Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Regn­boginn verði málaður aftur en með breyttu sniði

Regnbogafáninn verður málaður aftur á tröppur Grafarvogskirkju þegar veður leyfir segir sóknarprestur kirkjunnar. Sóknarnefnd tók ákvörðun um það á fundi í dag að tröppurnar verði málaðar á ný, en með breyttu sniði. Skemmdarverk á tröppunum í byrjun júlí hafi reynst kirkjunni afar dýrkeypt en það hafi verið í þriðja skiptið sem skemmdarverk hafi verið unnin á lóð kirkjunnar. 

Innlent
Fréttamynd

Ríf­lega níu­tíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Ís­lands­sögunnar

Íslenskur bakari sem saknar þess að mæta á viðburði á borð við köku-pálínuboð frá því að hún bjó erlendis ákvað í sumar að grípa til sinna ráða og skipulagði svokallað „mega-pálínuboð“. Þrátt fyrir að ekki hafi ræst úr veðrinu rættist svo sannarlega úr boðinu en það var haldið í Laugardalnum frá klukkan 14:00 til 16:00 í dag.

Matur
Fréttamynd

Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykja­víkur

Fyrri hluti júlí er sá votasti í Reykjavík frá upphafi mælinga en úrkoma mældist 65 millimetrar. Það er meira en tvöföld meðalúrkoma, sé miðað við árin 1991 til 2020. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, hefur gert upp veðurfar á landinu þennan fyrri part mánaðar á bloggi sínu.

Innlent
Fréttamynd

Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum

Umferðarteppa hefur myndast við ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Bæjarstjóri Kópavogs segir ástandið óásættanlegt en Vegagerðin bendir á að um bráðabirgðafyrirkomulag sé að ræða. Full reynsla fáist ekki fyrr en fleiri akreinar hafa verið opnaðar og ljósastýringin tekin í fulla notkun.

Innlent
Fréttamynd

Allt að fjörutíuföld mengun við skemmti­ferða­skip

Loftmengun í grennd við skemmtiferðaskip í höfn getur mælst 35 til 40 föld miðað við heilsuverndarmörk. Þörf er á uppsetningu innviða svo skipin geti tengst rafmagni þegar þau liggja við höfn og reglusetningu um notkun hreinni eldsneytisgjafa, samkvæmt sérfræðingi.

Innlent
Fréttamynd

Endur­skoða sparkvöll við Landa­kot

Borgarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að hverfa frá áformum í núverandi mynd um sparkvöll á Landakotstúni. Málinu hefur aftur verið vísað til umhverfis- og skipulagssviðs.

Innlent
Fréttamynd

Jafn­vel brotist inn þegar fólk er heima

Formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur segir íbúa hrædda um heimili sín. Gangi þeir svo langt að hringja í nágranna til að láta athuga heimili sín á meðan þeir eru á ferðalagi. Tugir innbrota hafa verið tilkynnt lögreglu það sem af er mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Lög­reglan rann­sakar enn eitt inn­brotið í borginni

Lögreglunni barst í dag tilkynning um innbrot á varðsvæði stöðvar 1 en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Er málið til rannsóknar en frá mánaðamótum hafa rétt tæplega fimmtíu tilkynningar um innbrot borist lögreglunni á stöð 1.

Innlent
Fréttamynd

Veita helmingsafslátt af leigunni

Breyting á gjaldskrá afnotaleyfa og eftirlits hjá Reykjavíkurborg hefur tekið gildi sem felur í sér heimild til að veita afslátt af gjöldum vegna ákveðinna viðburða á borgarlandi.

Innlent
Fréttamynd

Rakel Sif og Gissur Ari selja á Ný­lendu­götu

Rakel Sif Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur og Gissur Ari Kristinsson, verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs hjá Seltjarnarnesbæ, hafa sett á sölu 77,6 fermetra íbúð sína að Nýlendugötu 22. Ásett verð er 79,9 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæ­braut

Forstöðumaður Gerðarsafns segist hafa fengið þau svör að forsvarsmenn safnsins verði hafðir með í ráðum vegna niðurrifs iðnaðarbyggingar að Dugguvogi 42 í Reykjavík. Flennistór lágmynd eftir Gerði Helgadóttur prýðir vegg hússins sem snýr að Sæbraut.

Innlent
Fréttamynd

Selja herrasetur í Þing­holtunum

Viðar Eggertsson leikstjóri og Sveinn Ísarr Kjartansson, yfirmatreiðslumaður hjá Seðlabanka Íslands, hafa sett á sölu þriggja hæða einbýlishús sitt að Laufásvegi 39 í Þingholtunum. Ásett verð hússins er 139,9 milljónir króna.

Lífið