkalla sérsveitarinnar margfaldast undanfarin ár Vopnuð útköll og verkefni sérsveitarinnar nærri þrefölduðust milli áranna 2016 til 2017, voru 108 árið 2016 en 298 árið á eftir. Innlent 20. nóvember 2018 07:00
Fleiri kærur vegna byrlunar Vísbendingar eru um mikla fjölgun kæra til lögreglu á undanförnum áratug í málum þar sem einstaklingur telur að sér hafi verið byrluð ólyfjan. Innlent 20. nóvember 2018 06:15
Ók af vettvangi þar sem þrjár ungar konur slösuðust Karlmaður um tvítugt sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Kópavogi síðdegis laugardaginn 24. febrúar. Innlent 19. nóvember 2018 09:45
Sannfærð um íkveikju og ósátt við ákvörðun lögreglu Andrea Kristín Unnarsdóttir, sem varð fyrir þriðja stigs bruna þegar kveikt var í heimili hennar á Stokkseyri sumarið 2017, segist furða sig á vinnubrögðum lögreglu í málinu. Samkvæmt lögreglunni á Suðurlandi telst málið óupplýst þó að grunur hafi verið uppi um íkveikju. Innlent 16. nóvember 2018 10:45
Árekstur á Breiðholtsbraut Árekstur tveggja bíla varð á Breiðholtsbraut við Skógarsel rétt fyrir klukkan átta í morgun. Innlent 15. nóvember 2018 09:09
Handteknir vegna gruns um líkamsárás og rán Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu. Innlent 15. nóvember 2018 07:25
Þyrfti fjárveitingu til að rannsaka Geirfinnsmál Settur saksóknari vekur athygli ríkissaksóknara á ábendingum um afdrif Guðmundar og Geirfinns. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu liggur undir feldi. Lögreglan á Suðurnesjum segir allar ábendingar vel þegnar. Innlent 15. nóvember 2018 07:00
Úr gæsluvarðhaldi í farbann vegna sex kílóa af hassi Héraðsdómur Suðurlands hefur úrskurðað 21 árs gamlan íslenskan karlmann í farbann til 19. desember næstkomandi en hann var handtekinn fyrir viku eftir að í bíl hans fundust tæp sex kíló af hassi. Innlent 14. nóvember 2018 16:45
Fluttur strax til afplánunar eftir afskipti lögreglu Lögregla hafði haft afskipti af manninum og konu sem hann var með vegna vörslu fíkniefna. Innlent 14. nóvember 2018 07:24
Aurskriða á Akureyri Í gærkvöldi féll lítil aurskriða á og yfir hitaveituveginn og hiltaveitulögnina, sem liggur til suðurs frá Miðhúsabraut, ofan við Gróðrarstöðina og Háteig Innlent 13. nóvember 2018 06:28
Neitar að hafa stolið skútunni Farbann yfir manninum hefur verið framlengt þangað til 10. desember næstkomandi. Innlent 12. nóvember 2018 13:19
Sæbraut opnuð á ný Sæbraut hefur verið lokað í vesturátt frá Kringlumýrarbrayt vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð um klukkan 11:30 í dag. Innlent 12. nóvember 2018 12:04
Brotist inn í leikskóla í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að sinna allmörgum útköllum vegna innbrota í gær og í nótt. Innlent 12. nóvember 2018 06:49
Segir lögreglu hafa farið offari í meðferð á sykursjúkum dreng Sautján ára drengur var vistaður í fangaklefa lögreglu á Hverfisgötu eftir að starfsmaður á skólaballi kom að honum sprauta sig með insúlíni inni á baðherbergi. Innlent 11. nóvember 2018 20:00
Ósáttur farþegi kýldi leigubílstjóra Leigubílstjóri var kýldur af ósáttum farþega klukkan fimm í nótt að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 11. nóvember 2018 12:23
Grunaður um ósæmilega hegðun Ölvaður maður var handtekinn á veitingahúsi í miðborg Reykjavíkur seint í nótt. Maðurinn er grunaður um ósæmilega hegðun. Innlent 11. nóvember 2018 07:15
Reyndi að bíta sjúkraflutningamann Maðurinn er sagður hafa verið í annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu. Innlent 10. nóvember 2018 19:11
Sautján ára tekinn á 175 í Ártúnsbrekku Sautján ára ökumaður var gripinn á 175-180 kílómetra hraða í Ártúnsbrekku í gærkvöldi. Var ökumaðurinn sviptur ökuréttingum til bráðabirgða. Innlent 10. nóvember 2018 07:26