Kynna breytta Reykjavíkurleið Lovísa Arnardóttir skrifar 17. febrúar 2026 08:44 Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, er formaður stýrihóps um leikskólamál í borginni sem leggur fram tillögurnar. Hér er hún að kynna Reykjavíkurleiðina. Vísir/vilhelm Reykjavíkurleiðin, leikskólaleiðin í Reykjavík, verður kynnt á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Reykjavíkurleiðin var fyrst kynnt síðasta haust og fór þá í samráð. Eftir samráð var tillögunum breytt og þær sendar í jafnréttismat. Breyttar tillögur verða kynntar í ráðhúsinu klukkan 11 í beinni útsendingu á Vísi.
Í tilkynningu frá borginni um blaðamannafundinn segir að um sé að ræða töluverðar breytingar á leikskólamálum í Reykjavík. Leikskólastjórar í Reykjavík kölluðu fyrr í mánuðinum eftir skýrum aðgerðum frá borginni um hvernig eigi að bæta starfsaðstæður í leikskólum svo hægt sé að innleiða að fullu styttingu vinnuvikunnar. Það sé mikill mönnunarvandi og álagið sem fylgi starfinu hafi valdið því að fólk leiti annað. Reykjavíkurleiðin á að vera svar við þessum vanda. Þegar hún var kynnt kom fram í kynningu að með breytingunum væri það von borgarinnar að komið yrði í veg fyrir fáliðun og að fyrirsjáanleiki yrði meiri í starfinu fyrir bæði starfsfólk og foreldra. Tillögurnar gerðu ráð fyrir miklum breytingum á gjaldskrá auk þess sem kynntir voru nýir afslættir sem hvetja eiga foreldra til að stytta dvalartíma barna sinna. Vinnutími starfsfólks á að vera 36 klukkustundir en meðaldvalartími barna er yfir 40 klukkustundir. Breytingunum er ætlað að tryggja að vinnutími starfsfólks verði 38 klukkustundir. Þegar Reykjavíkurleiðin var kynnt var áætlað að hún yrði innleidd um áramótin. Mikill stuðningur er meðal leikskólastjórnenda og starfsfólks leikskóla fyrir innleiðingu breytinganna en í umsögnum í samráðsgátt borgarinnar mátti sjá nokkra mótstöðu og gagnrýni frá ýmsum verkalýðsfélögum, utan Eflingar og Félagi leikskólakennara, og foreldrum, sérstaklega þeim sem einstæðir eru.
Leikskólar Reykjavík Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Jafnréttismál Borgarstjórn Stytting vinnuvikunnar Kjaramál Tengdar fréttir Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda. Leikskólarnir eru Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði. Foreldrar sem hafa valið leikskólana í umsókn eru hvattir til að breyta umsókn. Börn sem eru skráð í Hagaborg og Vonagerði verða færð annað. 13. febrúar 2026 10:28 Kynna breytta Reykjavíkurleið eftir áramót Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir stýrihópinn enn að vinna úr umsögnum um Reykjavíkurleiðina svokölluðu. Líf segir hópinn stefna á að kynna breytingar Reykjavíkurleiðinni eftir áramót. 10. desember 2025 06:30 Leikskólagjöld einstæðra foreldra í Reykjavík gætu allt að þrefaldast Einstæðir foreldrar með meðallaun sem þurfa meira en átta tíma dvöl barns í leikskóla og þurfa að nota alla skráningardaga leikskóla í Reykjavík geta búist við því á því að leikskólagjöld þeirra hækki um allt að 185 prósent verði af fyrirhuguðum breytingum á gjaldskrá leikskóla í Reykjavík. Gjöld þeirra sem geta sótt klukkan 14 eða fyrr á föstudögum lækka í nýrri gjaldskrá, stundum verulega. 16. október 2025 06:46 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda. Leikskólarnir eru Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði. Foreldrar sem hafa valið leikskólana í umsókn eru hvattir til að breyta umsókn. Börn sem eru skráð í Hagaborg og Vonagerði verða færð annað. 13. febrúar 2026 10:28
Kynna breytta Reykjavíkurleið eftir áramót Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir stýrihópinn enn að vinna úr umsögnum um Reykjavíkurleiðina svokölluðu. Líf segir hópinn stefna á að kynna breytingar Reykjavíkurleiðinni eftir áramót. 10. desember 2025 06:30
Leikskólagjöld einstæðra foreldra í Reykjavík gætu allt að þrefaldast Einstæðir foreldrar með meðallaun sem þurfa meira en átta tíma dvöl barns í leikskóla og þurfa að nota alla skráningardaga leikskóla í Reykjavík geta búist við því á því að leikskólagjöld þeirra hækki um allt að 185 prósent verði af fyrirhuguðum breytingum á gjaldskrá leikskóla í Reykjavík. Gjöld þeirra sem geta sótt klukkan 14 eða fyrr á föstudögum lækka í nýrri gjaldskrá, stundum verulega. 16. október 2025 06:46