

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

Kominn úr banni en gleðin enn týnd
Það er ekkert leyndarmál að Jimmy Butler hefur ekki áhuga á að spila meira með Miami Heat. Pat Riley, forseti félagsins, vill hins vegar ekki skipta honum burt og má segja að málið sé í fullkomnum hnút.

Er Jokic bara að djóka?
Nikola Jokic snéri aftur í lið Denver Nuggets á föstudagskvöldið eftir stutta hvíld vegna meiðsla. Það var þó ekki að sjá á leik hans að hann væri að jafna sig á meiðslum en kappinn bauð upp á þrefalda tvennu eins og svo oft áður.

Ein svakalegasta troðsla tímabilsins fékk ekki að standa
Ja Morant, leikmaður Memphis Grizzlies, sýndi frábær tilþrif er hann tróð yfir Victor Wembanyama, leikmann San Antonio Spurs, í leik liðanna í NBA-deildinni í nótt. Því miður fyrir Morant taldi karfan ekki.

Gaf flotta jakkann sinn í beinni
Greg Anthony er fyrrum NBA leikmaður sem starfar nú sem sjónvarpsmaður hjá TNT sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum. Hann var að lýsa leik í NBA á dögunum þegar hann ákvað að gefa jakkann sem hann var í.

Ætlar að hella í sig þegar Stephen Curry hættir
Stephen Curry hefur verið einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta undanfarinn áratug eða svo. Þó hann hafi skemmt fjölmörgum aðdáendum Golden State Warriors og körfubolta yfir höfuð þá eru sumir sem geta ekki beðið eftir því að þessi magnaði leikmaður leggi skóna á hilluna.

Átök í stúdíóinu: „LeBron er að eyðileggja Lakers“
Maté Dalmay gekk fram af Leifi Steini Árnasyni með fullyrðingu sinni um LeBron James í Lögmáli leiksins.

Stöðvuðu tólf leikja sigurgöngu Cavs
Indiana Pacers vann Cleveland Cavaliers, 93-108, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og stöðvaði þar með tólf leikja sigurgöngu Cavs.

Þjálfari Lakers missti heimili sitt: „Mörg ár síðan ég hef grátið svona mikið“
JJ Redick, þjálfari NBA liðsins Los Angeles Lakers, er einn af þeim sem misstu heimili sín í eldunum í Los Angeles.

Æskuheimili Steve Kerr brann til kaldra kola
Steve Kerr og fjölskylda er í hópi þeirra fjölmörgu sem þurftu að sjá á eftir húsum sínum og eignum í eldunum miklu í Los Angeles.

Fresta NBA leik vegna eldanna í Los Angeles
Ekkert verður af leik Los Angeles Lakers og Charlotte Hornets sem átti að fara fram í NBA deildinni körfubolta í Los Angeles í nótt.

Cavs vann uppgjör toppliðanna í NBA
Cleveland Cavaliers stöðvaði sigurgöngu Oklahoma City Thunder þegar tvö efstu lið NBA-deildarinnar í körfubolta mættust í nótt. Cavs vann leikinn, 129-122.

Stalst í síma liðsfélaga og tók sjötíu sjálfur
NBA stórstjarnan Luka Doncic er einn besti körfuboltamaður heims en þessi frábæri bakvörður Dallas Mavericks er líka mikil grallari utan vallar.

„Ég mun vera með þetta út ferilinn minn, bara fyrir þig“
NBA stjarnan Anthony Edwards yljaði mörgum um hjartaræturnar fyrir það sem hann gerði fyrir ungan strák sem berst við krabbamein.

Skoraði ótrúlega sigurkörfu fyrir aftan miðju
Trae Young var hetja Atlanta Hawks þegar liðið vann Utah Jazz, 121-124, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Hann skoraði sigurkörfu Haukanna með skoti fyrir aftan miðju.

Ræddu ótrúlega fimmtán leikja sigurgöngu OKC
Í NBA þættinum Lögmál Leiksins ræddu þeir Kjartan Atli og sérfræðingar hans um sigurgöngu Oklahoma City Thunder í deildinni að undanförnu.

„Er þetta einn af þreyttustu leikmönnunum í NBA?“
Kawhi Leonard, leikmaður Los Angeles Clippers, er mættur aftur út á gólfið eftir meiðsli. Endurkoma hans verður til umræðu í Lögmáli leiksins á Stöð 2 Sport 2 í kvöld.

Unnu fimmtánda leikinn í röð þegar meistararnir komu í heimsókn
Oklahoma City Thunder setti félagsmet með því að vinna fimmtánda leik sinn í röð þegar meistarar Boston Celtics komu í heimsókn í nótt. Lokatölur 105-92, OKC í vil.

Allt er fertugum LeBron fært
Hinn fertugi LeBron James heldur áfram að skríða upp alla þá lista yfir tölfræði sem NBA-deildin í körfubolta getur boðið upp á. Nú síðast fór hann upp fyrir Michael Jordan er kemur að því að skora 30 stig eða meira í leik.

Í bann fyrir skaðlega framkomu og dyrnar opnar
Miami Heat hefur sett NBA-stjörnuna Jimmy Butler í sjö leikja bann og leitast nú eftir því að skipta þessum 35 ára gamla körfuboltamanni út.

Butler vill í burtu: Tilbúinn að spila með öllum liðum nema Miami Heat
Framtíð NBA körfuboltamannsins Jimmy Butler hjá Miami Heat er enn til umræðu hjá bandarískum fjölmiðlum og nú er því slegið upp að leikmaðurinn vilji hreinlega komast í burtu frá Miami.

Fótbrotnaði í NBA leik
Körfuboltamaðurinn Jaden Ivey meiddist mjög illa á fæti í leik Detroit Pistons og Orlando Magic í NBA deildinni.

Sakar NBA-deildina um að vera á móti Houston Rockets
Amen Thompson leikmaður Houston Rockets í NBA-deildinni hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann vegna áfloga við Tyler Herro í leik Rockets og Miami Heat um helgina. Fyrrum leikmaður Houston Rockets sakar forráðamenn NBA-deildarinnar um óheiðarleika.

Lauk árinu með fjörutíu stiga leik
Sex leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Shai Gilgeous-Alexander lauk árinu með sannkallaðri flugeldasýningu þegar lið hans Oklahoma City Thunder mætti Minnesota Timberwolves.

FBI varar við þjófum sem herja á íþróttafólk
FBI hefur formlega varað stærstu íþróttadeildir Bandaríkjanna um skipulagða glæpahópa sem gera íþróttafólk að fórnarlömbum ránsferða sinna. Brotist var inn á níu heimili atvinnufólks í íþróttum frá september til nóvember.

Fertugur LeBron gæti spilað „fimm til sjö ár“ til viðbótar
LeBron James fagnaði fertugsafmæli sínu í gær. Hann er á tuttugasta og öðru tímabilinu í NBA en segist eiga nóg eftir, ef hann svo kýs.

Sá þriðji í sögunni til að spila fullkominn leik
Russell Westbrook varð í nótt þriðji leikmaður NBA sögunnar til að skila af sér þrefaldri tvennu, án þess að tapa boltanum eða klikka á skoti, í 132-121 sigri Denver Nuggets gegn Utah Jazz.

Kostaði hann fjórtán milljónir að nota f-orðið í viðtali
Bandaríski körfuboltamaðurinn Anthony Edwards fékk stóra sekt frá NBA deildinni eftir viðtal sem hann veitti eftir leik á dögunum.

Brotist inn til Doncic
Á föstudaginn var brotist inn á heimili Lukas Doncic, leikmanns Dallas Mavericks og einnar skærustu stjörnu NBA-deildarinnar í körfubolta.

Ein skærasta stjarna NBA tefldi við fólk úti á götu
Victor Wembanyama, leikmaður San Antonio Spurs í NBA-deildinni, átti stund milli stríða í dag og nýtti hana til að tefla við fólk úti á götu í New York.

Riley búinn að fá nóg og þvertekur fyrir að Miami muni skipta Butler
Pat Riley, forseti Miami Heat, segir ekkert hæft í fréttum þess efnis að félagið ætli að skipta Jimmy Butler í burtu.