Höfundalögin „þarfnast ástar“ til að virka Stjórnarformaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kallar eftir því ráðherra breyti höfundalögum á Íslandi og uppfæri til samræmis við nútímann. Allur hugverkaiðnaðurinn sé undir sem neyðist til að styðja sig við úrelt lög. Málaflokkurinn „þarfnast ástar,“ líkt og stjórnarformaðurinn komst að orði, einkar skemmtilega. Innlent 5. september 2024 13:36
Kannast ekki við fleiri líflátshótanir í garð Helga Magnúsar Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari áréttar að ástæða þess að hún sendi mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara til dómsmálaráðherra sé ekki vegna persónulegs ágreinings. Hún hafi verið úrræðalaus eftir áminningu sem hún veitti honum árið 2022. Henni hafi ekki verið kunnugt um frekari líflátshótanir í garð Helga Magnúsar. Innlent 5. september 2024 13:15
Tölum um samkeppni í landbúnaði Síðan frumvarp matvælaráðherra um breytingar á búvörulögum gekk í gildi á vordögum hafa umræður verið háværar í fjölmiðlum um spillingu, einokun og hagsmunapot formanns atvinnuveganefndar á málinu. Síðast í gær fór Kastljós RÚV vandlega yfir meintan glæpaferil málsins. Skoðun 5. september 2024 12:33
Gæti tafið virkjanaframkvæmdir um tvö ár og skaðað samfélagið Forstjóri Landsvirkjunar segir kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps á virkjanaleyfi Búrfellslundar geta tafið framkvæmir um tvö ár og skaðað samfélagið sem þurfi á orkunni að halda. Hreppurinn hafi ekkert með útgáfu framkvæmdaleyfis að gera og hafi ekki nýtt sér ítrekuð tækifæri til athugasemda. Innlent 5. september 2024 12:16
Meirihluti vill að hið opinbera nýti vindinn Mikill meirihluti þjóðarinnar telur mikilvægt að vindorkuframleiðsla sé í höndum opinberra aðila, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Helmingur þjóðarinnra er hlynntur fyrirhugaðri vindorkuframleiðslu í Búrfellslundi. Innlent 5. september 2024 10:39
Það versta er að bíða og gera ekki neitt Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt inn fyrirspurnir til Reykjavíkurborgar og skóla og frístundaráðs hvort verið sé að bíða eftir hvaða skref ráðherra barnamála taki í lestrarkennslumálum eða hvort sviðið ætli að leggja fram sínar hugmyndir um t.d. hvernig hægt er að styðja börn enn frekar í lestrarnámi með það að markmiði að auka lesskilning? Skoðun 5. september 2024 10:02
Grunur um íbúðir í óleyfi stoppar frekari framkvæmdir Theódóra S. Þorsteinsdóttir, oddviti Viðreisnar í Kópavogi, segir mikilvægt að byggingafulltrúi fái heimild til að skoða hús að Melgerði á Kársnesi áður en gefið verður leyfi til að byggja við húsið. Eigandi hefur óskað eftir leyfi til að stækka húsið þannig það verði tvær íbúðir. Skipulagsráð frestaði í vikunni afgreiðslu málsins. Innlent 5. september 2024 10:00
Málið sem þolir ekki ljósið Fyrir einu og hálfu ári var reynt að keyra lagafrumvarp um forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu vegna aðildarinnar að EES-samningnum gagnvart innlendri lagasetningu í gegnum Alþingi undir forystu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Vonazt var til þess að málið vekti sem minnsta athygli. Það mistókst. Til stendur nú að reyna það aftur. Skoðun 5. september 2024 08:02
Skeiða- og Gnúpverjahreppur kærir leyfi vegna Búrfellslundar Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti í gær að fela oddvita í samráði við lögmenn að kæra virkjunarleyfið sem Orkustofnun hefur gefið út fyrir Búrfellslund til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Innlent 5. september 2024 06:43
Undrast klappstýrur nasista í umræðunni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson undrast þróun umræðunnar á samfélagsmiðlum, ekki síst í Bandaríkjunum. Óhugnanlegt sé að sjá fólk upphefja nasista og mála bandamenn upp sem illmenni Seinni heimsstyrjaldarinnar. Innlent 5. september 2024 00:04
Guðmundur enn undir feldi Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hann bjóði sig fram til áframhaldandi formannssetu á landsfundi Vinstri grænna í október. Innlent 4. september 2024 22:59
Bolli baðst afsökunar eftir orrahríð dagsins Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um stúlkur í Sjálfstæðisflokknum. Formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna segir ummælan dæma sig sjálf en tekur afsökunarbeiðninni og býður Bolla aftur velkominn í flokkinn. Innlent 4. september 2024 21:35
Þingmenn allra flokka missa þingsæti sín Þingmenn allra flokka sem kosnir voru til Alþingis árið 2021 hafa í einni svipan misst þingsæti sitt, nú þegar aðeins tæp vika er þar til þing kemur saman á ný. Innlent 4. september 2024 20:01
Íslendingar eiga met í fjölgun innflytjenda Íslendingar hafa einstakt tækifæri til að koma að koma í veg fyrir menningarárekstra í framtíðinni með því að efla íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Hvergi innan ríkja OECD hefur innflytjendum fjölgað jafn hratt og mikið og á Íslandi. Innlent 4. september 2024 19:20
Aukinn viðbúnaður á Ljósanótt og Októberfest Skipuleggjendur Ljósanætur og Októberfest SHÍ ætla að auka viðbúnað í kringum hátíðirnar vegna alvarlegra atvika undanfarið í samfélaginu. Þá hefur verið ákveðið að nota málmleitartæki á öllum framhaldsskólaböllum á höfðuborgarsvæðinu. Forseti Stúdentaráðs segir mikilvægt að fólk upplifi sig öruggt. Innlent 4. september 2024 19:02
Aðgerðarhópur vegna ofbeldis í garð og meðal barna tekinn til starfa Nýskipaður aðgerðahópur vegna ofbeldis í garð og meðal barna hóf störf í dag. Hópnum er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið kynntu á blaðamannafundi 25. júní síðastliðinn og aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins sem lúta að heilbrigði og vellíðan barna. Innlent 4. september 2024 16:26
Hættir sem borgarfulltrúi sósíalista Trausti Breiðfjörð Magnússon er hættur sem borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins. Hann hefur átt við veikindi að stríða síðasta árið og segist ætla að setja heilsuna í forgang. Andrea Helgadóttir tekur sæti Trausta í borgarstjórn. Innlent 4. september 2024 15:47
„Við vorum eiginlega bara í þrætum við formann nefndarinnar“ Formenn Samtaka leigjenda og húseigenda vísa ummælum fjármálaráðherra um að fullnægjandi samráð hafi verið haft við alla hagaðila á leigumarkaði, við gerð frumvarps um húsaleigulög, alfarið á bug. Formaður Samtaka leigjenda segist hafa fengið boð á einn hálftímalangan fund sem fór allur í þrætur við formann nefndarinnar. Innlent 4. september 2024 14:36
Málmleitartæki á öllum framhaldsskólaböllum Málmleitartæki verða notuð í öryggisgæslu á framhaldsskólaböllum á höfuðborgarsvæðinu að sögn forsvarsmanns Go öryggi. Fyrirtækið hafi séð um öryggi á slíkum böllum um árabil og leitast sé við að nemendum líða vel. Tónlistarhátíð í Árbæ hefur verið frestað vegna álags hjá lögreglu. Innlent 4. september 2024 13:22
Pælingar eldri kylfings á Spáni ekki efstar á vandræðalista flokksins Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ummæli Bolla Kristinssonar í hádegisfréttum Bylgjunnar birtingarmynd vanda í Sjálfstæðisflokknum. Eldri karlar sem trúi ekki á yngri konur. Innlent 4. september 2024 12:47
Flokkurinn þurfi ekki „nýútskrifaðar stúlkur sem ætla bara að blása á sér hárið og naglalakka sig“ Sjálfstæðismaður segir stofnun nýs framboðs tengdu flokknum vera mikilvægt til að sækja þá kjósendur sem hafa yfirgefið flokkinn síðustu ár undir núverandi forystu. Einungis þeir sem hafa áorkað eitthvað í lífinu fengju sæti á lista framboðsins. Innlent 4. september 2024 11:52
Fölsk loforð í boði HMS Jæja, hvað er að frétta af næstu úthlutun hlutdeildarlána HMS til fyrstu kaupenda? Einhverja hluta vegna benda allir hver á annan og enginn hefur svör. Og því spyr ég hér opinberlega – hvað er að frétta? Getur fjármálaráðherra, innviðaráðherra eða forstjóri HMS svarað? Skoðun 4. september 2024 11:32
Segir Þórarin Inga hafa niðurlægt þingræðið Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur sent inn erindi til forsætisnefndar/siðanefndar Alþingis þar sem hann kærir Þórarin Inga Pétursson þingmann Framsóknarflokksins, formann atvinnuvegnefndar vegna afskipta hans af búvörulögum. Þórarinn Ingi megi teljast bullandi vanhæfur til að hafa afskipti af málinu vegna hagsmunatengsla. Innlent 4. september 2024 10:14
Alvarlegt þegar harðkjarninn íhugar að kjósa ekki flokkinn Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir alvarlega stöðu komna upp í flokknum þegar harðkjarna Sjálfstæðismenn hugsi um að kjósa hann ekki í næstu kosningum. Páll var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun og ræddi möguleikann á DD framboði í næstu Alþingiskosningum. Innlent 4. september 2024 08:41
40 ára tilraun sem mistókst Nýtt kvótaár hófst í dag og mér varð hugsað til þess, að þegar kvótakerfið var sett á 1984 þá var ég aðeins 19 ára gamall og ekki byrjaður í útgerð og kannski má að mörgu leyti segja að stærsta vandamálið við að breyta þessu fáránlega kvótakerfi sé einmitt unga fólkið í dag sem einfaldlega skilur þetta ekki. Skoðun 3. september 2024 23:31
Það hafi víst verið haft samráð og samtal Fyrrverandi innviðaráðherra hafnar því að ekki hafi verið haft samráð við húseigendur og leigjendur þegar unnið var að breytingum á húsaleigulöggjöfinni. Formenn Samtaka leigjenda og húseigenda hafa lýst yfir mikilli óánægju með breytingarnar og kalla eftir nýrri löggjöf. Innlent 3. september 2024 20:46
Boða hertar aðgerðir gegn vopnaburði Ríkisstjórnin boðar hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna og hefur skipað starfshóp sem á að skila tillögum að aðgerðum á næstu dögum. Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við og svara ákalli þjóðarinnar. Lögregla hefur aldrei lagt hald á eins mikið magn hnífa og annarra vopna og síðustu ár. Innlent 3. september 2024 19:33
Öll ríki Evrópu eru smáríki í alþjóðlegu samhengi Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu segir öll ríki Evrópu vera smáríki, sem verði undir í alþjóðlegri samkeppni vinni þau ekki nánar saman. Mikilvægi Íslands og Noregs hafi aukist eftir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Innlent 3. september 2024 19:21
Fjórar myndir af Íslandi Á undanförnum árum hefur ríkisstjórnin hrósað sér í hástert fyrir að hafa bætt ráðstöfunartekjur og kaupmátt fólks í landinu. Nýlega kom út skýrsla Nordregio sem sýnir þróun kaupmáttar á Norðurlöndunum. Skoðun 3. september 2024 18:31
Ákvörðun handan við hornið Dómsmálaráðherra ætlar að tilkynna ákvörðun sína varðandi Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara á allra næstu dögum. Þetta sagði hún eftir fund ríkisstjórnar í morgun. Innlent 3. september 2024 16:30