Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Það hefur margt á daga Sævars Breka drifið en hann myndar tvíeykið NUSSUN ásamt Agli Breka. Þeir stóðu fyrir stórum útgáfutónleikum í síðustu viku þar sem þeir gáfu út stuttmynd og tónlistarmyndband og á föstudag eignuðust Sævar Breki og unnusta hans Guðrún Lóa svo tvíbura. Tónlist 9. desember 2024 14:03
„Hér hvílir sannleikurinn“ Rebekka Sif Stefánsdóttir fjallar um nýjustu bók Jóns Kalman á menningarvefnum Lestrarklefinn. Rebekka hefur þetta að segja um bókina: Lífið samstarf 9. desember 2024 11:25
Var Kurt Cobain myrtur? Allt frá andláti Kurt Cobain, forsöngvara hinnar íkonísku grunge hljómsveitar, Nirvana, árið 1994, hafa þrálátar samsæriskenningar um að honum hafi verið komið fyrir kattarnef verið á kreiki. Lífið 9. desember 2024 10:03
„Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson segir svo gott sem alla sem komu að sjónvarpsþáttunum Iceguys í upphafi hafa haft miklar efasemdir um verkefnið. Hann hafi sjálfur verið efins, handritshöfundurinn Sóli Hólm haft sínar efasemdir og forráðamenn Símans sömuleiðis. Hannes þurfti auk þess að heyra sjálfur í Rúriki Gíslasyni og sannfæra hann um verkefnið. Bíó og sjónvarp 8. desember 2024 15:51
Enginn ætti að lesa skilaboðin sem honum hafi borist Írski leikarinn Barry Keoghan hefur fengið sig fullsaddan af hatri í hans garð á netinu. Hann sættir sig ekki við að fólk sitji um heimili sonar hans og dreifi fölskum sögusögnum. Keoghan hætti nýlega með bandarísku söngkonunni Sabrinu Carpenter en sá orðrómur gekk að hann hefði haldið framhjá henni. Lífið 8. desember 2024 15:51
Rúbínrauðu skór Dóróteu seldust á 3,8 milljarða Rúbínrauðu skór Dóróteu sem Judy Garland klæddist í Galdrakarlinum í Oz seldust á uppboði í Dallas á laugardag fyrir tæpa fjóra milljarða króna. Skórnir eiga sér merkilega sögu því þeim var stolið árið 2005 og fundust ekki fyrr en þrettán árum seinna. Tíska og hönnun 8. desember 2024 11:31
Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Einn þekktasti leikari og grínisti landsins Vilhelm Neto hefur breytt einu af sínu uppáhalds popplögum frá Japan í íslenskt jólalag ásamt söngkonunni og leikkonunni Vigdísi Hafliðadóttur. Vilhelm sem alltaf er kallaður Villi segist sitja á fleiri erlendum lögum sem hann er handviss um að myndu sóma sér vel sem jólalög. Tónlist 7. desember 2024 20:00
Með óútskýrða flogaveiki í kjölfar fæðingar Jónína Margrét Bergmann byrjaði að glíma við illvíga og óútskýrða flogaveiki í kjölfar fæðingar eldri dóttur sinnar árið 2005. Með árunum þróaðist sjúkdómurinn yfir í sex tegundir af flogum, með mismunandi einkennum og mislöng, allt frá nokkrum mínútum upp í 36 klukkustundir. Lífið 7. desember 2024 08:01
„Þetta drepur fólk á endanum“ „Ég gat ekki staðið upp í margar vikur. Það var mjög auðmýkjandi að geta bókstaflega ekki hreyft sig. Kærastinn minn þurfti að bera mig allt,“ segir rísandi stórstjarnan, leikkonan og söngkonan Elín Hall sem hefur átt risastórt ár en lenti á vegg eftir að hafa verið á ofsahraða að láta draumana rætast. Blaðamaður ræddi við Elínu um uppbygginguna, listina, lífið og tilveruna. Lífið 7. desember 2024 07:02
Gæsahúð þegar dansarar sviptu hulunni af goðsagnakenndum bíl „Þegar við frumsýnum svona flaggskip þá tjöldum við öllu til, þetta er goðsagnakenndur bíll sem á stóran stað í hjarta margra. Okkar markmið var að skapa hughrif og tilfinningar og það tókst. Fólk fékk gæsahúð,“ segir Sigrún Ágústa Helgudóttir, vörumerkjastjóri Mercedes-Benz, en hún fékk listræna stjórnandann Stellu Rósenkranz til að hanna opnunaratriði frumsýningar Öskju á rafmögnuðum G-Class. Lífið samstarf 6. desember 2024 15:39
„No Hingris Honly Mandarin“ Myndlistarmaðurinn Jón Óskar opnaði sýningu sína í gær á Vinnustofu Kjarval, nýjum samkomu- og sýningarsal á vegum Kjarvalsstofu í Austurstræti 10a á 2. hæð. Við þetta tækifæri var Jón Óskar gerður að sérlegum heiðurslistamanni staðarins. Lífið 6. desember 2024 15:36
Segist vera sá listamaður sem vorkennir sér mest Halldór Armand rithöfundur lét krossfesta sig í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi þegar rætt var við hann á skemmtistaðnum Röntgen í miðbæ Reykjavíkur. Halldór fékk ekki listamannalaun í ár þrátt fyrir að hafa fengið þau síðustu ár. Lífið 6. desember 2024 14:15
Myndband: Sungu snjókorn falla á íslensku táknmáli Krakkarnir í Táknmálseyju í Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra tóku sig til í vikunni og sungu eitt þekktasta jólalag Íslands, Snjókorn falla á íslensku táknmáli. Myndband af krökkunum hefur vakið mikla athygli en krakkarnir senda landsmönnum hlýjar jólakveðjur. Lífið 6. desember 2024 13:54
Konur hlusta á konur og karla, karlar hlusta á karla Í vikunni birti mbl.is frétt um streymistölur íslendinga á veitunni Spotify fyrir árið 2024. Í fréttaflutningnum þótti okkur blaðamann skorta heildræna sýn á kynjamál í tónlistarbransanum og stilla upp ansi dapurlegri mynd. Skoðun 6. desember 2024 13:31
Steindi og Saga leika í hverju einasta atriði Þau Steindi og Saga Garðarsdóttir eru að fara í loftið með Draumahöllina á Stöð 2. Lífið 6. desember 2024 11:33
Að ánetjast eldri konum Rebekka Sif Stefánsdóttir skrifar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn. Hún fjallar hér um nýjustu bók Evu Rúnar Snorradóttur, Eldri konur. Lífið samstarf 6. desember 2024 10:30
Jóladrottningin stal senunni Húsfyllir og rífandi stemning var í frumsýningarteiti hljómsveitarinnar Húbba Búbba sem fór fram í Kolaportinu á dögunum. Þar frumsýndu þeir tónlistarmyndband við lagið JólaHúbbaBúbba, þar sem hin margrómaða jóladrottning, Svala Björgvins, stal senunni frá strákunum, eins og henni einni er lagið. Jól 6. desember 2024 09:03
Örlagaríkt viðtal varð að tuttugu ára vináttu Sjónvarpskonurnar Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir verða saman á skjánum í allra fyrsta sinn í kvöld í söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF á Íslandi, Búðu til pláss. Það er ótrúlegt mál enda hafa þær starfað í sama geira síðustu ár en eru þar að auki perluvinkonur eftir örlagaríkt viðtal fyrir tuttugu árum síðan. Lífið 6. desember 2024 07:02
Jón Nordal er látinn Jón Nordal tónskáld og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík andaðist í gær, 5. desember, 98 ára að aldri. Hann var meðal ástsælustu tónskálda þjóðarinnar og einn helsti forystumaður í uppbyggingu tónlistarlífs á Íslandi á síðastliðinni öld. Innlent 6. desember 2024 06:37
Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Þakkarorða íslenskrar tónlistar var afhent þann 1. desember á Degi íslenskrar tónlistar á sérstökum hátíðartónleikum til heiðurs tónlistarmanninum Magnúsi Eiríkssyni. Tónleikarnir fóru fram fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu og var þjóðinni boðið að sækja sér miða sem ruku út á nokkrum mínútum. Tónleikarnir voru einnig teknir upp og verða sýndir á RÚV 26. desember. Tónlist 5. desember 2024 20:03
Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Fyrirkomulagið við úthlutun listamannalauna snýst ekki lengur um pólitíska bitlunga líkt og áður var og er nú allt á réttri leið. Þetta segir Edda Björgvinsdóttir leikkona sem er ein þeirra tvö hundruð og fimmtíu listamanna sem fá listamannalaun á næsta ári. Hún kveðst þakklát fyrir það framlag sem hún fær sem geri henni kleift að gefa enn meira af sér til baka til samfélagsins og íslenskrar menningar en ella. Menning 5. desember 2024 20:02
Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Kraumsverðlaunin verða afhent í sautjánda sinn síðar í þessum mánuði fyrir þær íslensku hljómplötur er þykja skara fram úr hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Tónlist 5. desember 2024 15:24
Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Strákarnir í Spacestation mættu með pompi og prakt í fiskabúrið hjá X-inu 977. Þar spiluðu þeir nokkur af sínum bestu lögum líkt og All of the Time, Sickening og Can't be mine og þá taka þeir einnig klassískt lag Bjartmars Guðlaugssonar. Tónlist 5. desember 2024 14:32
Biðjast afsökunar á að hafa sært listamenn Stjórn listamannalauna segir tilraun til að upplýsa umsækjendur um listamannalaun um hvers vegna þeim var hafnað hafa mistekist. Beðist er afsökunar á því að hafa sært listamenn með ákvörðunartexta. Innlent 5. desember 2024 12:55
Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Sigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur og blaðamaður hjá Ríkisútvarpinu, mun ýmist taka sér leyfi eða vinna í hlutastarfi hjá RÚV meðan hún nýtur listamannalauna allt næsta ár. Menning 5. desember 2024 12:11
Frumsýning á Vísi: „Er ég að fara að missa allt?“ „Íþróttir skipta okkur ótrúlegu máli. Þetta er eitthvað sem við sækjum okkar identity í og við erum mjög stolt af því að vera íþróttabær,“ segir Bryndís Gunnlaugsdóttir aðstoðarþjálfari kvennaliðs Grindavíkur í fyrstu stiklunni úr heimildarþáttunum Grindavík eftir Garðar Örn Arnarson og Sigurð Má Davíðsson, þeim sömu og gerðu Edduverðlaunaþáttaraðirnar Víkingur: Fullkominn endir og Jón Arnór. Lífið 5. desember 2024 09:48
Þessi fá listamannalaun 2025 Tilkynnt hefur verið hvaða listamenn fá úthlutun úr Launasjóði listamanna fyrir árið 2025. Færri komust að en vildu, en alls var úthlutað 1720 mánaðarlaunum úr átta mismunandi sjóðum. Menning 5. desember 2024 08:21
Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu Það var jólalegt líf og fjör á fyrsta í aðventu á Listasafni Íslands þegar safnið og Litróf sameinuðu krafta sína í hátíðlegri gjafapappírsútgáfu. Margt var um manninn og jólaskapið leyndi sér ekki. Menning 4. desember 2024 20:03
Ásta Fanney til Feneyja Ásta Fanney Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu. Lífið 4. desember 2024 16:33
Ætla að tryggja að einn af hverjum tíu sé nýliði Innan við sólarhringur er í að hulunni verði svipt af því hvaða 251 listamaður fékk náð fyrir augum úthlutunarnefnda úr þeim átta sjóðum sem veita listamannalaun. Listamönnunum sjálfum hefur verið tilkynnt um niðurstöðuna. Þó nokkrir eru með böggum hildar og ganga slyppir og snauðir á braut. Lítið heyrist í fámennari hópnum, þeim sem anda léttar og fengu þriggja til tólf mánaða blessun á umsókn sinni. Innlent 4. desember 2024 16:03