

Fréttir og úrslit úr bandarísku NFL ruðningsdeildinni.
Framkvæmdastjóri húsgagnaverslunar í Houston í Bandaríkjunum tók áhættu fyrir Super Bowl helgina.
Það vakti mikla athygli þegar fullyrt var í gær að hnefaleikakappinn Floyd Maywather hafi veðjað 1,2 milljörðum króna á sigur Denver Broncos í Super Bowl.
Malcolm Smith, varnarmaður Seattle Seahawks, hlaut hinn svokölluðu MVP-verðlaun fyrir frammistöðu sína í Super Bowl í nótt.
Þrátt fyrir að íþróttin heilli ekki alla ætti að vera eitthvað fyrir hvern sem er þegar Superbowl fer fram. Ekki aðeins er um einn stærsta íþróttaviðburð heims að ræða heldur er yfirleitt heimsfræg hljómsveit sem skemmtir í hálfleik og er dýrasti auglýsingartími heims þess á milli.
Það er nauðsynlegt að vera með nokkur atriði á hreinu fyrir stærsta íþróttakappleik helgarinnar en Denver Broncos og Seattle Seahawks mætast í kvöld í Super Bowl í beinni á Stöð 2 Sport.
Denver Broncos og Seattle Seahawks mætast í kvöld í Super Bowl en þetta er úrslitaleikurinn í ameríska fótboltanum og einn stærsti íþróttaviðburður hvers árs. Aðalstyrkleiki liðanna er á ólíkum sviðum.
Richard Sherman, bakvörður Seattle Seahawks, segir að Peyton Manning, leikstjórnandi Denver Broncos, sé líklega einn besti leikstjórnandi sögunnar.
Peyton Manning var í nótt valinn verðmætasti leikmaður NFL-deildarinnar í fimmta sinn á ferlinum. Manning og félagar í Denver Broncos mæta Seattle Seahawks í kvöld um Vince Lombardi bikarinn í Ofurskálinni(e. Superbowl).
Hápunktur frábærs tímabils í NFL-deildinni verður í kvöld þegar Denver Broncos og Seattle Seahawks eigast við í Super Bowl í New Jersey.
Þjálfarar liðanna í NFL-deildinni eru oftar en ekki í sviðsljósi fjölmiðlanna vestanhafs.
Seattle-maðurinn Russell Wilson segist bera mikla virðingu fyrir Peyton Manning, leikstjórnanda Denver Broncos.
Það kemur í hlut hins 28 ára Bandaríkjamanns Bruno Mars að skemmta lýðnum á sunnudagskvöldið þegar stærsti íþróttaviðburður ársins í Bandaríkjunum fer fram.
Tímabilið í NFL-deildinni nær hápunkti á sunnudagskvöld þegar Denver Broncos og Seattle Seahawks eigast við í Super Bowl.
Pete Carroll, þjálfari Seattle Seahawks, er ánægður með hversu öflugan hóp varnarmanna hann er með í sínu liði.
Leikmenn NFL-deildarinnar eru eins misjafnir og þeir eru margir og láta ýmislegt upp úr sér í hita leiksins.
Peyton Manning, leikstjórnandi Denver Broncos, segist bera virðingu fyrir öflugri vörn Seattle Seahawks en liðin mætast í Super Bowl annað kvöld.
Það hefur ef til vill ekki farið framhjá mörgum sem fylgjast með þessari íþrótt að þessi árlegi viðburður er frægur fyrir margar aðrar sakir heldur en það sem fylgir venjulegum leik í NFL deildinni
Boeing flugvélaverksmiðjan sýndi stuðning sinn við Seattle Seahawks liðið með sérstökum hætti í vikunni þegar hún lét flugvél í reynsluflugi fljúga afar táknræna flugleið.
Eli Manning, bróðir Peyton Manning og leikstjórnandi New York Giants í NFL-deildinni, var búinn að afskrifa það að eldri bróðir sinn gæti komið til baka í boltann eftir að hafa farið í gegnum fyrstu hálsaðgerðina.
Denver Broncos og Seattle Seahawks eigast við í Super Bowl, úrslitaleik NFL-deildarinnar, í New York á sunnudagskvöld.
Lögreglan í New York handtók tvo menn fyrir að selja falsaða miða á Super Bowl, úrslitaleik NFL-deildarinnar. Þeir eiga yfir höfði sér allt að sjö ára fangelsi verði þeir fundnir sekir.
Marshawn Lynch, hlaupari Seattle Seahawks, hefur alla tíð verið mikill aðdáandi Skittles-sælgætisins og er nú kominn á samning hjá framleiðandanum.
Snillingarnir á Bad Lip Reading hafa sent frá sér nýtt myndband þar sem góðlátlegt grín er gert að stjörnunum í NFL-deildinni.
Josh Brent, fyrrum leikmaður Dallas Cowboys í NFL-deildinni, fékk vægan dóm þrátt fyrir að hafa verið sakfelldur um manndráp af gáleysi.
Samkvæmt fyrstu veðurspám virðist sem að veðrið verði viðráðanlegt fyrir leikmenn Denver Broncos og Seattle Seahawks sem leika til úrslita í NFL-deildinni þetta tímabilið.
Rob Ryan er einn af þekktari andlitunum í ameríska fótboltanum þrátt fyrir að hann sé ekki aðalþjálfari síns liðs. Þessi litríki og hármikli maður er eftirsóttur sem varnarþjálfari en enginn virðist vilja fá hann til að stýra liði í NFL-deildinni.
Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, var einum leik frá því að komast í Super Bowl, úrslitaleik NFL-deildarinnar, en lið hans tapaði á móti Denver Broncos í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar um síðustu helgi.
Sterkasta varnarlið NFL-deildarinnar, Seattle Seahawks, tryggði sér í nótt sæti í leiknum um Ofurskálina (e. Superbowl) eftir 23-17 sigur á erkifjendunum í San Francisco 49ers í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar.
Peyton Manning og félagar í Denver Broncos eru komnir alla leið í Super Bowl, leikinn um Ofurskálina í ameríska fótboltanum, eftir 26-16 sigur á New England Patriots í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar í kvöld.
Tveir af stærstu leikjum ársins í bandarísku íþróttalífi verða sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld en þá ræðst hvaða tvö lið komast í Super Bowl og keppa til úrslita í NFL-deildinni þetta tímabilið.