Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Forsætisráðherra segir ekkert hæft í fréttum byggðum á leynilegri upptöku um að Jón Gunnarsson hafi fengið stöðu í matvælaráðuneytinu gegn því að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Píratar vilja að málið verði rannsakað. Innlent 12. nóvember 2024 20:00
„Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Bjarni Benediktsson segir Jón Gunnarsson ekki hafa tekið sæti á lista í skiptum fyrir stöðu í matvælaráðuneytinu. Bjarni segist hafa ákveðið í síðustu viku að Jón kæmi ekki að veitingu hvalveiðileyfis og segir hleranir bera merki þess að verið sé að reyna að hafa áhrif á alþingiskosningar. Innlent 12. nóvember 2024 18:45
Meira fyrir minna: Bætt nýting opinberra fjármuna Útgjöld hins opinbera hafa vaxið mikið undanfarin ár. Á þetta við um nánast öll málefnasvið. Skoðun 12. nóvember 2024 17:16
Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Bjarni Benediktsson hefur greint frá því að Jón Gunnarsson, settur aðstoðarmaður Bjarna í matvælaráðuneytinu, muni ekki koma að afgreiðslu hvalveiðileyfa í matvælaráðuneytinu. Innlent 12. nóvember 2024 16:02
Aukin stuðningur við ferðasjóð íþróttafélaga dregur úr ójöfnuði Frá árinu 2007 hefur ferðasjóður íþróttafélaga fengið framlag á fjárlögum Alþingis og er ljóst að ferðasjóðurinn þarf að fá verulega hækkun á fjárlögum á næstu árum. Skoðun 12. nóvember 2024 15:45
Plan Samfylkingar: Svona náum við niður vöxtunum Fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar verður að kveða niður vexti og verðbólgu og endurheimta traust til hagstjórnarinnar á Íslandi. Lykillinn að því er að við náum styrkri stjórn á fjármálum ríkisins og komum húsnæðismarkaðnum í fastari skorður. Um þetta snýst plan Samfylkingarinnar. Skoðun 12. nóvember 2024 15:17
6000 íbúðirnar sem vantar - í boði borgarinnar Stjórnmálaflokkar keppast nú við að kynna áherslur í húsnæðismálum í aðdraganda þingkosninga. Þó tilvonandi þingmenn lofi margvíslegum aðgerðum á húsnæðismarkaði er veruleikinn sá að sveitarstjórnarstigið gegnir veigamiklu hlutverki við húsnæðisuppbyggingu. Það er á valdi sveitarfélaga að úthluta landi, skipuleggja hverfi og útdeila byggingaheimildum. Skoðun 12. nóvember 2024 15:02
Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2024 sýna vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað síðustu tvö ár. Niðurstöður sýna lækkun í tíðni kvíða og depurðar í öllum árgöngum. Enn segist þó um helmingur stúlkna í 10. bekk finna fyrir depurð. Þá hafa um þrettán prósent stúlkna í 10. bekk verið beittar kynferðisofbeldi af jafnaldra en hlutfallið lækkar á milli ára. Innlent 12. nóvember 2024 15:02
Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar Fyrrverandi félagsmálaráðherra segist ekki skulda dómsmálaráðherra neinar skýringar á afskiptum sínum í máli fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu sem átti að vísa úr landi í haust. Þá hafi engin formleg beiðni borist frá henni til félagsmálaráðuneytisins um skýringar á því hvers vegna hann skarst í leikinn þegar það átti að vísa drengnum úr landi. Innlent 12. nóvember 2024 14:00
Bein útsending: Kosningafundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir umræðufundi með fulltrúum stjórnmálaflokka á Hilton Reykavík Nordica milli klukkan 14 og 15.30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Innlent 12. nóvember 2024 13:33
Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar Mennta og barnamálaráðuneytið kynnir niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar klukkan 14 til 16:30 í dag Hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands. Hægt verður að horfa í streymi hér að neðan. Innlent 12. nóvember 2024 13:33
Tvö vilja í Endurupptökudóm Berglind Svavarsdóttir lögmaður og Matthías G. Pálsson lögfræðingur hafa sótt um embætti dómanda við Endurupptökudóm. Innlent 12. nóvember 2024 13:08
Mikilvægasta launaviðtalið Í kosningabaráttunni hafa ríkisfjármálin eðlilega mikið verið í umræðunni og eru skiptar skoðanir á milli flokka hvernig best sé að hátta þeim. En hvað eru ríkisfjármál og hvaða áhrif geta þau haft á líf almennings? Skoðun 12. nóvember 2024 11:02
Burt með baráttusöngva úr virkjunarkafla stóriðjustefnunnar Ein afdrifaríkasta breytingin sem ríkisstjórnin gerði á stjórnarráðunum á síðasta kjörtímabili var stofnun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Með því að setja sjónarmið verndar og nýtingar undir sama hatt glataðist ákveðið jafnvægi sem náðist fram með því að tvö ráðuneyti héldu ólíkum sjónarmiðum á lofti varðandi stærstu framkvæmdir. Skoðun 12. nóvember 2024 10:31
Örugg skref Samfylkingar í geðheilbrigðismálum Forsenda allrar umræðu um bætta geðheilbrigðisþjónustu er jafnt aðgengi að þjónustu. Í dag er geðheilbrigðiskerfið óskilvirkt og stefnulaust þar sem óljóst er hvaða þjónustu skal veita á mismunandi þjónustustigum. Skoðun 12. nóvember 2024 10:16
Velferðarsamfélag í anda jafnaðarmennskunnar Í komandi alþingiskosningum verður kosið um það hvernig við viljum byggja upp íslenskt samfélag. Á undanförnum árum hefur verið hart sótt að réttindum launafólks og oftar en ekki með það að leiðarljósi að veikja stöðu fólksins en okkur talið trú um að það sé gott enda séu verkalýðsfélög of sterk. Skoðun 12. nóvember 2024 08:01
„Hefur þú ekkert að gera?” Ég heyri þetta oft, sérstaklega þegar ég segi frá nýjustu hugmyndum eða verkefnum sem ég læt plata mig út í. Verkefnum sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Skoðun 12. nóvember 2024 07:16
Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Alma Möller, oddviti Samfylkingarinnar í Kraganum, segir það hafa verið nauðsynlegt að fletja kúrfuna í upphafi Covid-faraldurs. Ísland komi vel út í rannsóknum á umframdauðsföllum og sóttvarnaraðgerðir hafi verið síst meiri hérlendis en annars staðar. Innlent 11. nóvember 2024 22:02
Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Dómsmálaráðherra segir að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi enn ekki svarað hvaða upplýsingar hann hafði sem kröfðust þess að stöðva ætti brottför fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu úr landi í haust. Hún er ósátt við niðurstöðu málsins. Innlent 11. nóvember 2024 19:46
Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að hann hafi sakað blaðamenn um að standa í hlerunum sem beindust að syni hans, Gunnari Bergmann Jónssyni. Hann setur þó spurningamerki við vinnubrögð blaðamanna. Innlent 11. nóvember 2024 19:45
Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Sonur Jóns Gunnarssonar á að hafa sagt á upptöku að faðir sinn hafi tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í skiptum fyrir að komast í aðstöðu til að veita veiðileyfi til Hvals hf. Þá hafi hann sagt að utanríkisráðherra muni undirrita útgáfu leyfisins vegna hagsmunatengsla forsætisráðherra. Innlent 11. nóvember 2024 18:16
Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Leynileg upptaka sem virðist hafa verið grundvöllur umfjöllunar um aðstoðarmann forsætisráðherra og hvalveiðar var boðin fleirum en Heimildinni í síðustu viku. Boðin voru send í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis sem vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein. Innlent 11. nóvember 2024 16:54
Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Oddvitar í Norðvesturkjördæmi koma saman á opnum fundi á Ísafirði í dag þar sem meðal annars verður rætt um samgönguinnviði og Vestfjarðarlínu. Innviðafélag Vestfjarða heldur fundinn þar sem farið verður yfir hvernig forsvarsmenn flokka bregðast við ákalli um stórátak í uppbyggingu samgönguinnviða. Innlent 11. nóvember 2024 16:01
Formaður Miðflokksins er opinn fyrir sérlögum um virkjanir Almenn samstaða virðist ríkja milli stjórnmálaflokkanna um mikilvægi þess að afla frekari grænnar orku, sé tekið mið af svörum oddvita þeirra í könnun sem Samtök atvinnulífsins lögðu fyrir þá í aðdraganda kosningafundar. Formenn Miðflokks, Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar eru áfram um að einfalda leyfisveitingarferlið til orkuöflunar, en á ólíkum forsendum þó. Innherji 11. nóvember 2024 15:12
Ekki púað á Snorra Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti. Innlent 11. nóvember 2024 14:51
„Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Snorri Másson oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður segir að hann „sundli við fúkyrðaflaumi“ Svandísar Svavarsdóttur í hlaðvarpinu Ein pæling fyrir helgi. Hann segir ásakanir Svandísar í hans garð lygi frá rótum. Innlent 11. nóvember 2024 13:14
„Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Ritstjóri Heimildarinnar hefur vísað þungum ásökunum Jóns Gunnarssonar alfarið á bug. Hann sagði blaðamenn Heimildarinnar hafa staðið að því að tálbeita veiddi upplýsingar um hvalveiðar upp úr syni hans. Innlent 11. nóvember 2024 12:20
Bless Borgarlína, halló Sundabraut Árið 1989 fluttu foreldrar mínir á Kjalarnes, sem þá þótti áhugaverður kostur fyrir unga fjöskyldu. Þar bauðst sérbýli á viðráðanlegu verði, fallegt umhverfi og átti Kjalarnes að vaxa mikið á næstu árum. Sundabrautin var á leiðinni og átti að auka aðgengi að bænum. Skoðun 11. nóvember 2024 11:32
Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Í kosningapallborði fréttastofunnar í dag er rætt við frambjóðendur þeirra flokka sem fengju einna flest þingsæti á Alþingi samkvæmt könnunum, sumir hafa verið að sækja á en fylgi annarra að dala. Þátturinn verður í beinni útsendingu og hefst klukkan 14. Innlent 11. nóvember 2024 10:36
Ískaldur veruleiki, ekki skuggamyndir á vegg fræðimanna Í nýafstöðnum kosningum í Bandaríkjunum var mikið í húfi. Í raun má segja að þar hafi tveir menningarheimar tekist á og að úrslitin muni setja mark sitt á menningarumhverfi, stjórnmál og lagasetningu næstu ára. Skoðun 11. nóvember 2024 10:21